Fréttablaðið - 02.10.2010, Síða 52
2. október 2010 LAUG-6
„Það kæmi sér vel ef barnið
hefði skilning á þessum samn-
ingi, en vissulega er ég farin að
finna fyrir því að barnið vilji út.
Ég fór reyndar viku fram yfir
áætlaðan fæðingartíma þegar ég
átti son minn fyrir sex árum og er
því vongóð um að þetta barn láti
líka aðeins bíða eftir sér,“ segir
Fanney, sem ól son sinn í Pek-
ing þar sem hún þá starfaði hjá
íslenska sendiráðinu.
„Sú fæðing endaði með keis-
ara en okkur þótti viðeigandi að
eignast íslenskan keisara í Kína
og fjölga mannkyninu í fjölmenn-
asta ríki heims. Ég var því ekkert
að drífa mig of mikið heim,“ segir
Fanney og skellir upp úr.
Hún segist hafa séð fram á dauð-
an tíma í september og ákveðið að
gefa kost á sér í sjálfboðastarf-
ið. „Ég er vön að hafa nóg að gera
og hef enga þörf fyrir að hvíla
mig, enda full vellíðunar, hress
og kraftmikil fram á síðasta með-
göngudag. Mér var falið að búa til
kynningarefni fyrir söfnunina og
lagði áherslu á að efla þátttöku
framhaldsskólanema í söfnunni
í ár, en í því fólst líka að halda
sjálf kynningar í sumum þeirra.
Ég veit því að samstarfsfólk mitt
hjá Rauða krossinum hefur beðið
og vonað að ég missti ekki vatnið í
miðjum klíðum, og reyni að halda
í mér eins lengi og þarf,“ segir hún
kát.
Fanney er friðarstyrkþegi Rot-
ary-hreyfingarinnar, en styrkur-
inn er veittur til meistaranáms
í alþjóðamálum með sérstaka
áherslu á friðarfræði og átaka-
lausnir. Og hvað gera friðarfræð-
ingar? „Þeir reyna auðvitað að
bjarga heiminum og það má gera
með ýmsum hætti,“ segir Fanney,
sem var framkvæmdastjóri Kópa-
vogsdeildar Rauða krossins um ára-
bil og var í starfsnámi hjá Samein-
uðu þjóðunum í New York. „Vinna
friðarfræðinga fer einmitt fram
hjá slíkum stofnunum, en einnig
í friðargæslu, hjá stjórnvöldum
og í einkageiranum, og markmið-
ið er alltaf að stuðla að heimsfriði
og leysa átök,“ segir Fanney, og í
sjálfboðastarfinu nú reynir einmitt
á þann skóla Fanneyjar.
„Með því að ganga til góðs reyn-
ir Rauði krossinn að bæta heim-
inn. Nú er safnað fyrir fátækustu
ríki Afríku, eins og hjálparstarf-
ið í Malaví og í Síerra Leóne fyrir
endurhæfingu barnahermanna, og
reynt að byggja upp betra samfé-
lag eftir mikil átök,“ segir Fanney,
sem þrátt fyrir mikið annríki hefur
einnig dúllað sér við að gera allt til-
búið heima fyrir nýjasta fjölskyldu-
meðliminn.
„Vaggan, fötin og taubleiurnar
bíða klárar heima og mikil tilhlökk-
un að takast á við móðurhlutverkið.
Keisari er ekki fyrir fram ákveðinn
nú og það er skemmtileg áskorun að
fara sjálf af stað og koma barninu í
heiminn.“ thordis@frettabladid.is
„Það kæmi sér vel ef barnið hefði skilning á þessum samningi, en vissulega er ég
farin að finna fyrir að barnið vilji út,“ segir Fanney. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Framhald af forsíðu
Framfarafélag Borgfirðinga heldur í dag kynningarfund á ylrækt. Þór-
hallur Bjarnason, garðyrkjubóndi á Laugalandi, segir frá ylrækt í héraðinu
og vannýttum möguleikum innan sem utan húss. Fundurinn fer fram í
Logalandi og hefst klukkan 14.
Mannlegt friðarmerki verður
myndað á Klambratúni í kvöld
klukkan 20. Sams konar friðar-
merki eru mynduð um allan
heim á þessum degi, fæðingar-
degi Mahatma Gandhi.
Klambratún verður vettvangur
mannlegs friðarmerkis í kvöld
klukkan 20 en þá ætlar fjöldi fólks
með kyndla að raða sér upp í frið-
armerki.
Að myndun friðarmerkisins
stendur fjöldi samtaka, meðal ann-
ars Kvenfélagasamband Íslands,
Samtök hernaðarandstæðinga,
UNIFEM, UNICEF og fleiri.
Sendiherra Indlands flytur ræðu
og hægt verður að kaupa kyndla á
staðnum á 500 krónur.
Á síðasta ári tóku um 400 manns
þátt og héldu blysum á lofti sem
merki um ósk sína um heim án
ofbeldis.
Í fréttatilkynningu frá samtök-
unum sem að framtakinu standa
segir meðal annars: „Ofbeldi
er grundvallarvandamál okkar
tíma. Það er ekki aðeins líkamlegt
og birtist í stríði og barsmíðum -
það birtist einnig sem efnahags-
legt ofbeldi, sálrænt, trúarlegt,
kynferðislegt og kynþáttabundið
ofbeldi.“ - rat
Friðarmerki á túni
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/A
N
TO
N
400 manns mynduðu
friðarmerkið á Klambra-
túni fyrir ári. Í kvöld á að
endurtaka leikinn.