Fréttablaðið


Fréttablaðið - 27.05.2010, Qupperneq 42

Fréttablaðið - 27.05.2010, Qupperneq 42
14 maí 2010 AF HVERJU KAUPIR ÞÚ ÁLFINN? Ég kaupi álfinn af því að hann er mjúkur og sætur og gleður aug- að. Þegar ég horfi á álfinn minn gleður það mig líka að hugsa til þess að með því að kaupa hann legg ég mitt af mörkum til að styrkja ungar manneskjur sem eru að koma lífinu sínu í lag eftir erfiða tíma. Meðferðarúrræði fyrir ungt fólk verða að vera til staðar í samfélaginu. Við stönd- um vörð um unga fólkið okkar og bregðumst því ekki. Kaupum álfinn! Kristín Þórunn Tómasdóttir prestur Allt of oft missum við ungt fólk í blóma lífsins vegna ofneyslu lyfja. Starf SÁÁ skiptir sköpum og getur bjargað mannslífum. Þess vegna kaupi ég álfinn og hvet landsmenn til að leggja málefninu lið. Ágústa Johnson framkvæmdarstjóri Ég kaupi álfinn í þeirri von að geta þannig lagt smávægilegt lið í bar- áttunni við ljóta kallinn í brennivíninu. Hann hefur svo mikinn eyðilegging- armátt þessi kall þegar hann fær að vaða uppi, eins og hann getur verið ljúfur þegar hann er ekki í baráttuhug. En vöðvarnir hans eru víst alltaf spenntir og við vitum ekki hvenær hann reiðir til höggs og hver verður fyrir. Þá er eins gott að til sé batterí með viðbúnaðaráætlun i gangi. Þar kemur álfurinn sterkur inn. Sólveig Baldursdóttir ritstjóri Vegna þess að ég hef átt því láni að fagna að sjá ættingja og vini eign- ast nýtt líf að lokinni áfengismeð- ferð hjá SÁÁ. Við slíkt þjóðþri- fastarf er gott að styðja. Árni Páll Árnason félagsmálaráðherra FJÖLSKYLDAN SKEMMTIR SÉR SAMAN Í SUMAR: ÚTIHÁTÍÐ AÐ HLÖÐUM UM VERSLUNARMANNAHELGINA Í fyrra var margt um manninn og sólskin alla helgina um Verslunar- mannahelgina að Hlöðum á Hvalfjarð- arströnd. Tjaldstæði og öll aðstaða í félagsheimilinu að Hlöðum er til fyr- irmyndar. Á síðasta ári var þvílíkt stuð og ráðgert að bæta um betur í ár. Í fyrra skemmtu kempur á borð við Geir Ólafsson, Gylfa Ægisson, KK, Poetrix og fleiri auk þess sem listasmiðja var sett upp fyrir börnin, farið í leiki og margt annað skemmtilegt gert. Sundlaug á staðnum! ÚTIHÁTÍÐ SÁÁ býður til útihátíðar að Hlöðum um Verslunarmannahelgina. Félagsstarf SÁÁ er með blómlegra móti og fyrir utan hefðbundinn rekst- ur er SÁÁ fólk duglegt að skipuleggja hvers kyns fjáraflanir, sem og æð- islega tónleika. En Vonarsalurinn í Efstaleyti er sérstaklega góður til tónleikahalds og í vetur mætti hver stórstjarnan á fætur annarri til að halda tónleika til styrktar SÁÁ. Auk þess að hafa reglulega félags- vist og dansiböll í Von, ásamt þorra- blóti, vorfagnaði, dansnámskeið- um og svo framvegis, þá er salurinn reglulega notaður undir tólf spora ráðstefnur. Þar koma erlendir ræðu- menn og ræða bata frá áfengis- og vímuefnafíkn. Næsta slíka ráðstefna er ráðgerð um miðjan september. Félags- starf SÁÁ er rekið í sjálf- boðastarfi og geta allir tekið þátt. Hilmar Krist- ensson leigubílstjóri hef- ur verið ein aðalsprautan í félagsstarfinu lengi og hann segir félagsstarfið mikilvægan þátt í góðu og heilbrygðu edrúlífi. FÉLAGSSTARF SÁÁ er í miklum blóma: Tónleikar, böll GEIR TÓK LAGIÐ Geir gladdi tónleikagesti. PÁLL ÓSKAR Í VON Páll Óskar mætti ásamt fríðu föruneyti í Von og hélt ótrúlega tónleika. Allt til styrktar SÁÁ í skugga niðurskurðar. Frábær mæting var á þessa yndislegu tónleika. VEISLUSTJÓRINN OG GEIR Hér ræðir Geir skipulagsmál við veislustjórann, Torfa Geirmundsson rakara, á árlegu þorrablóti SÁÁ. YFIRLÆKNIR Á ÞORRABLÓTI Þórarinn Tyrfingsson, yfirlæknir á Vogi, er glymjandi ræðumaður og hér fer hann á kostum á Þorrablóti SÁÁ. GÓÐ MÆTING Á TÓNLEIKA Það er alltaf troðið út að dyrum í Von þegar góðir tónleikar eru annars vegar. KRISTJÁN JÓHANNSSON Í vetur kom sjálfur Kristján Jóhannsson og söng í Von. ÞRÍR GÓÐIR BAKSVIÐS Egill Ólafsson, Ragnar Bjarnason og Þorgeir Ástvaldsson. SKÁLDIÐ Einar Már Guðmundsson fór mikinn á þorrablótinu og sýndi gamalkunna takta. Alveg frábær. AA FUNDIR Í VON Sunnudagur kl. 10:30 í stóra salnum - Opinn fundur Mánudagur kl. 12:00 í litla salnum - Opinn fundur Mánudagur kl. 19:30 í litla salnum Fimmtudagur kl. 20:30 í stóra salnum - Víkingar Fimmtudagur kl. 20:30 í litla salnum - Pólskur fundur Föstudagur kl. 18:00 í litla salnum - konur AL-ANON FUNDIR Í VON Þriðjudagur kl. 20:00 í litla salnum. GA-FUNDIR Í VON Miðvikudagur kl. 19:15 í litla salnum. OA-FUNDIR Í VON Fimmtudagur kl. 20:30 í hópherbergi uppi. SOS-FUNDIR Í VON Miðvikudagur kl. 18:05 í hópherbergi uppi. KJARNAKONUR Í VON Miðvikudagur kl. 20:00 í litla salnum. Nánari upplýsing- ar í síma 530 7600.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.