Fréttablaðið - 27.05.2010, Page 18
18 27. maí 2010 FIMMTUDAGUR
FRÁ DEGI TIL DAGS
greinar@frettabladid.is
FRÉTTABLAÐIÐ Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík SÍMI: 512 5000, ritstjorn@frettabladid.is FRÉTTASTJÓRAR: Arndís Þorgeirsdóttir arndis@frettabladid.is, Kristján Hjálmarsson, kristjan@frettabladid.is Trausti Hafliðason trausti@frettabladid.is og Höskuldur Daði Magnússon (dægurmál) hdm@frettabladid.is
MENNING: Páll Baldvin Baldvinsson fulltrúi ritstjóra pbb@frettabladid.is HELGAREFNI: Anna Margrét Björnsson amb@frettabladid.is og Sigríður Björg Tómasdóttir sigridur@frettabladid.is ALLT OG SÉRBLÖÐ: Roald Eyvindsson roald@frettabladid.is og Sólveig Gísladóttir solveig@frettabladid.is
ÍÞRÓTTIR: Henry Birgir Gunnarsson henry@frettabladid.is LJÓSMYNDIR: Pjetur Sigurðsson pjetur@frettabladid.is FRAMLEIÐSLUSTJÓRI: Kolbrún Ingibergsdóttir kolbrun@frettabladid.is
ÚTGÁFUFÉLAG: 365 miðlar ehf. STJÓRNARFORMAÐUR: Ingibjörg S. Pálmadóttir FORSTJÓRI OG ÚTGÁFUSTJÓRI: Ari Edwald
RITSTJÓRI: Ólafur Þ. Stephensen olafur@frettabladid.is AÐSTOÐARRITSTJÓRI: Steinunn Stefánsdóttir steinunn@frettabladid.is
Fréttablaðið kemur út í 90.000 eintökum og er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri. Einnig er hægt að
fá blaðið í völdum verslunum á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í
gagnabönkum án endurgjalds. Issn 1670-3871
Sveitar-
stjórnar-
kosningar
Steingrímur J.
Sigfússon
formaður Vinstri-
hreyfingarinnar
- græns framboðs
Katrín
Jakobsdóttir
varaformaður
Vinstrihreyfingar-
innar - græns
framboðs
HALLDÓR
Í sveitarstjórnarkosningunum á laugar-daginn hafa Íslendingar tækifæri til að
stíga næsta skref í uppgjöri sínu við þá
stjórnmálastefnu og flokka sem leiddu af
sér hrunið. Þessar kosningar eru ekki síður
mikilvægar en þær sem fram fóru fyrir
rúmu ári, þá í kjölfar efnahagshrunsins og
uppreisnar almennings gegn sitjandi vald-
höfum. Sú krafa sem almenningur setti
fram í þeim kosningum um róttækar breyt-
ingar og heiðarleg stjórnmál þarf líka að
heyrast á laugardaginn.
Á því rúma ári sem við Vinstri græn
höfum setið í ríkisstjórn hefur stærsta og
erfiðasta verkefnið verið að taka til eftir
óstjórn Sjálfstæðisflokksins og leggja
grunn að nýju samfélagi sem hefur háleit-
ari markmið en að „græða á daginn og
grilla á kvöldin“. Þetta verkefni bíður
einnig nýrra sveitarstjórna um allt land
að loknum kosningum. Þar þarf að skapa
traust og leggja grunn að nýju samfélagi
ekki síður en á landsvísu.
Við Vinstri græn leggjum nú sem fyrr
áherslu á heiðarlega og málefnalega kosn-
ingabaráttu. Gagnrýni okkar á ríkjandi
stjórnmálaviðhorf góðærisáranna undir-
strikar að hægt er að treysta pólitískri sýn
flokksins og að hún geti reynst okkur verð-
mæt í þeim erfiðu verkefnum sem fram
undan eru. Fyrir síðustu alþingiskosn-
ingar sögðum við kjósendum réttilega að
bæði þyrfti niðurskurð og tekjuöflun til að
takast á við vanda landsins. Aðrir flokkar
reyndu að spinna sig út úr vandanum en í
alþingiskosningunum 2009 virkaði spuninn
ekki lengur. Fólk vildi heiðarleg stjórnmál.
Ekki má heldur gleymast að mikilvægar
ákvarðanir sem hafa víðtæk áhrif eru
teknar í sveitarstjórnum. Nærtæk dæmi
eru ákvarðanir bæjarstjórnar Reykjanes-
bæjar og borgarstjórnar Reykjavíkur á
kjörtímabilinu sem leiddu til þess að þriðja
stærsta orkufyrirtæki landsins, HS Orka,
hefur farið úr samfélagslegri eigu í hendur
kanadíska fyrirtækisins Magma Energy.
Þá eru mörg helstu náttúruverðmæti
Íslendinga og valdið til að ráðstafa þeim í
höndum einstakra sveitarfélaga. Aðkoma
Vinstri grænna að sveitarstjórnum lands-
ins er því afar mikilvæg svo að ekki verði
gerð fleiri afdrifarík mistök á sveitar-
stjórnarstiginu.
Nú hefur almenningur tækifæri til að
leggja gróðahyggjuna endanlega á hilluna
og einbeita sér að því að verja velferð og
náttúru. Í þeim efnum eru Vinstri græn
öflugur bandamaður. Tökum næsta skref
að nýju og betra samfélagi á laugardaginn.
Kjósum Vinstri græn.
Tökum næsta skref
T
vær skoðanakannanir, sem Fréttablaðið og Morgunblað-
ið hafa látið gera, sýna að Bezti flokkurinn gæti orðið
stærsta stjórnmálaaflið í borgarstjórn Reykjavíkur eftir
kosningarnar á laugardag. Samkvæmt könnun Frétta-
blaðsins um síðustu helgi gæti flokkurinn náð hreinum
meirihluta, en samkvæmt könnun Morgunblaðsins myndi hann ná
sjö borgarfulltrúum af fimmtán.
Vinsældir Bezta flokksins
hafa ekki dvínað, þótt það verði
skýrara eftir því sem fleiri fram-
bjóðendur hans opna munninn,
að þeir hafa í raun enga stefnu í
ýmsum mikilvægum málum, sem
borgarstjórn Reykjavíkur þarf
að leysa úr. Fulltrúar annarra
flokka reyna að vera málefna-
legir og leggja til lausnir. Bezti flokkurinn snýr aðallega út úr eða
svarar út í hött – og stórum hluta kjósenda virðist vera nákvæmlega
sama. Þeir ætla samt að kjósa hann.
Þetta viðhorf ber vott um djúpstætt vantraust á hefðbundnu
flokkunum. Kjósendur í Reykjavík vilja augljóslega kenna þeim
lexíu – ekki bara sumum, heldur öllum. Tvennt ræður væntanlega
mestu um þetta sérkennilega andrúmsloft meðal kjósenda.
Annars vegar er skrípaleikurinn í kringum stöðug meirihluta-
skipti á fyrri hluta kjörtímabils núverandi borgarstjórnar. Ef annað
hefði ekki komið til, hefði mátt ætla að farið væri að fenna yfir
minninguna um þann hamagang allan, því að seinnipart kjörtíma-
bilsins hefur ríkt stöðugleiki og að mörgu leyti gott samstarf milli
flokkanna í borgarstjórn um að taka á erfiðum málum.
En þá kemur hitt til, sem er skýrsla rannsóknarnefndar Alþingis,
sem var að mörgu leyti áfellisdómur yfir flokkunum. Kjósendum
finnst klárlega vanta upp á að þeir hafi brugðizt við sem skyldi; af
sannri auðmýkt og vilja til að læra af mistökunum. Þá er ekki aðeins
átt við framboðin í borgarstjórn, heldur flokkana á landsvísu.
Vilji gömlu flokkarnir reyna að ná vopnum sínum á ný fyrir
laugardaginn, verða þeir að gera eitthvað verulega róttækt til að
sýna iðrun sína og umbótavilja. Sá sem gengur á undan í því efni er
líklegastur til að ná einhverju af atkvæðunum til baka.
Nú hljóta menn líka að vera farnir að velta fyrir sér meirihluta-
myndun eftir kosningar. Fari svo að Bezti flokkurinn nái hreinum
meirihluta, er hætt við að bæði frambjóðendur flokksins og kjós-
endur fyllist eftirsjá að morgni sunnudagsins. Framboðið þarf þá
að taka ábyrgð á stjórn stærsta sveitarfélags landsins, án þess að
vera með útfærða stefnu um hvernig á að fara að því.
Nái Bezti flokkurinn ekki meirihluta, er ekki sennilegt að hinir
flokkarnir vilji vinna með honum. Þá getur niðurstaðan orðið sú
að „þjóðstjórnarhugmynd“ Hönnu Birnu Kristjánsdóttur verði að
veruleika undir breyttum formerkjum; að gömlu flokkarnir myndi
saman meirihluta og neyðist þá til að vinna saman af heilindum
og með hag borgarbúa að leiðarljósi. Bezti flokkurinn gæti haldið
áfram að grínast í minnihluta – ef grínið endist þá í fjögur ár.
Þetta væri kannski ekkert afleit niðurstaða.
Sérkennilegt andrúmsloft í borginni tveimur
dögum fyrir kosningar:
Hvað gera
gömlu flokkarnir?
Ólafur Þ.
Stephensen
olafur@frettabladid.is
SKOÐUN
Afskaplega undarlegt
Eftirlitsstofnun EFTA sendi frá sér
ályktun í gær um að Íslendingum
bæri að greiða Icesave. Það þykir
Pétri Blöndal, þingmanni Sjálfstæðis-
flokksins „afskaplega undarlegt“. Máli
sínu til stuðnings nefnir hann að
Ísland hafi verið búið að innleiða
reglur Evrópusambandsins um
innlánstryggingar. „Á því kerfi
átti ekki að vera ríkisábyrgð
enda hefði það rekist á við
kröfur Evrópusam-
bandsins um að ekki
sé verið að mismuna
fyrirtækjum eftir
löndum,” segir Pétur.
Ekki svo undarlegt
Pétur Blöndal ætti að þekkja innleið-
ingu á reglum Evrópusambandsins
um innlánstryggingar ágætlega.
Hann tók þátt í umræðum um
málið á Alþingi árið 1996. Þá sagði
hann meðal annars: „Í reglum ESB
er gert ráð fyrir að stofnsettir séu
og starfræktir tryggingasjóðir
við innlánsstofnanir sem tryggi
innistæður undir 1,7 millj. kr.;
þ.e. 20 þús. ECU. Ekki kom fram í
nefndastarfinu hvað mundi gerast
ef þessir sjóðir dygðu ekki fyrir
töpum. Þó má óbeint lesa út
úr tilskipuninni að þá beri
ríkissjóður ábyrgð.“
Sinnaskipti
Nú er langt síðan þetta var og ljóst
að Pétur Blöndal hefur hreinlega
skipt um skoðun í millitíðinni. Skýr,
lögfræðileg rök hljóta að hafa ráðið
sinnaskiptunum. Að öðrum kosti er
það óneitanlega nokkuð bratt hjá
Pétri að kalla niðurstöðu ESA „undar-
lega“ í ljósi þess að eitt sinn var hann
sama sinnis. bergsteinn@frettabladid.is