19. júní - 19.06.1953, Síða 35
andi, af því að veturnir í ævi hennar eru fleiri
en sumurin.
Hún gengur aftur heimleiðis gegnum garðinn
og nýtur hvildarstundar dagsins. Hún setzt á bekk
móti sólinni undir háu tré. Hún ætlar aðeins að
hvíla sig dálitla stund, en er ekki að bíða eftir
samfylgd, og á morgun ætlar hún að fara aðra
leið gegnum garðinn. Samt hlustar hún eftir fóta-
taki, og hjartað slær örar, þegar hávaxinn maður
í gráum sumarfrakka gengur yfir grasflötina til
hennar. Hann heilsar og setzt á bekkinn hjá henni.
— Ég var svo hræddur um, að þú værir farin
fram hjá, af því að ég var í seinna lagi, segir
hann. Elín horfir á drengilegt andlit hans, og vor-
ilmurinn stígur henni til höfuðs. En nú verður
hún að halda áfram.
— Ég gekk alltaf um garðinn í fyrra sumar,
segir hann. Af hverju hittumst við ekki þá?
— Ég hef gengið um garðinn frá þvi ég var barn.
— Við höfum farizt á mis.
Nú má hún ekki sitja hér lengur. Hún verður
að flýta sér heim. Hann færir sig nær henni.
— Ég man eftir þér með stúdentshúfuna. Þá
var húfan mín farin að velkjast. Svo hvarfstu mér,
Elín.
Blómin sofa, en þau vita, að sumarið er á leið-
inni til þess að vekja þau.
— Þegar þú komst á móti mér hérna í garð-
inum, Elín, þá fannst mér þú gefa mér aftur æsk-
una, sem ég hafði misst.
Nei, nei, hún má ekki hlusta á þetta. Hún hefur
okkert. til að gefa, og enginn getur gefið henni neitt.
Hann lcggur handlegginn utan um hana. Hún
situr kyrr, af því að hún hefur ekki mátt til að
hreyfa sig.
— Við e-um bæði einmana, Elín. Getum við
okki fylgzt að út úr garðinum?
Elin lokar augunum og nýtur hvíldarinnar, að-
eins hve-fandi stund. Hún er svo óendanlega
hreytt. En það kólnar skyndilega með sólarlag-
inu, og hvm rís á fætur.
■— Við getum ekki fylgzt að úr úr gai’ðinum,
segir hún.
-— Aldrei?
— Nei, aldrei.
Hann stendur við hlið hennar. Ég sleppi þér
ekki, Elín. Lofaðu mér að hjálpa þér.
—- Það getur enginn hjálpað mér.
— En við mætumst þó aftur á morgun?
-— Ég held það væri betra að við færumst á mis.
Hann snýr sér frá henni og gengur hratt í átt-
ina að næsta hliði út úr garðinum. Hún stendur
enn í sömu sporum og réttir út hendurnar á eftir
honum, eins og hún ætli að kalla á hann til sín
aftur.
Nei, hún snýr sér undan og hraðar sér í gagn-
stæða átt út úr garðinum, frá dagsljósinu inn í
myrkrið.
— Þér komið i seinna lagi, frú.
Forstöðukonan er sjálf að hjálpa til að ganga
frá börnunum.
— Við höfum mikið að gera hérna. Þessi börn
eru erfið, eins og þér vitið.
Já, Elín veit, að þessi börn eru erfið.
Elín biður afsökunar og tekur við vagninum.
Hún lítur ekki i kringum sig. Hana langar ekki
til að sjá meira af þessum börnum eða mæta
augnaráði mæðranna, sem koma þreyttar frá
vinnu til þess að sækja þau.
Hún ekur vagninum eftir fáförulli hliðargötu.
Litla stúlkan liggur með hálflokuð augun. Höf-
uðið er óeðlilega stórt og svipurinn sljór. Elín
tekur hana upp úr vagninum og ber hana inn.
Hún lætur hana á gólfið á meðan hún opnar íbúð-
ina. Litla stúlkan gengur nokkur skref upp að
veggnum, en stendur þar kyrr, eins og hún hafi
ekki vit á að snúa sér við. Elín leiðir hana inn í
stofuna og lætur hana setjast á teppi í einu horn-
inu og fær henni rauða hringlu og brúðu i græn-
um kiól. En litla stúlkan ltann ekki að leika sér.
Hún situr með brúðuna og hringluna í kjöltunni
og horfir sljóum augum út í bláinn.
Elin hallar sér fram á borðið. Herðar hennar
kippast til af þungum ekka.
Táravana, vonlaus grátur.
INTERNATIONAL WOMENS NEWS.
B!að Alþjóða-kvenréttindafélagsins, International Wom-
ens News, fiytur alls konar fréttir um kvenréttindamá!
o. fl. Er t. d. í ráði, að þar hefjist nú greinaflokkur um
helztu brautryðjendur kvenréttinda-hreyfingarinnar. Blað-
ið kostar 10 sh. eða 23 íslenzkar krónur og kemur út einu
sinni á mánuði, 8 síður. Konur, sem kynnu að vilja ger-
ast áskrifendur að blaðinu, geta snúið sér til formanns
K.R.F.Í., Sigríðar J. Magnússon, Laugavegi 82.
Konur, sem hafa í huga að sœkja um styrk úr Menning-
ar- og minningarsjóði kvenna, œttu að hafa það hugfast,
að umsóknir þurfa að vera komnar í hendur sjóðstjórnar
fyrir lok júnímánaðar. Skrifstofa sjóðsins er á Skálholts-
stíg 7, opin hvern fimmtudag kl. 4—6 siðdegis. Á þeim
tíma eru veittar allar upplýsingar um sjóðinn, tekið á
móti minningargjöfum og seld minningarspjöld. Sími sjóðs-
ins er 81156. Utanáskrift: Pósthólf 1078.
19. JÚNl
21