Fréttablaðið - 27.11.2010, Blaðsíða 6
6 27. nóvember 2010 LAUGARDAGUR
Kanarí
11. desember - 10 nætur
Frá kr. 89.900
Verð kr. 89.900.-
Netverð á mann, m.v. 2 fullorðna í studio
íbúð á Parquemar í 10 nætur.
Netverð á mann.
Verð kr. 119.900.
– með „öllu inniföldu“
Netverð á mann, m.v. 2 fullorðna í herbergi á
Dunas Mirador í 10 nætur með „öllu inniföldu”.
Netverð á mann.
Nú bjóðum við allra síðustu sætin í sólina í desember á Kanaríeyjum á frábæru tilboði. Í boði er m.a.
frábært sértilboð á Parquemar, sem er vel staðsett íbúðarhótel á ensku ströndinni. Dunas Mirador
með „öllu inniföldu“. Þetta er gott hótel í Dunas hótelkeðjunni, sem er staðsett í Sonnenland í
norðurhluta Maspalomas. Stór og fallegur hótelgarður með tveimur sundlaugarsvæðum og góðri
sólbaðsaðstöðu. Aðeins örfá sæti í boði.
ALÞINGI Bæði félagsmálanefnd
Alþingis og fjárlaganefnd hyggj-
ast funda um málefni meðferð-
arheimilisins Árbótar í kjöl-
far umfjöllunar Fréttablaðsins
undanfarna viku.
Fundur félagsmálanefndar
verður haldinn á mánudaginn. Það
voru sjálfstæðismennirnir Unnur
Brá Konráðsdóttir og Pétur H.
Blöndal sem óskuðu eftir fundin-
um til að ræða málefni meðferðar-
heimila, einkum Götusmiðjunnar
og Árbótar.
Sigríður Ingibjörg Ingadóttir,
formaður félagsmálanefndar,
segir að á fundinn hafi verið boð-
aðir fulltrúar félagsmálaráðu-
neytisins og Árbótarheimilisins,
auk lögmanns Götusmiðjunnar.
Sá síðastnefndi hefur lýst því yfir
að hann muni kvarta til umboðs-
manns Alþingis vegna brots á
jafnræðisreglu. Bragi Guðbrands-
son, forstjóri Barnaverndarstofu,
verður erlendis og kemst því ekki
á fundinn. Hann verður líklega
boðaður á fund með nefndinni
síðar.
„Við munum funda um þetta
mál,“ segir Oddný G. Harðar-
dóttir, formaður fjárlaganefndar.
Tímasetningin hafi þó ekki verið
ákveðin né hverjir verði fengnir
á fundinn.
- sh
Félagsmálanefnd og fjárlaganefnd hyggjast funda um meðferðarheimili:
Fundað um Árbót í þingnefndum
ODDNÝ G.
HARÐARDÓTTIR
SIGRÍÐUR INGI-
BJÖRG INGADÓTTIR
Ætlar þú að kjósa til stjórnlaga-
þings?
JÁ 55,3%
NEI 44,7%
SPURNING DAGSINS Í DAG:
Er jólaundirbúningur hafinn á
þínu heimili?
Segðu þína skoðun á visir.is
VÍSINDI Fræðasetur þriðja geirans svokallaða
tók formlega til starfa í Háskóla Íslands (HÍ)
í gær. Um er að ræða stofnun sem mun fjalla
um þau félagasamtök eða stofnanir sem ekki
eru reknar af opinberum aðilum og ekki í hagn-
aðarskyni. Að setrinu standa Félagsráðgjafar-
deild og Stjórnmálafræðideild HÍ ásamt sam-
tökunum Almannaheill.
Í tilefni af opnun fræðasetursins kom sænski
prófessorinn Lars Svedberg, einn af fremstu
fræðimönnum þessa sviðs, til landsins og hélt
fyrirlestur um stöðu þriðja geirans á kreppu-
tíma.
Í samtali við Fréttablaðið segist Svedberg þó
ekki geta spáð fyrir um hvaða áhrif efnahags-
hrunið muni hafa á þriðja geirann hér á landi.
Hins vegar megi margt læra af fyrri dýfum í
íslensku efnahagslífi.
„Þið hafið upplifað mun meiri sveiflur í
þessum málum en hin Norðurlöndin og það er
merkilegt að sjá að þið hafið jafnan komið vel út
úr þessum lægðum, þannig að ég held að ykkur
muni takast það aftur.“
Þriðji geirinn muni eflaust snúa sterkur til
baka, enda liggi það í eðli þess konar starfs.
„Þriðji geirinn virðist oft standa í skugga
markaðarins eða ríkisins en fyrr eða síðar
kemur hann aftur upp og skilar sínu verki. Í
gegnum árin hafa slíkir hópar komið og farið,
en í stað þeirra koma jafnmargir og jafnvel
fleiri.“
Áhyggjuefni er, að mati Svedbergs, sú til-
hneiging að krafist sé breytinga á starfsemi
innan þriðja geirans. Stöðlun og samræming
við aðra geira geti grafið undan hefðbundnu
starfi.
„Það er tvíbent, þar sem það getur haft þann
kost að starfsemi aðila í þriðja geiranum getur
orðið faglegri og skilvirkari. Hins vegar er
líka hætta á því að þeir missi tengingu sína við
almenning, en það er afar mikilvægt samfélag-
inu að allir hafi tækifæri á að láta rödd sína
heyrast á þeim vettvangi.“
Það er því álit hans að þriðji geirinn verði að
halda sérstöðu sinni sem vettvangur þar sem
almenningur geti tjáð skoðanir sínar og veitt
ríkjandi öflum aðhald. thorgils@frettabladid.is
Þriðji geirinn er mikils virði
fyrir samfélagið í heild sinni
Fræðasetur þriðja geirans hefur starfsemi sína. Stofnunin mun rannsaka félagasamtök og stofnanir sem
starfa utan einkageirans og hins opinbera. Prófessor segir þriðja geirann vettvang skoðanaskipta og aðhald.
SKOÐAR ÞRIÐJA GEIRANN Dr. Lars Svedberg flutti erindi á opnun
Fræðaseturs þriðja geirans. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
„Þriðji geirinn samanstendur af
samtökum og stofnunum sem
starfa utan hins opinbera og eru
hvorki hagnaðardreifandi, né
hagnaðarsæknar. [...]
Sjálfboðaliðar eru einkennandi
fyrir þriðja geirann og hefur hann
þar sérstöðu gagnvart hinum
tveimur geirunum.“
Af vef Háskólans í Reykjavík
Þriðji geirinn
Óverulegar breytingar á tekjum
Í nýlegri rannsókn Steinunnar Hrafnsdóttur og Ómars H. Kristmunds-
sonar, forstöðumanna Fræðasetursins um þriðja geirann, kemur í
ljós að tekjur félagasamtaka í velferðarþjónustu hafa ekki dregist
verulega saman í kjölfar hrunsins. Litið var til áranna 2008 og 2009,
en þar kom í ljós að tekjur voru svipaðar hjá um þriðjungi svarenda,
samdráttur varð hjá 37 prósentum og tekjur jukust hjá 31 prósenti.
Þegar nánar er rýnt í tölurnar kemur í ljós að tekjur vegna
félagsgjalda og þjónustugjalda hafa ekki breyst mikið og styrkir
frá einstaklingum minnka ekki mikið, en framlög frá fyrirtækjum,
ríki, sveitarfélögum og ýmsum sjóðum hafa dregist frekar saman.
Mismikið þó.
Telja höfundar viðbúið að tekjur félagasamtaka skerðist enn frekar
á næsta ári, þar sem framlög frá ríkinu séu mikilvægur tekjustofn
margra þeirra.
Rannsóknin var gerð með því að senda spurningalista á úrtak
sem í voru 144 samtök og bárust svör frá 116 þeirra.
Hvernig hafa tekjur félaga breyst í
heild frá byrjun árs 2008 til loka árs
2009?
Haldist svipaðar
Samdráttur
á tekjum
Aukning á tekjum
31%
37%
32%
Þriðji geirinn virðist
oft standa í skugga
markaðarins eða ríkisins en
fyrr eða síðar kemur hann
aftur upp og skilar sínu verki.
DR. LARS SVEDBERG
PRÓFESSOR
NÝJA-SJÁLAND, AP Þriðja spreng-
ingin varð í gær í námunni á
Nýja-Sjálandi þar sem 29 námu-
verkamenn fórust eftir fyrstu
sprenginguna sem varð viku fyrr.
Ekkert manntjón varð að þessu
sinni, enda hefur náman verið
mannlaus vegna hættu á spreng-
ingum vegna eiturgufna sem lekið
hafa inn í hana úr kolajarðlögum.
Enn hefur ekki þótt þorandi
að fara inn í göngin til að ná í lík
mannanna sem fórust. Talið er að
nokkrar vikur líði þangað til því
verki lýkur. - gb
Þriðja sprengingin í námunni:
Ekki þorandi
að ná í líkin
FERÐAMÁL Bandaríska fréttastöðin
CNN telur að Reykjavík sé einn
af tíu bestu stöðum í heiminum til
að verja jólunum á. Frá þessu er
greint á vef Ferðamálastofu.
Meðal þess sem CNN nefnir
sem aðdráttarafl er að hér séu
þrettán jólasveinar og jólaþorp í
Hafnarfirði. Þá er vísað til trúar
á álfa og huldufólk hér á landi.
„Þá kemur fram að fólk byrji
að fagna jólunum strax í nóv-
ember með jólahlaðborðum. Að
sjálfsögðu er svo klykkt út með
frásögn af hinni miklu flugelda-
sýningu á gamlárskvöld og þrett-
ándanum,“ segir á vef Ferðamála-
stofu. - óká
Reykjavík nefnd á lista CNN:
Eftirsóknarvert
að halda hér jól
REYKJANESBÆR Bæjarráð Reykja-
nesbæjar ógilti nýlega yfirlýs-
ingu frá október 2007 um að ekki
yrðu innheimt opinber gjöld af
fasteignum á Ásbrú.
Í bókun bæjarráðs kemur fram
að bæjaryfirvöld telji að forsendu-
brestur hafi orðið þar sem ríkið
hafi tekið til sín um 2.500 millj-
ónir í tekjur af Ásbrú án þess að
skila því til þróunar á svæðinu. Á
meðan hafi bærinn borið um 700
miljóna króna kostnað af svæð-
inu umfram tekjur og telja bæjar-
yfirvöld að það gangi ekki upp í
erfiðu árferði.
Breyting þessi tekur gildi um
áramót. - þj
Reykjanesbær ógildir afslátt:
Vilja auknar
tekjur af Ásbrú
ÓGILDA AFSLÁTT Reykjanesbær hefur
afnumið afslátt á opinberum gjöldum af
fasteignum á Ásbrú. FRÉTTABLAÐIÐ/HEIÐA
DÓMSMÁL Farið verður vandlega yfir nýjan dóm
Hæstaréttar í máli þar sem banka var heimilað að
ganga á ábyrgðarmenn lántaka sem fengið hafði
greiðsluaðlögun, segir Árni Páll Árnason, efnahags-
og viðskiptaráðherra.
Dómurinn byggir á því að ákvæði laga um
greiðsluaðlögun standist ekki eignarréttarákvæði
stjórnarskrárinnar. Óheimilt sé að meina bönkum
að krefja ábyrgðarmenn um greiðslur vegna lána
fólks sem fær greiðsluaðlögun.
Árni segir dóminn ekki girða alfarið fyrir lög-
gjöf sem nái því markmiði að hlífa ábyrgðarmönn-
unum. Það sé mikilvægur hluti laga um greiðsluað-
lögun, þar sem ella sé hætta á að lausn á vanda eins
skuldara komi öðrum í greiðsluvanda sem þá þurfi
að leysa.
Í yfirlýsingu frá embætti umboðsmanns skuldara
kemur fram að dómurinn nái aðeins til þeirra sem
fengu samning um greiðsluaðlögun samþykktan af
dómstólum. Dómurinn hafi ekki áhrif á þá sem hafi
gert frjálsa samninga eins og þá sem umboðsmaður
hafi haft milligöngu um.
Þar segir að falli ábyrgð ekki niður samhliða
samningi um greiðsluaðlögun eigi ábyrgðarmaður-
inn kröfu á þann sem fengið hafi greiðsluaðlögun.
Það geti leitt til þess að skuldarinn fari í þrot, og
greiðsluaðlögunin verði fyrir bí. - bj
Ráðherra segir dóm Hæstaréttar afdráttarlausan í máli um ábyrgðarmenn:
Leita að svigrúmi í lögunum
ÁRNI PÁLL ÁRNA-
SON Efnahags- og
viðskiptaráðherra
segir að farið
verði vandlega
yfir nýjan dóm
Hæstaréttar.
KJÖRKASSINN