Morgunn - 01.06.1938, Síða 120
114
MORGUNN
og ritaði mikið um þá grein vísinda, andlegar lækningar
og lík efni. Hann trúði mjög á sálrænar Iækningar og var
sótt til hans af miklum fjölda manna, einkum nú á síðari
árum í taugasjúkdómum. Hann var varaforseti í Sálarrann-
sóknafélaginu í Leeds,ogþótthann byrjaði sálarrannsóknir sín-
ar guðstrúarleysingi, þá var hann orðinn algjörlega sannfærður
um framhaldslíf. í erindi, sem hann nýlega flutti (3. mars,
sjá erindið hér í heftinu) sagði hann: »Ég get nú sagt að
dauðinn er að eins yfirför og nýtt tækifæri, og ég get
bætt við að ég ekki að eins trúi þessu, ég veit þad.«
Dr. Telling hafði glögt ákveðna skoðun á andlegum lækn-
ingum og sagði um þær: nú á tímum munu sjálfir læknarnir
kannast við það, að hafa má læknandi áhrif á líkams líf-
færin með mætti hugsunarinnar, og ef sá máttur er auk-
inn eins og hann mest mætti verða á óendanlega hátt stig
með trú á andleg efni, þá hygg ég að nútíma visindalækn-
ing mundi áreiðanlega auðgast að mjög miklum áhrifakrafti.
Þetta er það sem ég hygg að raunverulega ætti að vera
skilið við andlegar lækningar«.
J. Arthur Hill gamall og nafnkunnur sálarrannsókna-
maður ritar um Maxwell Telling:
Ég átti þvi láni að fagna, að vera vinur Dr. Maxwells
Tellings og einnig sjúklingur hans. Ég á honum að þakka
20 ár af lífi mínu.
Dr. Telling hafði eitthvað heyrt um mig, sem varð til
þess að kunningsskapur tókst með okkur. Ég hafði um
mörg ár gengið með þrálátan hjartasjúkdóm. Hann bauð
mér vinsamlega að rannsaka mig og dróg úr mér tennur
sem rotbólga var í og batnaði mér við það. Eftir læknis-
aðgerðina töluðum við um sálarrannsóknir, sem hann var
þá nýlega farinn að fá áhuga fyrir. Hann var efagjarn, en
fordómalaus Hann sagði að ef hann gæti trúað á fram-
haldslíf, þá gæti hann veitt mikla huggun sjúklingum, sem
það væri sorgleg skylda sín að svifta batavon. Ég benti
honum á, að ganga í Sálarrannsóknarfélagið og gjörði hann