Fréttablaðið - 24.04.2010, Blaðsíða 64

Fréttablaðið - 24.04.2010, Blaðsíða 64
MENNING 6 Leiklist ★★★★ Íslandsklukkan eftir skáld- sögum Halldórs Laxness Leikstjóri og leikgerð: Benedikt Erlingsson. Leikmynd: Finnur Arnar Arnarsson. Lýsing: Halldór Örn Óskarsson, Lárus Björns- son. Tónlist: Eiríkur Stephensen og Hjörleifur Hjartarson. Gervi: Ingibjörg Huldarsdóttir. Búningar: Helga Björnsson. Fjölmargir íbúar þessa lands flækjast um í tötrum og drepast úr sulti og seyru auk þess sem þeir sem hlýða ekki lögum og reglum eru hýddir eða hreinlega drepnir. Konungur landsins, sem gefur ekki mikið fyrir þessa vesalinga, er að íhuga að selja landið, losna við það. Slíkar eru aðstæðurnar þegar kot- bóndanum Jóni Hreggviðssyni frá Rein verður á að stela sér snæris- spotta. Svona eru aðstæður fólks- ins í þessu landi í því verki sem Halldór Laxness lýsir í Íslands- klukkunni sem nú er sýnd í leik- gerð Benedikts Erlingssonar á stóra sviði Þjóðleikhússins. Þjóðleikhúsið á 60 ára afmæli og einmitt þetta verk var eitt af þremur sem valið var til sýning- ar þá er húsið hóf starfsemi sína. Nú, sextíu árum síðar, er eins og verkið hafi verið samið í gær fyrir nákvæmlega sömu þjóðina. Þessa þjóð sem er alltaf í einhverjum vandræðum með að skilja sjálfa sig. Benedikt Erlingsson ræðst í texta nóbelskáldsins og með var- færni, ást og virðingu fyrir þeim texta sem upphaflega var inntak þriggja bóka tekst honum að spegla afmæli Þjóðleikhússins, núverandi ástand þjóðarinnar og smíða saman spennandi sýningu. Þetta er í raun og veru sorgleg frásögn. Í þessari uppsetningu velur Benedikt Erlingsson að gera áhorfendum grein fyrir því að þeir eru í leikhúsi og það er eitt af góðu lausnunum. Þeir stólar sem urðu að víkja, þegar breytingarkynslóð óð með hamra inn í stóra sal Þjóð- leikhússins og reif niður efri sval- ir til að sameina þeim neðri, fá hér sjálfstætt hlutverk í ýmsum mynd- um fyrir utan að spegla áhorfend- ur sem um einn stóran skara hlust- enda væri að ræða, hvort heldur er uppi á sviðinu eða niðri í salnum. Sviðið er djúpt og það er notað og leikið á því öllu. Leikmyndin er meira skýr tákn um staði og atburði heldur en eiginleg leikmynd. Þetta er saga Jóns Hreggviðssonar, kot- bóndans dauðadæmda, sem lifir af hremmingar vegna þess eins að hann hefur kjark og trúir ekki öðru en að það sé hægt að berjast fyrir lífi sínu og kannski einhvers konar réttlæti. Þetta er saga Árna Árna- sonar sem drifinn er áfram af þörf- inni að bjarga því eina sem gerir þjóðina að þjóð, nefnilega bókun- um. Þetta er saga Snæfríðar, dótt- ur yfirvaldsins, sem er tákngerv- ingur hinnar breysku og um leið hinnar misskildu yfirstéttarstúlku, samskipta hennar við fjölskylduna, vonbiðilinn, drykkjusjúkan eigin- mann og Jón Hreggviðsson. Til að hjálpa framvindunni syngja og ramma inn stemning- una í leiknum þeir Eiríkur Step- hensen og Hjörleifur Hjartarson sem spila á hljóðfæri og eigin radd- ir með undragóðum söng Þórunn- ar Lárusdóttur sér til fulltingis ásamt leikhópnum í heild sinni og skapar þetta góðar krækjur yfir í nýjar málsgreinar frásagnarinnar en þar sem textinn er svo meitlaður og lifir svo sjálfstæðu lífi var full- mikið af límingum með aðstoð tón- anna. Skírskotun meira í írska tón- list og ópin í kvalasöngnum líkust því sem heyrst hefur hjá indjánum, örlítið langsótt. Hugmyndin góð en ofnotuð. Helstu annmarkar sýningarinn- ar var stirðleikinn og skorturinn á ástríðu millum þeirra Snæfríðar og Arneusar. Vitaskuld valdi hann bækur fram yfir hana en engu að síður var hann sólginn í nærveru hennar og sá blossi sem þar bær- ist undir er víðsfjarri í samskipt- um þeirra í þessari sýningu. Von- andi ná þau tökum á þessari spennu og hlutverkin verða heilsteypt- ari þegar frá líður. Það er furðu- legt að Snæfríður skuli ekki taka út neinn þroska sem greina má í tali hennar á þeim fimmtán árum sem líða milli þess sem hún miss- ir ástmanninn og þar til hún hittir hann að nýju. Það er svolítill ungl- ingafrekjutónn sem einkennir tal þessarar Snæfríðar. Lilja Nótt Þór- arinsdóttir var glæsileg á velli en hlýjuna og ástríðuna vantaði. Ingvar E. Sigurðsson smýgur inn í gervi Jóns Hreggviðssonar eins og sá sem þarf að bjarga lífi sínu með réttum blæbrigðum. Í fyrstu er hann hýddur og hýðing- in er smart gerð með pensilstrik- um sem máluð eru á hrygg hans meðan höggin dynja annars stað- ar. Mynd, hljóð og töfrar elta hvert annað uppi víðs vegar í sýning- unni. Ingvar E. Sigurðsson bregst ekki aðdáendum sínum frekar en endranær og það er alveg greini- legt að hann nýtur þess að takast á við þetta stórbrotna listaverk og spyrja enn einu sinni hinnar klassísku spurningar um það hve- nær maður drepur mann. Þetta er klassík og orðin ekki aðeins hljóm- uðu vel heldur ljómuðu einnig. Metta, hin danska greifafrú, sem Guðrúnu Snæfríði Gísladótt- ur tekst svo snilldarlega að sýna í skrumskældum líkama í stórkost- legu gervi, átti salinn þá er hún birtist eins og sambland af norn og brúðu. Allir þekktu hana hver í sinni nornafyrirmynd en engu að síður svo ámátleg og hreint frábær í svipbrigðum þegar hún spyr um þessa konu sem hennar eiginmaður hefur verið að hitta. Jón Guðmundsson Grindvíking sem Ilmur Kristjánsdóttir leikur, hlægir salinn sí og æ með kækjum sínum og orðatiltækjum. Engu að síður vaknar óneitanlega spurning- in, hví var ekki fenginn karlmaður í hlutverkið? Arnar Jónsson skilaði vel hlut- verki Eydalíns lögmanns. Vonbrigð- in og sársaukinn æpa úr skrums- kældum líkama hans þegar hann höktir frá sinni föllnu dóttur. Séra Sigurð dómkirkjuprest leikur Jón Páll Eyjólfsson og hinu kraumandi sálarstríði og angist þessa miðaldra ástsjúka klerks kemur hann til skila með mikilli sannfæringu. Björn Hlynur Haraldsson fer með hlutverk assesorsins Arn as- ar Arnæusar og sætir það furðu hversu tilþrifalítil persóna var þar á ferð. Hann átti sína spretti eins og þegar hann sat á rökstól- um með von Úffelen hinum þýska sem Kjartan Guðjónsson lék, en allt samspil hans og Snæfríðar var heldur dauft auk þess sem erf- itt var að trúa því að persóna með þetta yfirbragð væri fræðimaður af ákafa og guðs náð. Bæði Björn og Ilmur gera sig betur í kvik- myndum en á stóru sviði. Öldungar sýningarinnar römm- uðu söguna inn. Herdís Þorvalds- dóttir, fyrrverandi Snæfríður í hlutverki móður Jóns Hreggviðs- sonar, var sterk í sinni brothættu persónu og eins var kynnirinn, gamall maður í Bláskógum, sem Erlingur Gíslason lék með nota- lega nærveru. Björn Thors átti stjörnuleik í hlutverki Magnúsar í Bræðra- tungu. Hann beitir rödd sinni og skrokk þannig að hvorutveggja fyllir svið og sal í hvert sinn er hann birtist. Hvort heldur hann hrynur niður allar tröppurnar eða þeytist eins og slytti eftir sviðinu endilöngu. Samspil hans og Snæ- fríðar var sterkt og trúverðugt. Jón Marteinsson sem stelur Skáldu, helsta bókmenntaverki þjóðarinnar, og er sífullur, hefur í fyrri sýningum verið skondin per- sóna en hér var það fylliríið sem verður aðalinntak persónusköp- unar í meðförum Stefáns Halls Stefánssonar. Heldur þreytandi. Búningar voru einstaklega skemmtilegir fyrir svo utan að hið mikla sjónarspil þá er hún Kaup- inhöfn brennur hélt áhorfendum svo sannarlega föngnum, eins og að vera kominn inn í ítalska bíó- mynd. Síðar kápur Snæfríðar og ein- staklega fallegir kjólar vöktu aðdáun þeirra sem gaman hafa af glæsilegum klæðnaði. Helga Björnsson fatahönnuður á heiður- inn að búningum. Á frumsýningunni var lista- mönnunum fagnað af þeim ákafa og hrifningu sem inntak sýningar- innar vakti í brjóstum áhorfenda. Já, það er einmitt þetta sem tilvera okkar fjallar um þessa dagana, rétt- læti fyrir suma! Spurningin er bara hvort þetta verður svona áfram? Elísabet Brekkan Niðurstaða: Góð sýning þar sem leik- húsið er leikhús og öll textameðferð til fyrirmyndar. Jón Hreggviðsson er þjóðin Íslandsklukkan Jón Hreggviðsson á Rein í túlkun Ingvars E. Sigurðssonar en elstu menn sem muna fyrri Jóna segja hann efstan í röð margra. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN Sp ör e hf . Nánari upplýsingar og bókanir á www.fjallaleidsögumenn.is eða í síma 587 9999 | fjallaleidsogumenn@fjallaleidsogumenn.is GÖNGUFERÐIR UM ERLENDAR GRUNDIR Marokkó, Toubkal. 9 daga ganga um uppsveitir Atlasfjalla þar sem Toubkal er takmarkið. Leiðsögumaður: Leifur Örn Svavarsson. Brottför 1. ágúst. Innifalið í ferð er flug, gisting, fæði, trúss og íslensk fararstjórn. Verð kr. 249.000 Suðurhluti Grænlands. 8 daga lúxusferð um slóðir Eiríks Rauða í Eystribyggð. Brottfarir 10. og 24. júlí og 7. ágúst. Innifalið í ferð er flug, gisting, fæði, trúss og íslensk fararstjórn. Verð kr. 299.000 Ammassalikeyja, Grænland. 7 daga ævintýraferð um heillandi landslag með bakpoka og tjald. Brottfarir 19. júlí og 2. ágúst. Innifalið í ferð er flug, bátsferðir, gisting, fæði og íslensk fararstjórn. Verð kr. 192.000
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.