19. júní


19. júní - 19.06.1981, Blaðsíða 51

19. júní - 19.06.1981, Blaðsíða 51
notaðar hafa verið. Mikilvægir þættir eins og útgáfustarfsemi (bæklingar, dreyfirit og bækur, frumsamdar eða þýddar) hefðu verið stórlega vanræktir, mest án efa vegna fjárskorts. Þá hefðu nýir félagar í báðum þessum félögum kvartað yfir því að erfitt hefði reynst að afla upplýsinga um starf þessara hreyfinga síðustu ár og stefnumál þeirra yfirleitt. Við vorum sammála um það að áróður félaganna væri ekki nægi- lega skipulagður og að hann væri á engan hátt samræmdur. Var þeirri spurningu kastað fram, hvort ekki væri mögulegt að þessar hreyfingar sameinuðust um ákveðin mál og áróður fyrir framgangi þeirra. Engin niðurstaða náðist um hver þau mál gætu verið — er ekki ráð að taka þann þráð aftur upp með öðrum fundi næsta haust? Það kom fram að vissulega væri grunnur þessara félaga ólíkur og baráttuaðferðir — en engin mælti því á móti að þróun jafnréttismála væri svo hæg að ástæða væri til að skoða allar mögulegar leiðir þeim til framdráttar. Þær tillögur komu fram að allar hreyfingarnar sam- einuðust um að beina spjótum sín- um að því að breyta hugarfari karla, hvetja uppalendur barna til að virða jafnan rétt karla og kvenna vegna barnanna og voru dagheimili rædd í því sambandi. bá þyrfti að beina sér að fjölmiðl- um, en t. d. í ríkisfjölmiðlunum væru, þótt ótrúlegt sé, þættir þar sem karlar nær einir kæmu fram. Niðurstaðan var sú að áhuga- ntannafélög hefðu sannað gildi sitt °g að því fleir félög um jafn- rettismál því meiri umræða. Mis- niunandi starf slíkra hópa mundi skapa umræðu í þeim sem fyrir eru. En slíkir hópar ættu a. m. k. að skiptast á fréttabréfum, blöð- Uni, ályktunum, jafnvel ættu full- trúar þeirra að hittast t. d. einu Stnni á ári og ræða saman. Enn- fremur ættu þessir hópar að láta aðra vita af því, ef þeir hafa sérstök verkefni í gangi, sem allir hóparnir gætu hagnýtt, þannig að hver hóp- ur væri ekki að leggja óhemju vinnu í sama verkefnið. Um stöðu jafnréttismála Varðandi þróun jafnréttismála hér á landi vorum við allar sam- mála um að árangur hefði ekki verið eins mikill og vonir okkar stóðu til fyrir sex árum á kvenna- árinu 1975. Helst þóttumst við greina jákvæða þróun á vettvangi menntamála — en æ fleiri konur hefðu á síðustu árum aflað sér menntunar í einhverri mynd. Á síðustu fimm árum hefði fjöldi kvenna sem lýkur háskólanámi tvöfaldast, þótt námgreinaval kvenna hefði lítið breyst. Áhrif forsetakjörs Við ræddum um það hvort kjör konu í forsetaembætti hefði haft jákvæð áhrif á jafnréttisbaráttuna. Þau sjónarmið komu fram, að vissulega hefði forsetakjör 1980 vakið umræðu um jafnréttismál yfirleitt hér á landi. Sú umræða hefði verið í lægð, en við framboð Vigdísar Finnbogadóttur hefðu margir tekið sér penna í hönd og í þeim skrifum hefðu ljóslega komið fram þau viðhorf sem ríkjandi eru um jafnan rétt og jafna stöðu kynjanna — bæði jákvæð viðhorf og ótrúlegir fordómar. Forsetinn skapaði ákveðna ímynd, sem gæti hvatt aðrar konur til dáða. Börnin okkar sæju líka konu í æðsta emb- ætti þjóðarinnar — en ekki einn karlmanninn enn. En þessi við- burður hefði ekki verið neinn endapunktur — hverju hefði hann t. d. breytt um stöðu kvenna á vinnumarkaðnum, á heimilunum eða um uppeldi barnanna almennt o. sv. frv.? Vinnumarkaðurinn Um stöðu kvenna á hinum al- menna vinnumarkaði er eðlilegt að vísa í grein sem birt er hér í blaðinu um kjaramál fóstra og ennfremur til umfjöllunar á þessu efni í 19. júní í fyrra og í Ég er forvitin rauð í vetur. í spjalli okkar á Hallveigar- stöðum komu fram ásakanir á launþegahreyfingarnar, sem enn hefðu ekki tekið umræður um jafnrétti úti á vinnumarkaðnum upp svo slagkraftur væri í. Við ræddum stöðu kvenna á Alþingi og í sveitastjórnum. Sveigjanlegan vinnutíma og styttingu vinnutíma, einnig hlutastörf fyrir konur og yfirvinnuálag á karlmönnum. Jafna foreldraábyrgð, sem væri undirstaða þess að konur gætu sinnt félagsmálastörfum og ábyrgðarstörfum almennt til jafns við karla. Jafna skiptingu húsverk- anna og ekki síst dagheimilismál, samfelldan skóladag, húsnæðis- pólitík hér á landi og gildi þeirrar umræðu sem hefði veríð hafin undarlega seint og hlotið hefur samheitið fjölskyldupólitík. Ég ætla ekki að tíunda frekar spjall þetta — en ég held að við höfum allar haft ánægju af því; hreyfingarnar eru allar að berjast fyrir sama málinu — jafnrétti kynjanna. Þessi fundur hafði það gildi að við hittumst og ræddum saman og e. t. v. getum við byggt einhvers konar samskipti í næstu framtíð á viðræðum sem þar fóru fram. Ásdís J. Rafnar HVfl. ER. ENGilNli <í«iMAHue. (1 1>ESÍUK Uixd... ? 49
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84

x

19. júní

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: 19. júní
https://timarit.is/publication/671

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.