Fréttablaðið - 27.05.2010, Síða 36

Fréttablaðið - 27.05.2010, Síða 36
Nú er alkóhólismi allt í kringum þig. Hefurðu spurt sjálfan þig: Af hverju ég? „Já, já. En ég pældi lítið í slíku fyrr en pabbi féll. Þetta var fullkomið líf sem við lifðum þann- ig að ég hafði engar áhyggjur. Það er hinsvegar ekki hægt að neita því að þetta er svoldið skrýtið hjá minni fjölskyldu því það er mikill alkóhólismi í fjölskyldunni,“ segir Kristmundur Axel en þessi kurteisi ungi maður skýtur síðan inn einu „afsak- ið orðbragðið“ og heldur svo áfram; „en nánast öll fokkings fjölskyldan mín hefur átt í vandræð- um með áfengi og fíkniefni.“ Pabbi aftur edrú Kristmundur er þakklátur fyrir að eiga edrú mömmu og pabba í dag. Hann gleymir því ekki að þakka fyrir hvað hann fékk gott uppeldi og tækifæri til að fá áhyggjulausa æsku með edrú pabba sem er nú kominn undir manna hendur í Svíþjóð. „Hann er búinn að vera í meðferð úti í fjóra eða fimma mánuði og ég er á leiðinni í heimsókn til hans. Það verður gaman enda ekkert nema já- kvæðir hlutir í gangi núna.“ Ömurlegar afleiðingar sjúkdómsins eru ofar- lega í huga Kristmunds. „Pabbi minn edrú er allt önnur manneskja en fíkillinn. Fyrir mér er þetta sitthvor maðurinn. Ég þekki pabba minn en ekki fíkilinn. Hann er eng- inn vinur minn. Sjúkdómurinn tekur öll völd og hann breytist í eitthvað skrímsli hreinlega,“ seg- ir Kristmundur og bendir á að afleiðingarnar séu skelfilegar. „Einn bróðir minn er í fangelsi fyrir morð. Annar bróðir minn er í fangelsi fyrir aðra minni- háttar glæpi. Og pabbi minn sat í fangelsi fyrir morð fyrir mörgum árum.“ 08 maí 2010 AF HVERJU KAUPIR ÞÚ ÁLFINN? Ég kaupi marga marga álfa vegna þess að allt í kringum mig er fólk í vímu. Allt í kringum mig er felu- leikurinn í algleymingi um áhrif og afleiðingar ofneyslu vímuefna. Allt í kringum mig stendur fólki ógn af lífinu sjálfu. Án SÁÁ og trúarinnar á æðri mátt er leikurinn fyrirfram tapaður. Ég kaupi álfana alla í minningu þeirra sem dáið hafa um aldur fram vegna fíkn- isjúkdóma. Það geta allir keypt í það minnsta 5 álfa. Einn fyrir hvern fíkil í fjölskyldunni er gott viðmið. Eða fyllist hús þitt þá af álfum? Jónína Benediktsdóttir framkvæmdastjóri Ég kaupi álfinn. Nú sem aldrei fyrr er mikilvægt að við leggjum okkar af mörkum þar sem fram- lög til SÁÁ hafa dregið verulega saman. Stöndum saman, sýnum ábyrgð og stuðning og kaupum álfinn. Hrafnhildur Hafsteinsdóttir verkefnastjóri Ég kaupi álf- inn til þess að styðja góðan mál- stað. Innan vébanda SÁÁ er á hverjum degi unnið þrekvirki við að hjálpa fólki sem lendir í klóm fíknar. Svo kaupi ég líka álfinn fyrir börnin mín. Þeim finnst hann fyndinn og skemmtilegur. Guðmundur Steingrímsson þingmaður Ég hef í starfi mínu komið að að- stoð við ungt fólk sem hefur lent á villigötum með líf sitt. Þar kynntist ég af eigin raun hinu miskunn- arlausa helvíti sem bíður þeirra sem misstíga sig og lenda í sjálfheldu með líf sitt. Þegar ég ræddi við unga fólkið sem voru búinn með aðstoð að ná tökum á lífi sínu, blasti við mér að mín börn gætu hæglega verið í þessum sporum. Þess vegna kaupi ég SÁÁ álfinn heilshugar og alltaf fleiri en einn. Ég á sex börn og 11 barnabörn, sem eru mín dýrmætasta eign. Guðmundur Gunnarsson, formaður Rafiðnaðarsambands Íslands „Pabbi var edrú í ellefu ár þar til hann féll 16. júní 2008,“ útskýrir rapparinn og tónlistarmaðurinn Kristmundur Axel Kristmundsson um tilurð lags- ins Komdu til baka sem hann flutti í Söngkeppni framhaldsskóla og sigraði á dögunum. „Pabbi, Kristmundur Sigurðsson, hafði átt sína vondu fortíð áður en við fórum að búa sam- an í Grafarvogi. Ég þekkti hann bara edrú og við vorum mjög nánir. Það voru bara við tveir í Graf- arvogi. Feðgarnir.“ Og lagið lýsir þessu sambandi þeirra feðga og er mjög tilfinningaríkt. Það hefur algerlega sleg- ið í gegn á Íslandi og þegar viðtalið var tekið stóð lagið í þriðja sæti yfir mest seldu lögin á Tónlist. is. Það hefur einnig átt fast sæti á vinsældarlista FM 957 og klifrað hátt á Lagalistanum sem mælir hvaða lög eru mest spiluð á Íslandi. Einlægur rappari Kristmundur flutti ungur inn á pabba sinn en mamma hans er líka alkóhólisti. Hún er nú, sam- kvæmt Kristmundi, búinn að vera edrú í bráð- um áratug en hlutirnir æxluðust þannig að Krist- mundur bjó alltaf hjá pabba sínum. „Mamma er frábær og við búum saman núna ásamt systur minni. Þær hafa reynst mér ótrú- lega vel og fjölskyldan mín er sterk þrátt fyrir allt sem á hefur gengið,“ segir Kristmundur en bæði mamma hans og systir starfa á heimili fyrir heim- ilislausa menn, sem er á Njálsgötu. Hvað kemur til að þú sért svona einlægur rappari en ekki töffari eins og þeir eru svo oft? „Ég hef alveg gefið út svona hörð lög líka en finnst samt mikilvægt að semja lög um eitthvað sem skiptir mig miklu máli,“ segir Kristmundur en í lögunum hans talar hann ekki niður til fólks og er ekkert fyrir að lofa dóp eða pening eins og segir í lagi hans, Illað, sem er vinsælt meðal ungs fólks: „Rappa ekki um dóp og pening því hvorugt er kúl.“ Alkóhólismi í fjölskyldunni Kristmundur er fæddur 1993 og ætti að fá bíl- próf síðar á árinu. Hann er ekta Grafarvog- sungmenni. Flutti ungur í Engjahverfið og gekk í Engjaskóla öll sín tíu grunnskólaár. Í dag er hann á almennri braut í Borgarholtsskóla og hangir mest með vini sínum Daniel Alvin en þeir byrjuðu að rappa saman fyrir fjórum eða fimm árum. PABBI MINN EDRÚ ER ALLT ÖNNUR MANNESKJA EN FÍKILLINN. FYRIR MÉR ER ÞETTA SITTHVOR MAÐURINN. ÉG ÞEKKI PABBA MINN EN EKKI FÍKILINN. HANN ER ENGINN VINUR MINN KRISTMUNDUR AXEL KRISTMUNDSSON er ungur rappari sem vann Söngkeppni framhaldsskóla með lagi um pabba sinn sem féll 16. Júní 2008. Þeir höfðu búið saman tveir í Grafarvogi, edrú pabbi og strákurinn hans, í ellefu ár. Á einu bretti missti Kristmundur pabba sinn og heimilið sitt en hann býr nú hjá mömmu sinni og þakkar fyrir að pabbi sinn sé nú í meðferð í Svíþjóð. RAPPA EKKI UM DÓP OG PENING ÞVÍ HVORUGT ER KÚL >> KRISTMUNDUR AXEL „MAMMA ER FRÁBÆR OG V MYND: HARI@SKUGGAVERK.COM

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.