Fréttablaðið - 27.05.2010, Blaðsíða 17
FIMMTUDAGUR 27. maí 2010 17
„Við leggjum mesta áherslu á þessi mikilvægu
verkefni næstu fjögur árin; grunnskólann okkar
leikskólana, frístundaheimilin og alla þá þjónustu
sem Reykjavíkurborg rekur og þarf að reka. Við
viljum halda áfram að tryggja þá öflugu þjónustu
án þess að hækka skatta og með því að tryggja
áfram lágar gjaldskrár fyrir þá þjónustu,“ segir
Hanna Birna Kristjánsdóttir, borgarstjóri og oddviti
Sjálfstæðisflokksins. „Við erum einnig þeirrar skoð-
unar að næsta kjörtímabil þurfi að forgangsraða
kröftuglega í þágu hverfanna í borginni, í þágu
nærþjónustu og nærumhverfis. Þar þurfum við að
gera betur.“
Hanna Birna segir lýðræð-
ismálin vera mjög brýn. Farið
hafi verið í ákveðin verkefni á
kjörtímabilinu, hugmyndaþing
og kosningu um forgangsröð-
un í fjárhagsáætlun, svo dæmi
séu nefnd. Vilji sé til að vinna
lengra í þessa veru. Aukna
samvinnu þurfi við íbúa sem
og á milli borgarfulltrúa.
„Við höfum lagt ríka áherslu á það að halda
áfram þeirri samvinnu sem er á vettvangi borgar-
stjórnar,svo að pólitíkin breytist þannig að sam-
vinnan sé meiri. Við viljum halda þeim verkefnum
áfram.“
Atvinnumálin eru Sjálfstæðismönnum ofarlega í
huga og Hanna Birna segist telja að Reykjavíkurborg
hafi staðið sig mjög vel í þeim efnum og lagt um 26
milljarða króna í framkvæmdir árlega, tvö síðustu árin.
„Á þessum komandi fjórum árum er mjög mikilvægt
að standa vörð um þann árangur sem við höfum náð.
Við höfum forgangsraðað mjög ákveðið í þágu barna,
velferðar og menntunar og það munum við gera
áfram,“ segir Hanna Birna og bendir á að skorið hafi
verið niður um allt upp í 20 prósent í stjórnsýslu og
innkaupum en tæplega fjögur prósent í menntun.
Halda okkar góða starfi áfram
... verk- og tæknifræðingum til starfa. Í boði eru spennandi störf í alþjóðlegu
umhverfi. Mikil erlend samskipti. Mjög góð laun. Háskóli Íslands og Háskólinn í Reykjavík
bjóða nám sem veitir ungu fólki aðgang að þessum störfum.
Íslenskt atvinnulíf árið 2015
óskar eftir...
„Við leggjum
höfuðáherslu
á atvinnumálin
og erum eini
flokkurinn sem
er með ítarlega
aðgerðaáætlun
í atvinnumál-
um. Það er
bæði vegna
þess að sjö þúsund Reykvíkingar
eru atvinnulausir og það er mikil
sóun, en líka af því að skólar og vel-
ferð í borginni standa okkur mjög
nærri hjarta og við teljum ekki hægt
að ganga lengra í niðurskurði þar.
Til að geta fylgt því eftir verður að
draga úr atvinnuleysinu. Hvert pró-
sent atvinnulausra kostar borgarsjóð
milljarð,“ segir Dagur B. Eggertsson,
oddviti Samfylkingarinnar.
Dagur segir atvinnu þurfa til að
skapa tekjur og öryggi í borginni og
standa undir nauðsynlegri þjónustu.
Þess vegna leggi flokkurinn svo
gríðarlega áherslu á atvinnustefn-
una og voni að borgarbúar kynni sér
hana. Hún hafi virkað annars staðar,
líkt og borgarstjóri Árósa hafi vitnað
um í heimsókn sinni hingað. „Ég get
ekki undirstrikað það nógu mikið
hve atvinnan skiptir miklu máli.“
Samfylkingin leggur jafnframt
áherslu á að enn frekar sé horft á
höfuðborgarsvæðið sem eina heild
en nú er gert. Nánara samstarf þurfi
milli sveitarfélaganna á ýmsum
sviðum, ekki síst í skipulagsmálum.
Þá hafi flokkurinn svarað kalli um
endurnýjun.
„Við erum með nýtt fólk í fram-
boði sem kemur inn í pólitíkina
til þess að vinna annars vegar að
skipulagsmálum, Hjálmar Sveins-
son, og hins vegar að velferðar- og
samfélagsmálum, Bjarna Karlsson.
Þetta eru mjög sérstakir tímar sem
útheimta nýja nálgun á stjórnmálin.
Það þarf miklu nánara samstarf við
fólkið í borginni. Á öllum þessum
sviðum finnst okkur Reykjavík hafa
setið og beðið af sér kreppuna, í
stað þess að vera í fararbroddi eins
og hún á að vera.“
Atvinnuáætlun út
úr kreppunni
„Við viljum
auka gegnsæi,
virkja lýðræði
og koma á
andrúmslofti
þar sem fólk
getur talað
saman og
hlustað á hvert
annað,“ segir
Jón Gnarr, oddviti Besta flokksins.
„Við viljum meiri jöfnuð og stöðva
spillingu. Verði vart við spillingu
krefjumst við að látið sé af henni
eða í það minnsta að hún sé stund-
uð á gegnsæjan hátt fyrir opnum
tjöldum. Þannig geti allir borgarbúar
tekið upplýsta afstöðu gagnvart
henni. Við viljum gera borgina okkar
fallegri og skemmtilegri fyrir íbúana.
Við viljum skýr mörk á milli stjórn-
mála og stjórnsýslu.“
Besti flokkurinn vill vinna að lausn
vandamála í samvinnu við starfsfólk
borgarinnar, enda hafi það mest
vit á rekstrinum. Þá vill hann auka
veg almenningssamgangna og örari
ferðir strætó. „Við viljum ókeypis í
sund og frí handklæði fyrir alla. Við
viljum fjölskylduvæna borg þar sem
grunnþjónusta er skilvirk og skilj-
anleg. Við viljum gera Miklatún að
alvöru fjölskyldugarði þar sem eldri
borgarar, börn og t.a.m. hundaeig-
endur eigi sér góð og örugg svæði.
Við viljum breyta nafninu aftur í
Klambratún.“
Besti flokkurinn vill hlúa að
Orkuveitu Reykjavíkur, enda standi
hún illa eftir ævintýri undanfarinna
meirihluta. „Hún er særður gullkálfur
sem þarf að hjúkra og gera sterkan á
ný. Við lofum að setja rekstur Orku-
veitunnar og annarra fyrirtækja borg-
arinnar ekki vísvitandi á hausinn.“
Fólk tali saman og
hlusti hvert á annað