Fréttablaðið - 24.04.2010, Blaðsíða 28
28 24. apríl 2010 LAUGARDAGUR
A
fleiðingar kynferðis-
legrar misnotkunar á
drengjum eru svo miklu
alvarlegri en fólk gerir
sér almennt grein fyrir.
Karlar sem þolendur
kynferðisofbeldis eru í raun á byrjun-
arreit, á svipuðum stað og konur voru
hérna fyrir 20 árum, þegar enginn
horfðist í augu við hvað kynferðislegt
ofbeldi væri mikið samfélagsmein,“
segir Sigrún Sigurðardóttir, sem er að
vinna að rannsókn sem snýr að kynferð-
islegu ofbeldi á körlum í æsku, í námi
sínu í lýðheilsuvísindum við Háskóla
Íslands. Sigrún segir sínar niðurstöð-
ur benda til að kynferðisofbeldi í æsku
hafi alveg jafn langvarandi og alvar-
leg áhrif á ævi karla eins og kvenna.
„Já, alls ekki minni, en aðeins öðruvísi.
Samkvæmt mínum niðurstöðum beina
konur afleiðingunum inn á við. Þær fá
meiri heilsufarsvandamál, því líkam-
inn tjáir það sem við getum ekki sagt.
En þetta birtist meira út á við hjá karl-
mönnum.“
Sameiginleg einkenni
Samkvæmt íslenskri rannsókn lendir
einn af hverjum tíu drengjum í kyn-
ferðislegu ofbeldi í æsku. Sigrún telur
að sú tala gæti verið vanmetin. „Í þess-
um tölum eru einungis
þeir sem fúnkera í
lífinu. Þú nærð ekki
til þeirra sem hafa
lent í dópi, eru í
afbrotum
eða hafa
fyrirfarið
sér. Rann-
sóknin nær
ekki til þess
hóps sem er
lengst leidd-
ur.“
Rannsókn
Sigrúnar nær til 7 til 9 karla á
aldrinum 30 til 60 ára og bygg-
ist á djúpum viðtölum við þá ,
þar sem þeir ræða sögu sína og upplif-
un af misnotkuninni. Sigrún hefur nú
þegar talað við sex menn, en þeir hafa
allir nýlega sagt frá misnotkuninni í
fyrsta sinn. Þeir hafa því búið einir með
leyndarmálinu bróðurpart lífs síns.
Og þeir eiga ýmislegt fleira sameig-
inlegt. Þeir hafa almennt fúnkerað illa
í lífinu, lentu allir nema einn í grófu
einelti í barnæsku, hafa mjög brotna
sjálfsmynd, eru oft á tíðum einangr-
aðir og eiga erfitt með samskipti við
annað fólk. Nokkrir þeirra hafa leiðst
út í afbrot og fíkniefni, þeir eru flest-
ir margfráskildir forsjárlausir feður
og hafa átt í erfiðum samskiptum við
konur alla tíð.
Þögnin í samfélaginu
Eitt af því sem hefur reynst öllum við-
mælendum Sigrúnar erfitt er hvað
umræðan um kynferðisofbeldi í sam-
félaginu er einsleit. Hún snúist nær
eingöngu um konur sem þolendur og
karla sem gerendur. „Það er ömurlegt
fyrir karla, sem brotið hefur verið á,
jafnvel af konum, að sitja undir þess-
ari umræðu. Þeir upplifa margir mikla
höfnun vegna þessa. Það er líka mjög
algengt að fólk telji það einfaldlega
ekki hægt að nauðga karlmönnum. Við
svona áreiti örvast karlmenn jafnvel
líkamlega, þó að þeir vilji þetta ekki.
Þessu fylgir rosaleg sjálfsásökun og
skömm.“
Sjálfsvíg er hættan
Umræðan í samfélaginu um misnotk-
un drengja, eða öllu heldur skort-
ur á umræðu, veldur því líka að oft
á tíðum átta karlmenn sig ekki á því
sjálfir að ástand þeirra í lífinu er
afleiðing misnotkunarinnar. Það sé
sjaldan til umræðu hvaða afleiðing-
ar kynferðislegt ofbeldi getur haft á
karlmenn. Afleiðingarnar geta hins
vegar verið mjög alvarlegar. „Það er
algengt með karlmenn að þeir segja
ekki frá ofbeldinu fyrr en þeir eru
gjörsamlega komnir í þrot. Þegar
þeir eru komnir á þann stað er um
tvennt að velja – segja frá eða fyrir-
fara sér. Allir mennirnir sem ég hef
rætt við hafa skipulagt í þaula hvern-
ig þeir ætla að svipta sig lífi. Sjálfsvíg
er algengasta dánarorsök karlmanna
á aldrinum 17 til 39 ára, algengari en
í umferðarslysum, og sjálfsvíg er oft
afleiðing af kynferðisofbeldi. En þetta
er aldrei tengt saman. Það er kominn
tími á að hefja umræðuna um tengslin
þarna á milli.“
Einelti og ofbeldi
Önnur sterk tengsl eru milli eineltis
og kynferðisofbeldis í æsku. Flestir af
þeim sem Sigrún hefur talað við hafa
Konur misnota líka börn
Samfélagið þarf að endurskoða hugmyndir sínar um kynferðislegt ofbeldi og hætta að líta á karla sem gerendur eingöngu og konur
sem þolendur. Stundum er því nefnilega öfugt farið, segir Sigrún Sigurðardóttir, doktorsnemi í lýðheilsuvísindum, sem hefur gert
rannsókn á karlmönnum sem þolendum kynferðislegs ofbeldi í æsku. Í samtali við Hólmfríði Helgu Sigurðardóttur segir Sigrún þau
skilaboð sem samfélagið sendi karlkyns þolendum kynferðislegs ofbeldis skaðleg, enda velji þeir oft dauðann frekar en að segja frá.
SIGRÚN SIGURÐARDÓTTIR, DOKTORSNEMI Í LÝÐHEILSUVÍSINDUM Þeir sem Sigrún hefur talað við í tengslum við rannsókn sína á karlmönnum sem þolendum kynferðis-
legs ofbeldis í æsku hafa allir átt við djúpstæð vandamál að stríða í lífinu sem rekja má til ofbeldisins. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
Hermann Hreiðarsson fótboltakappi er talsmaður herferðar og söluátaks Blátt áfram sem hófst
19. apríl og stendur yfir á landinu öllu þar til á mánudag, 26. apríl. Herferðin er liður í starfi
Blátt áfram til að vekja athygli á málaflokknum og hvetja alla til að vera upplýstir og
tala opinskátt um kynferðislegt ofbeldi á börnum. Þá veita samtökin ráðgjöf
um hvernig ræða á slíka hluti við börn og hvernig þekkja megi einkenni
og annað sem tengist ofbeldinu.
Íþróttafélög um allt land aðstoða við sölu á litlu vasaljósi sem
einnig er lyklakippa og er merkt samtökunum, en
kjörorð átaksins eru einmitt Vertu upplýstur!
Vasaljósin eru til sölu í dag við allar
helstu verslanir og verslunamiðstöðvar
um allt land.
VERTU UPPLÝSTUR! – ÁTAK BLÁTT ÁFRAM
mjög slæma sögu af einelti á bakinu.
Sigrún segist ekki vita hvort komi
á undan, en tengslin séu greinileg.
„Sjálfsmynd einstaklinga sem verða
fyrir kynferðislegu ofbeldi er svo
brotin. Þeim finnst þeir bara ömurleg-
ir og skítugir og eru þess vegna algjör
skotmörk fyrir þá sem beita einelti.
Hins vegar eru börn sem verða fyrir
einelti líka með brotna sjálfsmynd og
eru líka auðveld skotmörk fyrir þá
sem misnota börn.“
Þolendur ekki endilega gerendur
Margir telja að tengsl séu á milli þess
að karlmenn séu þolendur kynferðis-
ofbeldis í æsku og þess að misnota
sjálfir börn á fullorðinsárum. Sigrún
segir að engin rannsókn sýni fram á
að þetta sé satt en þetta sé einmitt ein
af stærstu ástæðunum fyrir því að
karlmenn sem lenda í slíkri reynslu
geta ekki hugsað sér að segja frá því.
„Þetta kemur til af því að menn sem
hafa fengið dóm fyrir að misnota
börn segjast sjálfir hafa orðið fyrir
ofbeldi. Þá snýst álit fólks á þeim oft
við, þegar það uppgötvar að þeir eru
sjálfir fórnarlömb.“
Einn viðmælenda Sigrúnar segir
frá því að honum hafi verið bannað
að umgangast frændsystkini sín eftir
að hann sagði frá misnotkuninni, af
ótta við að hann tæki sjálfur upp á að
leita á þau.
Konur misnota líka
Sigrún telur líka fulla ástæðu til þess
að horfast í augu við að konur eru líka
gerendur í kynferðisafbrotamálum.
Einn af þeim sex körlum sem Sig-
rún er þegar búin að tala við var
ítrekað misnotaður af konu. Annar
sem verður með í rannsókninni, en
Sigrún á eftir að hitta, var misnot-
aður af móður sinni um árabil. Hún
segir kanadíska rannsókn sýna að
fjórðungur kynferðisofbeldisfólks sé
konur. Hún viti ekki hversu hátt hlut-
fallið sé hér, en hins vegar þurfi að
opna umræðuna um þann möguleika.
„Þetta er best falda leyndarmálið af
þessu öllu saman. Konur eru gerend-
ur líka og það er alveg kominn tími til
að tala um það.“
Börn geta ekki passað sig
En hvað telur Sigrún að foreldrar geti
gert til að koma í veg fyrir að börnin
þeirra lendi í hremmingum sem þess-
um? „Grunnurinn er að byggja upp
heilbrigða sjálfsmynd hjá börnum.
Svo eiga foreldrar að leggja áherslu á
það við börnin sín að þau eigi ekki að
eiga leyndarmál, heldur segja frá. Því
börn geta oftast ekki passað sig, þau
eru varnarlaus og geta ekki stjórn-
að því hvort þau lenda í kynferðis-
legu ofbeldi. Oft er það líka frá hendi
einhvers sem þau treysta, einhvers
sem er stundum líka góður. En ef þau
lenda í því skiptir öllu máli, upp á að
ná aftur bata, að þau segi frá.“
Þverfaglegt úrræði
Rannsókn Sigrúnar á karlmönnum
sem fórnarlömbum kynferðisofbeld-
is er aðeins einn hluti af umfangs-
miklu doktorsverkefni hennar sem
snýst um að búa til þverfaglegt með-
ferðarúrræði fyrir þolendur kynferð-
isofbeldis. Að þeir geti leitað á einn
stað eftir allri þeirri aðstoð sem þeir
þurfa, hvort sem er frá lækni, sál-
fræðingi eða jafnvel listmeðferð-
arfræðingi. Slíkt úrræði er ekki til
hér á landi, enn sem komið er. Ekki
er víst hvort það verður að veru-
leika. „Vonandi getur þetta orðið. Við
höfum alla burði til þess og ættum
að geta bætt úrræðinu við á stöðum
sem við höfum nú þegar, svo sem á
Kristsnesi, Reykjalundi og á Heilsu-
hælinu í Hveragerði. Þar er fagfólk
fyrir, það þyrfti í raun bara að bæta
við nokkrum fagmanneskjum.“
Þetta er best
falda leynd-
armálið …
Konur eru
gerendur
líka og það
er alveg
kominn tími
til að tala
um það.