Morgunn - 01.12.1941, Page 91
MORGUNN
189
_ . Geta þeir menn verið margir, sem trúa
því i alvöru, að það sé leiðin til viðreisnar
kirkjunni, að hafnar séu árásir á séra Harald Níelsson,
látinn, og starf hans fyrir kristni og kirkju þjóðarinnar?
Vita ekki þeir menn, sem vilja leita úrlausna til aukinna
kirkjulegra áhrifa með þjóðinni, að mjög mikill hluti
þjóðarinnar tók með óvenjulegum fögnuði og feginleik
þeim boðskap, sem hann barðist fyrir innan kirkjunnar,
og harmar það enn, kirkjunnar vegna, að honum skyldi
ekki verða fleiri starfsára auðið í hennar þjónustu? Þeir
menn, sem að framgangi kristninnar í landinu vilja vinna,
eru skyldugir til að vita þetta, og kirkjunnar vegna eru
þeir skyldugir til að sitja á strák sínum þegar þá langar
til að ausa auri og óþverra á minningu þess manns, sem
meiri ljóma ber af en nokkurs annars af kirkjunnar
mönnum á íslandi síðustu aldirnar. Menn harma það, að
áhrif kirkjunnar eru minni en skyldi, og MORGUNN
hefir frá því er hann hóf göngu sína jafnan haldið því
fram, að áhrif heilbrigðrar kirkju væru blessun hverri
þjóð. En hvernig geta heilvita menn búizt við, að unnt sé
að auka áhrif kirkjunnar með því, að ráðast á ævistarf
þess mannsins, sem hefir verið eini áhrifamaðurinn í stór-
um stíl innan kirkjunnar nú í langa tið? Sigurði Einars-
syni verður um margt annað fremur brugðið en vits-
munaskort og því er furðulegt, að hann skuli ekki sjá
þetta, hvað sem líður tilhneigingum hans til íhaldssemi
í trúarskoðunum.
Játning
Lady Doyle.
Á s. 1. ári andaðist í Englandi Lady Doyle,
ekkja hins heimsfræga rithöfundar og
spiritista Sir A. Conan Doyle. í erfðaskrá
sinni segir hún á þessa leið: „Ég óska að gera þá yfir-
lýsing hér, að fram til síðustu stundar var ég „hundrað
prósent spiritisti", og að ég skoða þekking spiritismans
einhverja þá mestu blessun, sem mér hefir fallið í skaut
á lífsleiðinni“.