Morgunn - 01.12.1941, Blaðsíða 52
150
MORGUNN
Sá yðar, sem syndlaus er . . .
Eftir séra Svein Víking.
Mál frú Láru Ágústsdóttur, miðils í Reykjavík, hefir að
vonum vakið mikla athygli og umtal um þvert og endi-
langt landið. En hún hefir, svo sem kunnugt er, verið
ákærð fyrir það, að hafa haft í frammi blekkingar og svik
á miðilsfundum sínum. Hefir hún, ásamt nokkrum mönn-
um öðrum, sem talið er að hafi verið meðsekir í þessu at-
hæfi, hlotið dóm í undirrétti. Mun málinu síðan hafa ver-
ið skotið til hæstaréttar, og bíður þar endanlegra úrslita.
Þar sem enn hafa eigi verið birtar ítarlegar skýrslur
um rannsókn þessara mála, er ekki enn þá unnt að mynda
sér rökstudda skoðun um það, hve víðtækar þessar blekk-
ingatilraunir hafa verið. Mig hefir því dálítið furðað á
því, hve almenningur hefir verið fljótur að kveða upp sinn
dóm í þessu máli, og miklu fljótari en sjálfir dómararnir,
og hve sá dómur hefir hjá mörgum verið vægðarlaus og
strangur.
Ég hefi heyrt þær raddir, sem af þeim mjög ófullkomnu
fréttum, sem blöð og útvarp á sínum tíma fluttu um þetta
mál, hafa dregið þær ályktanir og borið sér í munn þær
fullyrðingar, að eigi að eins hafi allt miðilsstarf frú Láru
Ágústsdóttur verið frá upphafi einber svik og svívirðileg-
ur blekkingavefur, heldur muni og allir svokallaðir miðlar
vera og hafa jafnan verið svikarar og störf þeirra einber
bragðvísi og loddaraleikur. Minna má nú gagn gera. Og
ekki er það nú til dæmis almennt talin alveg óræk sönnun
fyrir því, að allir menn séu þjófar og illmenni, þó ein-
hverjum verði það á að hnupla ýsubandi frá granna sín-
um. Eða hvaða allsgáðum manni mundi í alvöru detta í
hug, að ailt starf læknanna væri einskis nýtur hégómi og
svartasta blekking, jafnvel þótt einhver úr þeirra hópi