Fréttablaðið - 27.11.2010, Blaðsíða 102
70 27. nóvember 2010 LAUGARDAGUR
Í ÞÁ TÍÐ …
1900ÁR 201020001950
1 Ég vakna yfirleitt um hádegið, fæ mér morgunkaffi á meðan ég kíki á e-mailin mín, svara viðtölum og byrja
að spá í kvöldið.
Flakkað á milli borga
MYNDBROT ÚR DEGI | Fimmtudagurinn 26. nóvember | Canon EOS 1
Tónlistarmaðurinn Ólafur Arnalds hefur verið á tónleikaferðalagi um Evrópu undanfarnar vikur. Fréttablaðið fylgir honum
eftir dag einn í bænum Hasselt í Belgíu þar sem tæknimenn, tónlistarfólk og tattúveraðir aðdáendur koma við sögu.
2 Þegar ég er kominn á stjá
er tæknifólkið
þegar byrjað að
stilla upp sviðinu.
Hér er ég með
tæknimönnunum
mínum: Stuart,
Nico og Terence,
sem voru á fullu
við uppsetning-
una.
3 Þessar undurfögru stúlkur mynda þrjá-fjórðu af strengjakvartettin-
um. Þær Laura, Margrét og Eva slaka
hér á fyrir tónleikana.
4 Tónleikarnir í kvöld voru í
þessum flotta sal
í Hasselt í Belgíu.
Bæði hljóð og ljós
voru upp á sitt
besta, hér má sjá
,showið‘ okkar í
fullum skrúða.
Myndböndum er
varpað á baktjald-
ið til að skapa
umhverfi
5 Eftir tónleik-ana hitti ég
þennan hressa
strák sem hafði
tattúverað logoið
mitt á bakið á sér.
6 Eftir að búið er að ganga
frá er haldið aftur
í rútuna, menn
fá sér bjór eða
horfa á vídeó eða
fara bara að sofa,
á meðan rútan
heldur af stað til
næstu borgar.
Fyrir réttum 60 árum urðu vatnaskil í Kóreustríðinu sem hafði brotist út í júnímánuði 1950 eftir að deilur milli norður- og suður-
hlutans höfðu farið stigvaxandi.
Stórveldin höfðu skipt með sér Kóreuskaga eftir seinni heimsstyrj-
öldina, þar sem Sovétríkin og Kína höfðu ítök norðan 38. breiddar-
gráðu, en Bandaríkin sunnan hennar. Eftir að ófriðurinn braust út
komu Sameinuðu þjóðirnar, undir forystu Bandaríkjamanna, Suður-
Kóreu til hjálpar og hröktu norðurkóreska herinn langt norður í
land.
Þar blönduðu Kínverjar sér í málið og varð úr þriggja ára stríð þar
sem helstu leikendur kalda stríðsins tókust á.
Vendipunkturinn varð í lok nóvembermánaðar þegar kínverski her-
inn hóf mikið gagnáhlaup á tveimur stöðum, annars vegar við Chosin-
vatn og hins vegar við ána Chongchon í norðurhluta Kóreu.
Douglas McArthur hershöfðingi hafði sett sér það takmark að
klára stríðið fyrir jól, en honum varð ekki að ósk sinni þar sem kín-
verski herinn, í krafti liðstyrks, sigraði í þessum tveimur snörpu
gagnáhlaupum. Þeir hröktu lið Bandaríkjamanna suður eftir skag-
anum, suður fyrir 38. gráðu, og þar var víglínan dregin að nýju. Þótt
Kóreuskagi sé ekki lengur leikvöllur stórveldanna sér ekki enn fyrir
enda deilunnar, eins og atburðir vikunnar sýna gjörla.
- þj
Straumhvörf í Kóreustríðinu
Gagnsókn Kínverja hrekur Bandaríkjamenn til undanhalds.
ÍS
LE
N
SK
A
S
IA
.IS
1
1/
10
PÁLL ÓSKAR OG
EUROVISION-
STJÖRNUR ÍSLANDS
Í KÖBEN 5. MAÍ 2011
*Innifalið: Flug, flugvallarskattar, gisting með morgunverði í eina nótt, aðgöngumiði á tónleika Páls Óskars og EUROVISION-stjarna ásamt
þriggja rétta kvöldverði, aðgöngumiða á dansleik.
GESTASÖNGVARAR:
Icy-hópurinn
(Pálmi Gunnarsson, Eiríkur
Hauksson, Helga Möller)
Stebbi & Eyfi
Björgvin Halldórsson
Sigga Beinteins
Hera Björk
Jóhanna Guðrún
Selma Björns
Friðrik Ómar
Regína Ósk
Sigrún Eva
VERÐ Á MANN FRÁ:
87.900* KR. Í TVÍBÝLI
98.900* KR. Í EINBÝLI
EINSTÖK TÓNLISTARUPPLIFUN
FYRIR HÓPA OG KLÚBBA.
Eurovision-stórtónleikar í Cirkus í Kaupmannahöfn þar sem Páll Óskar skemmtir ásamt fjölda
söngvara sem hafa allir tekið þátt í söngvakeppninni á árum áður.
Tónleikarnir fara fram undir borðhaldi þar sem snæddur verður glæsilegur þriggja rétta kvöldverður meðan
listamennirnir skemmta gestum. Síðan verður dansleikur og stanslaust stuð til kl. 02.00 þar sem
Páll Óskar sér um tónlistina og heldur uppi fjörinu eins og honum er einum lagið.
Nánari upplýsingar á www.icelandair.is