Morgunn - 01.06.1938, Qupperneq 25
MORGUNN
19
metorða í kirkjunni. En ég hugsaði oft um það, hvílíka við-
urkenning hann mundi fá í himnaríki. Ég heyrði vin minn —
skipstjóra — sem hafði þekt manninn, þegar ég hafði þekt
hann, og hafði sjálfur fyrir mörgum árum farið inn í hvíld-
arhöfn himnaríkis, segja frá viðtökunum, sem hann hafði
fengið þar. Sjálfur hafði skipstjórinn verið viðstaddur.
Frelsarinn hafði verið að fara fram hjá, þegar tveir
bjartir [englar fluttu hinn nýlátna mann inn í aldingarð
himnaríkis. Þegar frelsarinn kom þangað sem þeir stóðu,
lagði frelsarinn hönd sína á höfuð mannsins og sagði:
Þú hefir starfað vel, góði og trúlyndi þjónn! Velkominn heim!
Og engla hópurinn tók undir þetta: »velkominn heim!
velkominn heim!«
Hin harða barátta lifsins skilur eftir ör og viðkvæm sár,
sem sjaldan læknast hér. En þau læknast þar. Þar er eng-
in hrygð samfara því að minnast þeirra rauna og sorga,
sem hér hefir verið tekið hraustlega. Englarnir líta á þær
sem reynslu, er hefir haft ríkulegt endurgjald i för með
sér, af því að með því hefir fengist þekking og máttur,
sem hefir gert þá færa um að þjóna öðrum, sem hafa
orðið fyrir samskonar raunum.
Ef þeir menn gætu aðeins gert sér grein fyrir því, að
umhverfis þá eru margir englar, er borið hafa þær byrðar
á jörðunni, sem þeir verða nú að bera, og ef þeir vildu
færa sér í nyt hjálp þeirra, sem boðin er svo fúslega og
af svo miklum kærleika, þá mundu byrðar þeirra sann-
arlega verða léttari, bjartara yfir lífi þeirra og sálir þeirra
fengju þá ljós frá fögnuði mikillar og öruggrar vonar, og
þoir mundu ávallt keppast eftir að berjast hinni góðu bar-
áttu, hvað ójafn sem leikurinn kynni að sýnast.
Bæði í Gamla og Nýja testamentinu eru margar frá-
sagnir um samband með mönnum og englum. Aldrei er
sagt frá slíkum atburðum eins og þeir séu svo langt fyrir
ofan venjulega mannlega reynslu, að ástæða sé til að telja
þá ótrúlega. Þvert á móti er sagt frá þeim eins og þeir
væru alveg eins eðlilegir og hver önnur hlið á andlegri
2*