Fréttablaðið - 27.05.2010, Page 11

Fréttablaðið - 27.05.2010, Page 11
FIMMTUDAGUR 27. maí 2010 11 BANDARÍKIN Olíurisinn British Petroleum hefur viðurkennt að röð alvarlegra mistaka hafi verið gerð síðustu klukkustundirnar áður en borpallurinn á Mexíkó- flóa sprakk í loft upp. Ellefu manns fórust í spreng- ingunni og olía heldur áfram að streyma út í hafið. Það var fyrir rannsóknarnefnd bandaríska þingsins sem full- trúar BP viðurkenndu mistökin. Mælitæki hefðu sýnt að eitthvað mikið væri að í olíulindunum. Ekki hefði verið fylgst nógu vel með gasútstreymi og haldið var áfram að bora þrátt fyrir aðvaranir frá sjálfvirkum tækj- um. Tveim klukkustundum síðar sprakk borpallurinn. - ót Hunsuðu aðvaranir mæla: BP viðurkennir röð mistaka DANMÖRK Brian Mikkelsen, efnahags- og atvinnuráðherra Danmerkur, hefur lagt fram á danska þinginu frumvarp að lögum um ríkisábyrgð til handa flugfélögum og ferðaskrifstofum, sem hafa orðið fyrir tjóni af völd- um öskunnar frá Eyjafjallajökli. Hugmyndin er sú, að bankar og fjármálastofnanir, sem lána flugfélög- um eða ferðaskrifstofum, fái allt að 80 prósent tapsins til baka frá ríkinu ef lokun danska loftrýmisins vegna eldgoss veldur því að fyrirtækin geta ekki staðið undir afborgunum lána. Danska þjóðþingið hefur verið beðið um að hraða afgreiðslu máls- ins, svo nýju reglurnar geti tekið gildi strax í júní. - gb Flugraskanir vegna gossins: Danska ríkið veitir ábyrgð OLÍUBORPALLURINN Ellefu manns fórust þegar pallurinn sprakk. HEILBRIGÐISMÁL Rannsókn landlæknisembætt- isins, á tíðni óvæntra skaða á Landspítalanum og Sjúkrahúsinu á Akureyri er hafin. Hún er gerð í samvinnu við viðkomandi stofnanir og heilbrigðisvísindasvið Háskóla Íslands. Markmið rannsóknarinnar er að kanna tíðni óvæntra skaða á fyrrnefndum stofnun- um. Stuðst er við rannsóknaráætlanir sam- bærilegra rannsókna erlendis. Söfnun upp- lýsinga fer fram með skoðun eitt þúsund sjúkraskráa sem fundnar verða með slembi- úrtaki úr sjúklingabókhaldi stofnana fyrir árið 2009. Landlæknisembættið hefur fengið tvo styrki, samtals 700 þúsund krónur, til að gera umrædda rannsókn á ofangreindum sjúkra- húsum. Styrkina veita heilbrigðisráðuneytið og Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga. Umræða um öryggi sjúklinga er vaxandi í heiminum, en upplýsingar um fjölda óvæntra skaða á sjúkrahúsum hérlendis liggja ekki fyrir, að því er fram kemur á heimasíðu land- læknisembættisins. Ef niðurstöður úr erlend- um rannsóknum eru yfirfærðar á Ísland má gera ráð fyrir 50 til 300 dauðsföllum árlega hér á landi vegna óvæntra skaða. - jss Landlæknisembættið fær tvo rannsóknarstyrki upp á 700 þúsund krónur: Tíðni óvæntra skaða á spítölum í rannsókn LANDSPÍTALINN Rannsökuð verður tíðni óvæntra skaða á Landspítala háskólasjúkrahúsi og á sjúkrahúsinu á Akureyri. HEILBRIGÐISMÁL Ný dauðhreinsun- ardeild Landspítala tók formlega til starfa á Tunguhálsi 2 í Reykja- vík síðastliðinn föstudag. Fram kemur á vef Landspítala háskólasjúkrahúss að áður hafi verið starfræktar þrjár dauð- hreinsunardeildir, í Fossvogi, við Hringbraut og á Tunguhálsi. „Markmiðið með sameiningu deildanna er að ná fram hagræð- ingu, sparnaði og auka fagleg gæði,“ segir á vef LSH, en deildin þjónar meðal annars skurðdeild- um spítalans. - óká Ný dauðhreinsunardeild: Þrjár voru sam- einaðar í eina Fundi frestað vegna gosloka Vegna hugsanlegra gosloka var fundi lögreglu og fulltrúa sveitarstjórna sem halda átti á Hvolsvelli á miðvikudag frestað um óákveðinn tíma. „Aðeins gufustrókur stígur upp frá Eyjafjallajökli, mikil veðurblíða er á Suðurlandi og bjartsýni ríkir í sveitunum umhverfis jökulinn,“ segir á vef Ríkislögreglustjóra. JARÐVÁ Dorgveiði í gömlu höfninni Hafnarstjórn Faxaflóahafna samþykkti á dögunum að skilgreint verði svæði við Gömlu höfnina í Reykjavík þar sem almenningur er boðinn velkom- inn til dorgveiði. REYKJAVÍK Vi ns tri hr ey fin gi n - g ræ nt fr am bo ð vi ll be ita s ér fy rir ró ttæ ku m þ jó ðf él ag su m bó tu m a lm en ni ng i t il ha gs bó ta , h ef ja v er nd n át tú ru o g um hv er fis ti l v eg s á Ís la nd i o g tre ys ta b yg gð u m a llt la nd . H re yf in gi n er s am st ar fs ve ttv an gu r o g baráttutæki þeirra, sem vilja útrýma kynjamisrétti og tryggja jafnrétti, kvenfrelsi og aukinn jöfnuð í samfélaginu. Vinstrihreyfingin - grænt framboð vill byggja upp lýðræðislegt og réttlátt þjóð-skipulag grundvallað á virkri þátttöku alm ennings. Hreyfingin hafnar alræ ði m arkaðshyggjunnar og vill varðveita sjálfstæ ði þjóðarinnar og forræ ði yfir eigin auðlindum . Vinstrihreyfingin – græ nt fram boð vill .... // sjá m eira á w w w .vg.is/stefna/ Suðurgata 10 I opið kl. 13-18 alla daga og frá kl. 11 á kjördag I sími 517 0758 I reykjavik@vg.is I www.vgr.is Opinn fundur í Iðnó! Vinstri græn í Reykjavík boða til opins borgarafundar í Iðnó í kvöld kl. 20. Verið öll velkomin! Dagskrá fundarins Kolbeinn Stefánsson Brotið lýðræði - yfirgangur markaðarins. Sóley Tómasdóttir og Steingrímur J. Sigfússon. Umræður og fyrirspurnir. Auk þess koma fram Erpur Eyvindarson, Guðrún Gunnarsdóttir og Ugla Egilsdóttir. Fundinum stýra Björg Eva Erlendsdóttir og Líf Magneudóttir. 1. 2. 4. 5. 6. 3. 1. sæti Sóley Tómasdóttir 2. sæti Þorleifur Gunnlaugsson 3. sæti Líf Magneudóttir 4. sæti Elín Sigurðardóttir 5. sæti Davíð Stefánsson 6. sæti Hermann Valsson

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.