Fréttablaðið - 27.05.2010, Qupperneq 28
27. MAÍ 2010 FIMMTUDAGUR2 ● fréttablaðið ● tjöld og útilega
Tími útileganna er runninn
upp og tjöldin grafin upp úr
geymslum. Þau eru þó óþörf
ef marka má Arnór Bjarka
Arnarson.
„Ég reyni að sofa úti eins mikið
og ég get. Ef ég fer með fjölskyld-
unni eða vinum í útilegur þá sef ég
yfirleitt fyrir utan tjaldið,“ segir
Arnór Bjarki, skáti til níu ára.
Hann segir hressandi að sofa úti
í fríska loftinu og gott að komast í
snertingu við náttúruna.
Arnór segir það kannski tengj-
ast þörf fyrir að sýnast karlmann-
legur að sofa úti en hann og félag-
ar hans metast gjarnan um það
hversu mörgum nóttum þeir ná
undir berum himni á sumri. Hann
viðurkennir þó að stundum sé kalt
í pokanum.
„Jú, jú, mér hefur oft orðið
skítkalt en maður finnur minnst
fyrir kuldanum þegar maður er
sofandi. Ég sef í ullarsokkum og
nota góðan svefnpoka. Það er ekki
verra að vera í ullarnærfötum en
þegar veðrið er gott er það ekki
nauðsynlegt. Einhvers staðar segir
að það sé gott fyrir ónæmiskerf-
ið að herja á það með smá kulda
af og til.“
Arnór ráðleggur þeim, sem lang-
ar að sofa úti undir berum himni,
að smeygja poka úr vatnsheldu efni
sem andar utan um svefnpokann
ef það skyldi rigna. Alltaf skuli
klæða sig eftir veðri og í fyrstu
ferð sé óvitlaust að hafa tjaldið
með til vonar og vara. Arnór hefur
sofið úti víða um land en einnig á
ferðalögum erlendis. Á einu ferða-
lagi um Þýskaland svaf hann allar
nætur undir berum himni.
„Ég var á ferð með nokkrum
félögum. Við vildum ferðast með
sem allra minnstan farangur og
vorum ekki með tjald. Eina nótt-
ina ákváðum við að gista í skógi
í Rínarlöndum og dreifðum bara
teppum á jörðina og lögðumst til
svefns. Um morguninn vakna ég
við það að verið er að sparka í mig
og þá er það landvörðurinn sem
átti þessa landspildu. Hann hélt
að ég væri róni sem hefði sofn-
að þarna,“ segir Arnór hlæjandi
og bætir við að það sé algengt að
hann sé tekinn í misgripum fyrir
útigangsmann þar sem hann ligg-
ur steinsofandi á víðavangi.
„Landvörðurinn leyfði okkur
síðan að gista áfram á svæðinu en
í skóginum átti að vera skátamót
seinna í vikunni svo við ákváðum
að vera með á því og gista bara
áfram undir berum himni. Við
reistum okkur reyndar smá skýli,
sem var ekki með þaki heldur bara
veggir og á tveimur hæðum en við
gistum á efri hæðinni. Þannig
sváfum við í Þýskalandi í tvær
vikur og fórum aldrei inn.“ - rat
Vaknaði við spark
Arnór Bjarki Arnarson, skáti og útivistarjaxl, sefur úti undir berum himni hvenær sem tækifæri gefst. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
● ÚTILEGUKORTIÐ Mörg stéttarfélög munu hafa útilegukortið til
sölu í sumar til sinna umbjóðenda, á lægra verði en almennt er við lýði.
Það fyrirkomulag gerði vart við sig á síðasta ári en á þessu vori hefur
þeim verkalýðsfélögum fjölgað stórlega sem bjóða upp á þennan
kost. Fullt verð á kortinu er 13.900 krónur og misjafnt er hversu
mikið stéttarfélögin niðurgreiða það til félagsmanna sinna.
Kortið veitir tveimur fullorðnum og fjórum börnum undir
16 ára aldri fría gistingu í fjórar nætur samfleytt á tjald-
svæðum samstarfsaðila Útilegukortsins sem eru dreifðir
um landið.
LEIÐSÖGUSKÓLINN
ICELAND TOURIST GUIDE SCHOOL
Síðumúli 34 - s: 517 1500 - www.malningalagerinn.is
Woodex á Íslandi frá árinu 1977.
Löngu landsþekkt fyrir endingu og gæði.
20%
Afsláttur af málningarvörum
Veljum
Ísland
0000
Hringdu í síma
ef blaðið berst ekki