19. júní


19. júní - 19.06.1981, Blaðsíða 54

19. júní - 19.06.1981, Blaðsíða 54
Margrét Sæmundsdóttir. Hugsjón eða Kísviðurværi? Málefni fóstrustéttarinnar hafa verið mikið í sviðsljósinu að undanförnu. Með greinarkorni þessu langar mig til þess að reyna að skýra hversvegna fóstrur eru óánægðar með kjör sín, og hafa gripið til fjöldauppsagna um allt land. FÓSTURSKÓLINN. Fósturskólinn var stofnaður árið 1946 af Barnavinafélaginu Sumargjöf og hét þá Uppeldisskóli Sumargjafar. Fyrsta árið voru nemendur að- eins 9 og fjölgaði þeim hægt næstu árin. Hin trega aðsókn að skólan- um átti sér ýmsar orsakir t.d. voru húsnæðismál skólans löngum í ólestri og gat skólinn því aðeins tekið við fáum nemendum. Það var ekki fyrr en 1963 að skólinn fékk viðunandi húsnæði en það ár fjór- faldaðist líka nemendafjöldinn. Mjög góð aðsókn var síðan að skólanum næstu árin eða til ársins 1979 en þá dró nokkuð úr aðsókn að skólanum. Skólinn var í upphafi tveggja vetra skóli en árið 1973 var skólinn gerður að ríkisskóla og um leið var námið lengt um eitt ár. Fóstrur sem útskrifast hafa frá skólanum eru nú 708 + 48 í maí 1981. Inntökuskilyrði í Fósturskól- ann eru: Stúdentspróf, kennara- próf, grunnskólapróf, gagnfræði- próf að viðbættu tveggja ára námi í öðrum framhaldsskólum. Aldurs- lágmark er 18 ár. 52 ENDURMENNTUN OG FRAMHALDSNÁM. Eins og að framan greinir er námið við Fósturskólann 3 ára nám sem skiptist í verklegar og bóklegar annir. Námið i Fósturskólanum mætti kalla grunnnám, því miður er þess enginn kostur að afla sér aukinnar menntunar hér á landi þó að þörf- in fyrir fóstrur með sérnám sé mik- il. Þær fóstrur sem áhuga hafa á framhaldsnámi verða því að fara til hinna Norðurlandanna, t. d. hafa margar fóstrur lokið prófi frá Norska sérkennaraskólanum í Oslo og nokkrar hafa stundað nám í Danmörku og Svíþjóð. Þörfin fyrir viðbótarmenntun lýsir sér best í því, að ef haldin eru námskeið fyrir fóstrur fyllast þau óðum og færri komast að en vilja. Vegna mikilla breytinga, bæði á námi í Fósturskólanum, svo og á innra starfi á dagvistarheimilun- um, er nauðsynlegt að fóstrum gefist kostur á endurmenntun. I lögum um Fósturskóla íslands, segir að haldin skuli endurmennt- unarnámskeið reglulega. Hingað til hafa verið haldin tvö námskeið en á þau komast færri en vilja. FRAMHALDSNÁM ER EKKI METIÐ TIL LAUNA Það gefur auga leið að allt nám sem sækja þarf til annarra landa er bæði kostnaðarsamt og erfitt fyrir viðkomandi einstakling. Það er því eðlilegt að fóstrum finnist þær eiga skilið einhverja unbun í launum að sérnámi loknu. Staðreyndin er hinsvegar sú að framhaldsnám er ekki metið til launa nema í einstaka tilfellum og þá óverulega. Verknámskennarar við Fósturskólann eru t. d. aðeins í 14 lfl. þrátt fyrir framhaldsnám, en almenn fóstra er i 12—13 lfl. For- stöðukona á stóru dagheimili með eins árs framhaldsnám fær nám sitt ekki metið til hærri launa. Þannig mætti lengi telja. Það er ekki beinlínis hvetjandi fyrir fóstrur að leggja út í fram- Fóstrur við störf. Á þeim hvílir mikil ábyrgð. Myndin er tekin í lelkskólanum í Garðabæ.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84

x

19. júní

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: 19. júní
https://timarit.is/publication/671

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.