Fréttablaðið


Fréttablaðið - 27.11.2010, Qupperneq 92

Fréttablaðið - 27.11.2010, Qupperneq 92
60 27. nóvember 2010 LAUGARDAGUR M argir vilja ganga svo langt að halda því fram að val fólks milli Roll- ing Stones og Bítlanna sé grundvallarspurn- ing í menningarsögunni og hafa heilu bækurnar verið skrifaðar um málið, enda um tvær af allra vinsæl- ustu hljómsveitum mannkynssögunnar að ræða. Snemma var dregin upp mynd af sveitunum tveimur sem fullkomnum andstæðum, að Bítlarnir væru hreinu og stroknu mömmustrákarnir en meðlimir Stones væru eins langt frá drauma- tengdasonum og unnt væri. Fjölmiðlar, umboðsmenn og útgáfufyrirtæki voru þó að mestu leyti ábyrg fyrir staðalímynd- unum, enda voru meðlimir Bítlanna og Rolling Stones flestir vinir eða kunn- ingjar þegar sviðsljósinu sleppti. Lemmy, forvígismaður rokksveitar- innar Motörhead, gaf lítið fyrir þennan algenga samanburð í ævisögu sinni, þar sem segir meðal annars: „Bítlarnir voru harðir naglar. Brian Epstein [umboðs- maður Bítlanna] hreinsaði þá fyrir fjöld- ann, en þeir voru alls engar gungur … Rolling Stones voru stelpustrákarnir. Þeir voru allir menntaskólanemar frá útjaðri London. Þeir fluttu inn í borgina til að svelta en það var þeirra eigin val, til að virðast óvirðulegri.“ Töffarar og skoppandi asnar Hér áður fyrr höfðu ungir breskir tónlistarmenn gjarnan þau áhrif á íslensk ungmenni að þau sáu sig knúin til að skipta sér í flokka eftir því hvaða hljómsveitum þau fylgdu að málum. Kjartan Guðmundsson rifjaði upp þrjú slík tilfelli með aðdáendum Bítlanna og Rolling Stones á sjöunda áratugnum, Wham! og Duran Duran á þeim níunda og Blur og Oasis á þeim tíunda. Lísa Pálsdóttir útvarpskona varð strax hrifin af Bítlunum þegar hún heyrði fyrst í þeim sem tíu ára gamall nemandi í Melaskóla. „Ég hafði aðeins fylgst með Presley og ámóta rokkurum, en þegar Bítlarnir komu tóku bara allir andköf. Þetta var ótrúlegt. Ástæðan fyrir því að ég hélt strax meira upp á Bítlana en Rolling Stones gæti verið sú að það var auðveldara að læra að syngja Bítlalögin. Þau lærði ég strax og söng auðvitað eftir eyranu því ég kunni enga ensku að ráði, ég man til dæmis að ég söng alltaf „Can‘t Bobby Love“ í staðinn fyrir „Can‘t Buy Me Love“ og vorkenndi þessum Bobby sem gat ekki elskað ógurlega. Stónstextarnir voru flóknari og Jagger söng ekki jafn skýra laglínu og Lennon og McCartney. Ég man líka að flestum töffarastrákanna þóttu Bítlarnir vera algjörir kettlingar, enda er Stones meira strákaband. Mig grunar þó að flestir hafi þeir verið Bítla aðdáendur undir niðri, þótt þeir hafi ekki látið það í ljós á sínum tíma,“ segir Lísa. „Þegar ég heyrði fyrst í Rolling Stones árið 1964 bjó ég í Vogunum. Inni á Sunnutorgi og í Álfheim- unum var strákagengi sem ég var í og við kölluðum okkur Rollingana. Á þessum tíma var maður annaðhvort Stones eða Beatles, það var bara þannig, og við fylgdum Stones að málum,“ segir Arnar Sigurbjörnsson tónlistarmaður, sem hefur meðal annars leikið á gítar og í hljómsveitunum Flowers og Brimkló. Arnar segir Stones hafa verið meiri töffara en Bítlana og það hafi leikið stórt hlutverk í aðdáun hans á hljómsveitinni. „Sumir vina minna hölluðust að Bítlunum og ég minnist þess nú ekki að ríkt hafi mikið hatur milli þessara tveggja hópa. Menn voru jú að rífa kjaft og deila um hvor sveitin væri betri, Stones-mönnum þótti kannski flott að drekka Jim Beam fyrir allra augum meðan Bítlaaðdáendurnir voru meira að fela þetta. Alveg eins og hljómsveitirnar sjálfar. Bítlarnir voru í einkennisbúningum en Stones voru meira fyrir að láta allt flakka,“ segir Arnar og hlær, en á þess- um tíma var hann meðlimur í aðdáendaklúbbi Stones og fékk þannig sendar plötur og varning tengdan hljómsveitinni frá Bretlandi. Árið 1965 fór hann á tónleika með Stones í Royal Albert Hall í London, sem voru hljóðritaðir og síðar gefnir út á plötunni Got Live If You Want It. Alls hefur hann séð sveitina fimm sinnum á tónleikum og hefur hug á að bæta einum í viðbót við á næsta ári, enda harður Stones-maður enn þann dag í dag. LÆRÐI TEXTANA EFTIR EYRANU Lísu Pálsdóttur útvarpskonu grunar að flestir aðdáendur Rolling Stones hafi líka kunnað að meta Bítlana undir niðri. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA GOT LIVE Arnar Sigurbjörnsson tónlistarmaður hreifst af töffaraskapnum hjá Stones. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON ROLLINGARNIR Í VOGUNUMAUÐVELDARA AÐ LÆRA BÍTLALÖGIN ROLLING STONESGEGNBÍTLARNIR BARIST Á BANASPJÓTUM Ungir, breskir karlmenn í hljómsveitum á borð við Bítlana, Rolling Stones, Wham!, Duran Duran, Blur og Oasis höfðu ótrúlegustu áhrif á ungmenni víða um heim. Ísland var engin undantekning. FRAMHALD Á SÍÐU 62
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96
Qupperneq 97
Qupperneq 98
Qupperneq 99
Qupperneq 100
Qupperneq 101
Qupperneq 102
Qupperneq 103
Qupperneq 104
Qupperneq 105
Qupperneq 106
Qupperneq 107
Qupperneq 108
Qupperneq 109
Qupperneq 110
Qupperneq 111
Qupperneq 112
Qupperneq 113
Qupperneq 114
Qupperneq 115
Qupperneq 116
Qupperneq 117
Qupperneq 118
Qupperneq 119
Qupperneq 120
Qupperneq 121
Qupperneq 122
Qupperneq 123
Qupperneq 124
Qupperneq 125
Qupperneq 126
Qupperneq 127
Qupperneq 128
Qupperneq 129
Qupperneq 130
Qupperneq 131
Qupperneq 132
Qupperneq 133
Qupperneq 134
Qupperneq 135
Qupperneq 136

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.