Fréttablaðið - 27.05.2010, Qupperneq 45
FIMMTUDAGUR 27. MAÍ 2010
Ellingsen hefur mikla reynslu
í sölu á öllu því sem tilheyrir
ferðamennsku. Fyrirtækið er
tæplega aldargamalt, stofnað
árið 1916. Björn K. Björnsson
segir verslunina vera dóta-
kassa fyrir ferðafólk.
„Aðalsmerki Ellingsen er per-
sónuleg þjónusta. Enda þarf ferða-
fólk oft góða aðstoð við völ á rétt-
um búnaði þar sem fólk ætlar að
ferðast við mismunandi aðstæð-
ur,“ segir Björn.
Í tjöldum, svefnpokum, bakpok-
um og ýmsum fleiri ferðavörum
býður Ellingsen upp á hið þekkta
útivistarmerki Coleman. „Tjöldin
er hægt að fá eins, tveggja, þriggja
og allt upp í fjögurra manna en
þau þola öll mjög vel íslenskar að-
stæður. Þessi sem eru eins manns
og henta göngufólki eru sérstak-
lega létt, einungis 1,95 kíló, og eru
með smelluólum til að festa á bak-
pokann. Tjöldin, sem þola veður
og vind, eru lágreist þannig að
fólk skríður inn í þau og þau eiga
að verja ferðalanga betur í þeirra
fjallaferðum,“ segir Björn.
Svefnpokana frá Coleman er
hægt að fá í nokkrum gerðum,
eftir því hvort ferðast er um há-
sumar eða að vetri til og þá hvar
er ferðast. Þannig er hægt að fá
poka sem hægt er að nota í allt að
16 stiga frosti. „Coleman-bakpok-
ana er svo hægt að fá 50+ kílóa,
með góðri grind og bakstuðningi,
og svo léttari poka fyrir minni
farangur. Hægt er að bæta bún-
aði utan á suma pokana, hengja
stafi og annað, fyrir mestu ferða-
garpana. 50 kílóa pokinn er til að
mynda með vösum fyrir kort, fest-
ingar fyrir göngustafi og fleira
til.“
Annar nauðsynlegur göngu-
búnaður er að sögn Björns til að
mynda göngustafir, gönguskór,
sem eru til fyrir erfiðar göngur
og léttari, legghlífar, almennur
hlífðarfatnaður og hlý undirföt.
„Einnig eru undirfötin, úr meri-
no-ull, sem við erum með frá De-
vold, einn besti tveggja laga ullar-
undirfatnaður sem völ er á. Fötin
eru með mjög góðri öndun og helst
fólki þurrt þrátt fyrir að svitna því
fötin flytja raka frá líkamanum,“
segir Björn og bætir við að fötin
henti einnig þeim vel sem eru við-
kvæmir fyrir ull. Einnig er á boð-
stólum útivistarfatnaður og göngu-
skór frá Columbia í góðu úrvali.
„Annars hvetjum við fólk bara
til að koma og skoða. Hér er ævin-
týraheimur. Ferðagrillin frá Cole-
man hafa notið mikilla vinsælda
og svo má nefna ferðavagna,
ferðaborð og -stóla og svo er allt
til fyrir stang- og skotveiðina.“
Ævintýri fyrir ferðalanga
Björn K. Björnsson hjá Ellingsen segir úrvalið mikið í versluninni að Fiskislóð 1. Hér
er Grétar Þorgeirsson starfsmaður Ellingsen með veiðistöng. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Ellingsen er sannkallaður ævintýraheimur.
●FARIÐ AÐ ÖLLU MEÐ GÁT Í ÚTILEGUNNI Sjóvá Forvarnarhús býður upp á eftirfarandi heilræði sem
gott er að hafa í huga í útilegunni á vefsíðu sinni, forvarnarhusid.is:
● Akið hægt um tjaldsvæðið og verið sérstaklega á
varðbergi þegar bakkað er. Börn geta verið að leik við
götuslóðina.
● Ef börn eru með í för, látið þau ekki hlaupa um tjald-
svæðið án þess að kynna ykkur umhverfið fyrst.
● Farið varlega með gas nálægt tjaldinu. Ef eldað er á
gasgrilli, þarf að passa að ekki kvikni í gróðri.
● Ef eldað er á kolagrilli, þarf að staðsetja það þannig
að eldur nái ekki í tjald eða gróður. Aldrei sprauta
íkveikilegi á logandi kolagrill. Gangið tryggilega frá
grillinu eftir notkun og ekki kasta heitum kolum þar
sem hætta er á íkveikju.
● Ef prímus er notaður til að hita upp tjald, staðsetjið
hann vel svo hann velti ekki og ekki hreyfa við honum
þegar hann er í gangi. Farið aldrei að sofa með hann í
gangi. Geymið gaskútana utan tjaldsins þegar þeir eru
ekki í notkun.
● Geymið ekki eldspýtur eða eggvopn, s.s. beitta hnífa
eða skæri þar sem börn ná til.
● Geymið aldrei verðmæti í tjöldum. Þau eru auðveld
skotmörk þjófa.
Silver Ridge™ Softshell
Góður útivistarjakki sem
hentar vel í rigningu því
hann þornar fljótt og andar
vel með Omni-Shield®
vatns- og öndunarfilmu.
Herrar
Verð: 36.990.-
First Traverse™ Fleece
Hoodie
Frábær flíspeysa með hettu.
Aðsniðin og mjúk með
Omni-Shield® vatns- og
öndunarfilmu. Stillanlegur
faldur og rennilás á vösum.
96% pólýester, 4% elastine.
Dömur
Verð: 22.990.-
Silver Ridge™ II
Frábærar útivistarbuxur með
rennilásum á skálmum. Hægt að renna
skálmum af og gera að stuttbuxum.
Buxurnar eru léttar og endingargóðar,
fljótþornandi með Omni-Dry® og
Omni-Shade® UPF 30 sólarvörn.
Tvöfalt 100 % nylon.
Herrar
Verð: 17.990.-
Silver Ridge™ Cargo
Frábærar útivistarbuxur með ren-
nilásum á skálmum sem gera þér kleift
að skipta um skófatnað með hraði.
Hægt er að renna skálmum af og gera
stuttbuxur. Omni-Shade® UPF 30
sólarvörn og Omni-Dry® vatnsvörn.
Dömur
Verð: 19.900.-
Tagori
Sterkbyggðir og léttir gönguskór.
Styðja vel við fæturna og vernda
gegn hnjaski. Innlegg með Agion®
lyktarvörn. Léttur og grófur Omni-
Grip® sóli sem virkar vel í möl og á
grófu undirlagi.
Dömur og herrar
Verð: 17.990.-
Newton Ridge™
Léttir og þægilegir gönguskór fyrir
styttri ferðir. Vatnshelt leður með auka
vörn við hæl. Útskiptanlegt innlegg.
Dömur og herrar
Verð: 27.990
REYKJAVÍK: Fiskislóð 1 • Sími 580 8500 - AKUREYRI: Tryggvabraut 1–3 • Sími 460 3630