19. júní - 19.06.1981, Page 5
Helgi H.
Jónsson.
Forsetí Islands í viðtali við
19. júní
Hér ríkir dásamlegt frelsi
„Heyrðu annars, eigum við ekki
að byrja á því að fá okkur kaffi-
sopa? Það hefur komið svo margt
fólk að finna mig í morgun, að ég
hef ekki haft tíma til þess að fá mér
kaffibolla.“
Og það var víst síst ofmælt hjá
Vigdísi Finnbogadóttur, forseta
Islands, að morgunninn hafði verið
ásetinn hjá henni. Stöðugur
straumur fólks var á forsetaskrif-
stofuna í stjórnarráðshúsinu þenn-
an sólskinsmorgun í maí, þegar
tíðindamaður 19. júní rak inn
nefið. En hvaða erindi eiga menn
þá við forsetann?
„Hingað kemur fólk margvís-
legra erinda, og viðtöl við það eru
mjög snar þáttur í forsetastarfinu.
Forsvarsmenn félaga og samtaka
koma til þess að kynna starfsemi
þeirra sem mér þykir ákaflega gott.
Ég hef lært meira á þessu eina ári
um félagsmál á íslandi en mig
grunaði nokkurn tíma, að ég
myndi gera.
Það er líka mikið leitað til emb-
ættisins með að fá að koma til
Bessastaða — til dæmis þegar hér
eru haldin norræn eða alþjóðleg
þing eða þegar hingað koma ein-
hverjir þekktir erlendir gestir.
Þetta er gestrisið embætti og ég
reyni auðvitað að koma til móts við
slíkar óskir eftir því sem unnt er.
Það er mjög gestkvæmt á Bessa-
stöðum.“
— Kannski svo að kalla megi
áþján?
„Nei, mér þykir gaman að
blanda geði við fólk.“
1 hlutverki sálusorgara
— Leita menn til þín með per-
sónuleg mál?
,Já, og það held ég að helgist, að
talsverðu leyti að minnsta kosti, af
því að ég er kona. Til mín leita
margir sem hafa brotið af sér ein-
hverntíma. Stundum hafa þetta ver-
ið bernskubrek, en dómskerfið er
ekki hraðvirkt, eins og við vitum,
og menn eru kannski búnir að
bæta ráð sitt, farnir að byggja upp
líf sitt á nýjan leik, og standa svo
allt í einu frammi fyrir því —
jafnvel nokkrum árum síðar — að
þurfa að fara í fangelsi. Menn
koma oft hingað til þess að segja
mér frá vandræðum sínum af þessu
eða öðru tagi. Það er eins og þeim
sé léttir í að koma og segja frá þessu
öllu — vita að forseta íslands er
kunnugt um vandamál þeirra.“
— Þeir sem koma þessara
erinda gera það þá einkum til þess
að létta á hjarta sínu, fremur en að
þeir vænti þess, að þú getir veitt
þeim beina úrlausn?
Stór stund í sögu jafnréttisbaráttunnar:
Kona tekur við embætti forseta. (Ljósm.: eik).