Fréttablaðið - 27.11.2010, Qupperneq 98
66 27. nóvember 2010 LAUGARDAGUR
Á Íslandi verður Dagur rauða nefsins haldinn í þriðja sinn föstudaginn 3. desem-
ber 2010 næstkomandi. Þann dag verður söfnunarþáttur í opinni dagskrá Stöðvar
2 þar sem grínistar láta ljós sitt skína í þeim tilgangi að safna fé fyrir bágstödd
börn um allan heim.
Það verður mikið um grín, glens og spaug í aðdraganda Dags rauða nefsins.
Þá verður kímni og hlátri beitt til að koma alvarlegum skilaboðum á
framfæri, vekja athygli á bágbornum aðstæðum barna víða um
heim og safna fé til verkefna UNICEF fyrir börn sem eiga um sárt
að binda.
UNICEF hvetur alla til að gerast heimsforeldrar, kaupa stóru
rauðu nefin og safna áheitum. Bylgjan mun hita upp og þá
geta vinnustaðir, fyrirtæki og stofnanir tekið þátt í almennu
fjöri, glensi og gríni. Hægt er að nálgast alls kyns fjáröflun-
arhugmyndir, grín og glens fyrir einstaklinga og fyrirtæki á
síðunni www.rauttnef.is.
Hugmyndin að Degi rauða nefsins kemur frá bresku
góðgerðasamtökunum Comic Relief, sem héldu hinn
fyrsta Dag rauða nefsins árið 1988 í þeim tilgangi að
safna fé til þurfandi barna í Afríku. Síðan hefur Dagur
rauða nefsins verið haldinn annað hvert ár og hefur
hann nú fest sig í sessi sem einn af stærstu góðgerða-
viðburðum Bretlands.
Rauð styrktarnef til sölu og lag í tilefni dagsins
Rauðu trúðanefin sem seld eru á 700 krónur til styrktar
verkefnum UNICEF eru komin í verslanir.
Lag Retro Stefson, Rauða nefið, var samið sérstaklega
fyrir átakið.
RAUTT NEF Í ÞRIÐJA SINN
L
angtíma sjónarmið
í þróunarstarfi eru
mjög mikilvæg og það
er ánægjulegt að segja
frá því að þó að alltaf
megi gera betur þá
hefur okkur í UNICEF orðið ágengt
síðustu áratugi,“ segir Stefán Ingi
Stefánsson framkvæmdastjóri
Barnahjálpar Sameinuðu þjóð-
anna, UNICEF á Íslandi.
„Sem dæmi má nefna að börn-
um sem deyja fyrir fimm ára
aldur dag hvern hefur fækkað úr
34.000 í 24.000 síðan 1990. Talan
er vissulega há en það er ánægju-
legt að hún hefur lækkað þrátt
fyrir fjölgun í heiminum,“ segir
Stefán sem tekur á móti blaða-
manni í miklu annríki vegna söfn-
unardags UNICEF í tilefni af Degi
rauða nefsins sem haldinn verður
hér á landi næsta föstudag.
Upphæð að eigin vali
Tilgangur dagsins er að hvetja fólk
til að gerast svokallaðir heimsfor-
eldrar UNICEF. „Heimsforeldrar
styrkja UNICEF mánaðarlega og
velja sjálfir hve mikið þeir styrkja
samtökin, það getur verið á bilinu
frá 1.000 krónum og upp úr. Þetta
er framlag sem skiptir gríðarlegu
máli því venjulegt fólk, heimsfor-
eldrarnir, eru okkar helstu styrkt-
araðilar. Peningarnir sem þeir
leggja til fara í almenn og víð-
tæk verkefni UNICEF sem tengj-
ast lífsafkomu og þroska, mennt-
un, vernd gegn ofbeldi, baráttu
við HIV-smit og fleira. Heims-
foreldrar eru ekki að styrkja eitt
ákveðið barn heldur mætti segja
að þeir séu að styrkja öll börnin í
heiminum sem þurfa á stuðningi
að halda,“ segir Stefán og bendir
á að margt smátt geri eitt stórt.
Með einföldum aðgerðum sé til að
mynda hægt að draga verulega úr
barnadauða. „Mörg af börnunum
sem deyja fyrir fimm ára aldur
deyja af orsökum sem hægt er
auðveldlega að koma í veg fyrir,
öndunarfærasýkingum, malaríu,
mislingum svo dæmi séu tekin.“
UNICEF hefur svokölluð þús-
aldarmarkmið að leiðarljósi en
þau eru sjö talsins: að draga úr
fátækt og hungri, að tryggja
grunnmenntun fyrir börn, að
styðja jafnrétti og styrkja konur,
að draga úr barnadauða, að bæta
heilsu mæðra, að berjast gegn
alnæmi og öðrum sjúkdómum og
að styðja sjálfbæra þróun. Stefán
segir að í öllum markmiðum þok-
ist í rétta átt. „Það er alveg klárt
að þróunarstarf skilar miklu, að
minnsta kosti í þessu tilviki. Þró-
unarstarf sætir stundum gagnrýni
en það er óhætt að rýna í tölurn-
ar hjá UNICEF, meirihlutinn fer
beint til hjálparstarfsins.“
Langaði að vinna að betri heimi
Stefán Ingi hefur verið fram-
kvæmdastjóri UNICEF á Íslandi
síðan landsnefndin tók til starfa
árið 2003. Hann var líka í hópnum
sem vann að undirbúningi stofnun-
arinnar. „Mig langaði alltaf til þess
að vinna fyrir Sameinuðu þjóðirnar
og sérstaklega þá UNICEF, ég hef
alltaf haft þá trú að við ættum
öll að vinna saman að því að gera
heiminn betri. Það var svo í árslok
2002 sem sú hugmynd kviknaði hjá
hópi fólks að hafa landsnefnd hér á
landi og við fengum mikinn stuðn-
ing við þá hugmynd frá UNICEF,“
segir Stefán Ingi en bætir við að
jólakort Barnahjálpar Sameinuðu
þjóðanna hafi þó verið til sölu í
fjölmörg ár og ýmsir sjálfboðalið-
ar komið að sölu þeirra, til dæmis
Félag háskólakvenna og fleiri.
Samræður um sjálfboðaliða leiða
okkur að tali um rauða nefið, fjár-
öflun UNICEF sem nær hápunkti
næsta föstudagskvöld.
„Rauða nefið á sér sögu og hefð
á Bretlandi, þar vildu grínarar
leggja sitt af mörkunum eftir að
tónlistarmenn höfðu staðið fyrir
Live Aid-tónleikunum. Hér á landi
var Dagur rauða nefsins fyrst
haldinn árið 2006, í annað sinn í
fyrra og er nú haldinn í þriðja sinn.
Við erum þakklát grínurum þessa
lands sem leggja sitt af mörkum til
að safna fé fyrir UNICEF,“ segir
Stefán Ingi sem hvetur fólk til að
taka þátt í deginum og aðdraganda
hans.
Heimsforeldrar skipta máli
Venjulegt fólk sem styrkir Barnahjálp Sameinuðu þjóðanna gerir börnum heimsins kleift að lifa og búa við betri aðstæður. Sig-
ríður Björg Tómasdóttir ræddi við Stefán Inga Stefánsson framkvæmdastjóra um hvernig grín getur komið þeim til hjálpar.
Annað
6%
FRAMLÖG UNICEF EFTIR HEIMSHLUTUM
Upphæð 769 milljónir dollara, andvirði um 88,281 milljarðar íslenskra króna
Afríka sunnan
Sahara
59%
Asía
27 %
Miðausturlönd og
Norður-Afríka
4%
Suður-Ameríka og
Karíbahafið
4%
UMSVIFAMIKIÐ STARF UNICEF starfar um heim allan en starfið er umsvifamest í Afríku sunnan Sahara og í Asíu. Myndirnar sýna aðsetur stúlkubarns við tjaldbúðir í Pakistan sem urðu til í kjölfar flóða í ánni Sukkur og
Stefán Inga Stefánsson í heimsókn í Síerra Leóne en þar styrkir UNICEF á Íslandi ýmis verkefni. Kortið sýnir hvernig framlög UNICEF skiptast eftir heimshlutum.
GRÍN ER ALVARA
Jón Gnarr borgar-
stjóri setti upp
rauða nefið á
borgarstjórnarfundi
á dögunum þegar
nefin voru sett í
sölu.
Mörg af börnunum sem deyja
fyrir fimm ára aldur deyja af or-
sökum sem hægt er auðveldlega
að koma í veg fyrir.