Fréttablaðið - 27.11.2010, Qupperneq 110
78 27. nóvember 2010 LAUGARDAGUR
Hvað eruð þið búnir að þekkj-
ast lengi? Felix: Ja, það var
Helga Arnalds sem leiddi
okkur saman árið 2002. Við
Augasteinn urðum strax vinir
og við hlökkum alltaf til að
hittast aftur.
Augasteinn: Felix tók mig bara
upp og hélt á mér og þá vorum
við orðnir vinir!
Hvernig er að vinna saman?
Felix: Það er nú sko auðvelt því
Augasteinn er mjög góður og
þægur strákur.
Augasteinn: Já, og það er Felix
líka!
Felix: Svo eru líka fleiri sem
vinna með okkur, hún vinkona
okkar Helga Arnalds brúðu-
gerðarkona, Jói ljósamaður og
Salka dóttir hans og svo hún
Kolla sem er leikstjórinn. Hún
er líka mjög góður vinur Auga-
steins.
Þið heimsóttuð á dögunum
krakka í Bretlandi og lékuð
fyrir þau. Hvernig gekk sú
heimsókn fyrir sig? Felix: Það
gekk svo vel að við ætlum að
fara aftur til London og leika
fyrir börn þar. Þau voru mjög
góðir áhorfendur og sátu dol-
fallin á meðan við Augasteinn
sögðum þeim söguna. Þau eiga
bara einn jólasvein en ekki
þrettán eins og við. Skrítið!
Hlakkið þið til jólanna? Felix:
Já, jólin eru mjög skemmtileg-
ur tími. Í gamla daga fagnaði
fólkið því að dagarnir fóru
aftur að lengjast. Jólin eru hin
eina sanna hátíð ljóssins.
Augasteinn: Og maður fær
pakka! Ég hlakka mikið til!
Hvernig ætlið þið að halda
upp á jólin? Felix: Ég held upp
á þau með fjölskyldunni minni
og Augasteinn fær að vera með.
Hann situr nú bara rólegur og
fylgist með okkur.
Hvað finnst ykkur um jóla-
sveinana, eru þeir góðir eða
vondir? Augasteinn: Þeir virð-
ast vondir og svolítið skrítnir
en þegar maður kynnist þeim
kemur í ljós að þeir eru mjög
góðir og vænir. Ótrúlegt í raun
þegar maður er búinn að lenda
í hinum hræðilegu foreldrum
þeirra!
Felix: Já og jólakettinum. Hann
er skelfilegur.
Hver er skemmtilegasti jóla-
sveinninn? Augasteinn: Við
Stekkjastaur erum mjög góðir
vinir, en Gluggagægir er eigin-
lega fyndnastur!
Felix: Mér finnst Þvörusleikir
mjög skemmtilegur. Hann er
svo stríðinn.
Hvað tekur við eftir jól? Auga-
steinn: Þá förum við bara að
telja dagana þangað til við hitt-
um krakkana aftur rétt fyrir
jólin!
78
Þú getur sent brandara til krakkar@frettabladid.is
krakkar@frettabladid.is
JÓLASVEINAR SKRÍTNIR
EN GÓÐIR KARLAR
Ævintýrið um Augastein hefur verið tekið til sýninga í Tjarnarbíói. Fréttablaðið
náði tali af stjörnum leiksýningarinnar, þeim Felix Bergssyni og sjálfum Auga-
steini, sem finnst alltaf gaman að fá krakka í heimsókn.
Einu sinni voru tveir hundaeigendur að metast. Þá sagði annar:
„Hundurinn minn er svo gáfaður að þegar hann þarf að komast
inn rekur hann trýnið í dyrabjölluna.“ „Það er nú ekkert, hund-
urinn minn notar lykil!“
Pétur og Páll áttu hvor sinn hestinn og höfðu þá í sama hag-
anum. Til þess að þekkja hestana í sundur bundu þeir græna
saufu í faxið á hesti hans Péturs. Þetta gekk þangað til þeir
komu í hagann og sáu að græna slaufan hafði dottið af .
“Nú fór í verra sagði,” sagði Pétur, “Hvernig eigum við nú að
þekkja hvor okkar á hvaða hest? “Heyrðu mér dettur eitt í hug,”
sagði Páll eftir nokkra þögn: “Ég tek þann gráa og þú þann
brúna.”
MENNTA.HI.IS/VEFIR/SNILLIHEIMAR/NAMSVEFUR.HTM
Námsvefur fyrir fjögurra til átta ára börn. Vefurinn er eins og þorp þar sem hægt er að fara í
mismunandi leiki í nokkrum húsum.
1. Hvað heitir kertið sem fyrst er kveikt
á á aðventukransinum?
2. Hvaða jólasveinn kemur fyrstur?
3. Hvaða jólasveinn kemur síð-
astur?
4. Hvað fá börn í skóinn sem eru
óþekk?
5. Hvaða mánaðardagur er
jóladagur?
6. Hvenær eru jólin alveg
búin?
7. Hvað kallast jólin
þegar ekki er snjór?
8. Hvenær hringja
kirkjuklukkurnar
inn jólin?
Svör:
1. Spádómskerti
2. Stekkjastaur
3. Kertasníkir
4. Kartöflu
5. 25. desember
6. 6. janúar, 13
dögum eftir
jól þegar síðasti
jólasveinninn
heldur til fjalla.
7. Rauð jól.
8. Klukkan sex (klukkan
18)
Þau eiga
bara einn
jólasvein en
ekki þrettán
eins og við.
Skrítið!