Fréttablaðið - 09.10.2010, Side 40
4 fjölskyldan
matur
hollt og gott í litla maga ...
NÆRING BARNA Á heimasíðu Lýðheilsustöðvar, lydheilsustod.is, geta leikskóla-
kennarar, dagforeldrar og aðrir nálgast upplýsingar um næringu barna í sérstökum
bæklingi. Hann geymir meðal annars töflu sem sýnir hvaða fæðutegundir henta
barninu á hverju aldursskeiði.
„Ég held að foreldrar geri sér
ekki grein fyrir hvað börn hafa
gaman af að elda, en ég hef eldað
með mínum börnum frá því þau
komust á legg og þau orðin mikil
matargöt með ansi þróaðan mat-
arsmekk. Ég hef aldrei þurft að
segja þeim að eldavélin sé heit
eða hnífarnir hættulegir, því þau
passa sig á þessu sjálf með því að
vera þátttakendur í eldamennsk-
unni frá upphafi og læra eðlilega
umgengni í eldhúsi,“ segir Sigurð-
ur Gíslason matreiðslumeistari í
Veitingaturninum, en hann bjó til
freistandi barnauppskriftir Stóru
Disney-matreiðslubókarinnar sem
út kom á dögunum á vegum Eddu,
ásamt eiginkonu sinni Berglindi
Sigmarsdóttur og matreiðslumeist-
urunum Stefáni Inga Svanssyni og
Óskari Finnssyni.
„Í þrjá mánuði upphugsuðum
við réttu uppskriftirnar, prófuð-
um þær sjálf og létum krakkana
gera þær, en mest áskorun fólst
í því að gera hlutina einfalda því
bókin er fyrst og fremst hugs-
uð fyrir krakka. Þá vildum við
gera bókina að eins konar stóra
bróður gömlu Disney-matreiðslu-
bókarinnar því margt nýtt hrá-
efni hefur orðið sjálfsagt á borð-
um Íslendinga síðan hún kom út,
eins og til dæmis parmesanostur.
Að öðru leyti er bókin ný og fersk,
með lifandi ljósmyndum og fjöl-
breyttum uppskriftum sem hæfa
öllum tilefnum,“ segir Sigurð-
ur sem notaði sínar fínustu veit-
ingahúsauppskriftir ásamt heim-
ilisuppskriftum frúarinnar sem
grunn í barnauppskriftir bókar-
innar sem allar eru merktar með
erfiðleikastuðlum frá 1 til 3, eftir
því hvort aðstoð foreldra þurfi með
Börn matreiða með
hjálp Mikka músar
Nýja Stóra Disney-matreiðslubókin hefur hitt íslensk börn í hjartastað og á það sannar-
lega skilið. Þar er vandlega hugsað fyrir ljúffengum krásum fyrir öll hugsanleg tilefni í lífi
barna og þeim leyft að spreyta sig sjálf heima í eldhúsi.
DÝRMÆTAR STUNDIR Sigurður Gíslason matreiðslumeistari með sonum sínum Antoni Frey tveggja ára og
Sigmari Snæ tíu ára í indælum smákökubakstri heima. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Frá og með morgundeginum verður veitingastaðurinn Nítjánda í
Turninum opnaður sem kvöldverðarstaður, en hingað til hefur
hann verið þekktur sem hádegisverðarstaður með rómuðu
brönshlaðborði um helgar.
„Okkur fannst vanta valkost á móti þeim að fara með krakkana
út að borða á skyndibitastað og gefa þeim djúpsteikta nagga og
franskar. Allar fjölskyldur eiga að geta upplifað að fara saman
huggulega út að borða, við dúkuð borð og
kertaljós, en á sama verði og á skyndibitastöðum.
Á kvöldin, sem og áfram í hádeginu,
bjóðum við nú flotta, holla og einfalda
barnarétti úr Disney-
bókinni, en
verðum líka með
fullorðinsrétti eins
og indverskt
tandoori og fleira
freistandi í góðum fíling.
Hér geta svo börnin brugðið
á leik og skemmt sér
konunglega í risastóru
Disney-herbergi
meðan foreldrarnir
njóta útsýnis og
rómantíkur yfir borðum,“ segir
Sigurður Gíslason, matreiðslumeistari á
Nítjándu.
Út að borða með
Disney á Nítjándu
225 g púðursykur
125 g smjör (mjúkt eða við
stofuhita)
2 egg
190 g hveiti
1/2 tsk. salt
sléttfull teskeið matarsódi
2 tsk. vanilludropar
500 g súkkulaði, saxað
Áhöld
Bökunarplata, hrærivél, hnífur
Aðferð
Öllu blandað saman í skál og
hnoðað. Gott að setja skál í frysti
í 10-15 mín. og svo hnoða í rúllu.
Skerið deigrúllu í 1 cm þykkar
sneiðar. Leggið á plötu og bakið
við 180°C í 10 mínútur.
Súkkulaðibitakökur
Dásamlegar súkkulaðibitakökur
sem gott er að maula með ísköldu
mjólkurglasi. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
AUKIN ÞEKKING - NÝ TÆKIFÆRI
og þeim tíma sem tekur að matbúa,
en einnig er sýnt hvernig þrífa á
hendur, ganga vel um eldhúsið,
gæta sín á hættum og fleira.
„Að elda í samvinnu við börn er
rosalega skemmtileg stund og þá
borða börnin líka frekar það sem
á boðstólum er. Ég ræddi við kokk-
inn í skóla sonar míns sem hafði þá
verið með pasta í tómatsósu í mat-
inn. Þá hafði Sigmar Snær labbað
til kokksins og spurt hvort mögu-
legt væri að fá parmesan eða Mald-
on-salt út á. Auðvitað eiga börn að
kunna þetta og því miður gleymist
þessi umræða svolítið. Því það er
börnum góður skóli að vinna hrá-
efnið frá grunni og skiptir miklu
að upplifa þá ánægju að gera hlut-
ina sjálf, svo þau verði ekki að
unglingum sem lifa á pitsum og
hamborgurum þegar þau flytja að
heiman. Ef við leyfum þeim sjálf-
um að sjóða pasta og gera góða
sósu bæta þau fleiru í flóruna sem
þau borða og kynnast fjölbreytt-
ari matargerð,“ segir Sigurður
sem sjálfur fékk að hjálpa móður
sinni í eldhúsinu sem barn, en fékk
ekki matreiðslubakteríuna fyrr en
hann fór með pabba sínum til sjós
og fékk ekki annað pláss en kokks-
ins, en þá þurfti hann að hringja í
mömmu til að geta soðið kartöflur
handa áhöfninni.
„Ég er ánægðastur með hversu
ferskur maturinn er í bókinni en
vinsælasta uppskriftin á mínu
heimili er þessi af súkkulaðibita-
smákökunum sem við bökum bara
á jólum, en einnig nostalgískar
brauðtertur fyrir okkur foreldr-
ana og græna kakan í afmælisupp-
skriftunum.“ - þlg