19. júní


19. júní - 19.06.1981, Blaðsíða 73

19. júní - 19.06.1981, Blaðsíða 73
Þann 23. apríl sl. héldu KRFl og Rauð- sokkahreyfingin almennan fund í Nor- ræna húsinu um tímabundin forréttindi. Jóhanna Sigurðardóttir, þingm. og Ragn- hildur Helgadóttir, fyrrv. þingm. fluttu framsögu um málið en auk þeirra fluttu forsvarsmenn ASf, BSRB, BHM, VSl og VMSÍ stutta framsögu og ennfremur full- trúar KRFl og Rauðsokka. Loks voru al- mennar umræður. Skoðanir voru mjög skiptar um það hvort tímabundin forrétt- ■ndi ættu yfirleitt rétt á sér og hvort Iög- binding þeirra til handa konum væri raunhæf leið til að ná fram auknu jafnrétti kynjanna í reynd. Töldu ræðumenn mjög gagnlegt að fá umræður um þetta mál, gætu þær leitt af sér ný viðhorf og nýjar leiðir í jafnréttisbaráttunni. Stjórnarmenn KRFf hafa sótt ýmsa fundi og ráðstefnur fyrir hönd félagsins. Um miðjan júlí 1980 var haldin miðára- ■ugs kvennaráðstefna S. Þ. í Kaupmanna- höfn. Berglind Ásgeirsdóttir var fulltrúi KR.Fl i undirbúningsnefndinni, sem jafn- framt varð sendinefnd fslands á ráðstefn- unni. Jafnréttisráð hélt ráðstefnu 26. september 1980 með jafnréttisnefndum sveitarfélaga og sóttu hana fjórir fulltrúar KRFf. Þarvar einkum fjallað um verkefni fyrir jafnréttisnefndirnar og þátttöku hvenna í stjórnmálum. Norræna ráðherranefndin bauð félag- ■uu að senda fulltrúa á fund hjá sam- starfsnefnd Norðurlanda um jafnréttismál 1 Helsinki 18. febrúar sl., þar sem rætt var um norrænt samstarf á sviði jafnréttis- ■Uala. Guðrún Sigríður Vilhjálmsdóttir sótti fundinn af hálfu KRFf. Þau ánægjulegu tíðindi hafa nú gerst, að hagur Hallveigarstaða er loks farinn að v*nkast og hefur nokkurt fé safnast fyrir, sem varið verður til viðhalds hússins. Leiga e,gnaraðila bæði hvað snertir skrifstofu- rýnii og salina í kjallara, þegar þeir eru notaðir i þágu félaganna hefur nú verið felld niður. Fréttabréf kom út nokkrum sinnum í vetur, en stefnt er að þvi, að það komi út ntánaðarlega yfir vetrartímann. Stjórn Kvenréttindafélagsins er nú bannig skipuð: Esther Guðmundsdóttir formaður, Berglind Ásgeirsdóttir varafor- n>aður, Oddrún Kristjánsdóttir, Guðrún bigriður Vilhjálmsdóttir, Jónina M. Huðnadóttir, en varamenn eru Ásta Björt f horoddsen, Ásthildur Ketilsdóttir og Júlíana Signý Gunnarsdóttir. Auk þess ' ‘ga sæti í stjórninni kosnar á landsfundi l‘l fjögurra ára: Arnþrúður Karlsdóttir, Ásdís J. Rafnar, Guðrún Gísladóttir og ^laría Ásgeirsdóttir auk varamanna. Maí, 1981, GSV. Landsfundur Kvenréttindafélags Islands 1980 15. landsfundur KRFf var haldinn að Hótel Esju i Reykjavík 23. og 24. október 1980. Fundinn sátu 59 fulltrúar víðs vegar að af landinu og sat karlmaður nú í fyrsta skipti landsfund félagsins. Aðalumræðuefni fundarinnar var félag- ið sjálft, starfshættir jiess og markmið. Fyrir fundinum lágu drög að nýjum lögum og drög að stefnuskrá félagsins til næstu fjögurra ára. Framsöguerindi voru fjögur: Valborg Bentsdóttir talaði um starf KRFÍ og árangur þess, Guðrún Hall- grimsdóttir um hlutverk áhugamanna- samtaka um jafnstöðumál. Þá hafði Guð- rún Gisladóttir framsögu um breytingar á lögum KRFf og Berglind Ásgeirsdóttir um stefnumál og framkvæmdaáætlun. Að loknum framsöguerindum, kaffi- veitingum í boði menntamálaráðherra og umræðum um framsöguerindin, hófst vinna i þremur starfshópum. Starfshópur 1 fjallaði um drög að stefnuskrá KRFf, sem stjórn félagsins hafði undirbúið og lagt fyrir landsfund. Eftir að hópurinn hafði farið yfir þessi drög, rætt þau og komið með nokkrar breytingar, samþykktu landsfundarfulltrúar stefnu- skrána og er það í fyrsta skipti i sögu fé- lagsins, sem slik stefnuskrá er samþykkt (stefnuskráin var einnig samþykkt á aðal- fundi félagsins í febrúar 1981). Starfshópur 2 fjallaði um aðalverkefni fé- lagsins næstu fjögur árin en það er að vinna að þvi að auka hlut kvenna við ákvarðanatöku í samfélaginu og aðal- áhersla verði lögð á að auka hlut kvenna í stjórnmálastarfi og fjölga konum í sveitar- stjórnum og á Alþingi. f umræðunum var bent á ýmsar leiðir til að auka hlut kvenna við ákvarðanatöku í þjóðfélaginu. Þessar voru helstar. Talið var nauðsynlegt að KRFÍ komi á sterkum fjölmiðlahópi, sem komi konum á framfæri í fjölmiðlum, skrifaði greinar í dagblöð og útbyggi dagskrá t. d. fyrir út- varp. Koma þarf konum meira á framfæri við þær stofnanir, ráð og nefndir, sem fara með fjármálavöldin, því konur hafa al- mennt mikla reynslu á fjármálasviðinu. Reyna þarf að breyta hugsanagangi kvennanna sjálfra og fá þær til að treysta kynsystrum sínum. Fulltrúaráð KRFl ætti í framtíðinni að beita sér fyrir fundum fyrir kosningar með kvenframbjóðendum, svipað og gert var i Reykjavík fyrir Alþingiskosningarnar 1979. Þá var þeim tilmælum beint til stjórnar KRFf að hún beitti sér fyrir námskeiðum i fundarsköpum og ræðumennsku og kæmi á fót leshringum um hin ýmsu málefni, sem gerði konur liæfari til þátttöku í félagsstörfum og í ákvarðanatöku al- mennt. Tillaga kom fram um að félagið beitti sér fyrir námskeiðum sem tækju til umfjöllunar þingmál, sem efst væru á baugi hverju sinni og mætti hugsa sér 60 manna hóp sem í væri 57 konur og 3 karl- ar. Bent var á nauðsyn þess að félagið komi sér upp „nafnabanka" þar sem hægt væri að taka út ákveðin nöfn hæfra kvenna og benda á, þegar skipa ætti í hinar ýmsu nefndir og ráð i þjóðfélaginu. Talið var nauðsynlegt að vekja athygli á þvi ófremdarástandi að engin kona skuli eiga sæti í þeirri nefnd er vinnur að endurskoðun stjórnarskrárinnar. Tillaga kom fram um það að vekja þyrfti upp metnað hjá bæði konum og stjórnmálaflokkum með þvi að setja fram ákveðin töluleg markmið t.d. í sambandi við sveitarstjórnir. Mætti t.d. miða við að konuryrðu 20—25% sveitarstjórnarmanna eftir næstu kosningar. Flestir töldu eðlilegt að beina hvatningu fyrst og fremst til þeirra kvenna sem vitað væri að gæfu kost á sér til framboðs og vildu taka þátt í stjórnmálum. Að lokum var þeirri spurningu varpað fram, hvort konur ættu að kjósa konur. Flestir voru sammála um að það væri eðlilegt og bent var á að konur gætu stutt v ið bakið á kynsystrum sinum, sem væru i framboði í öðrum flokkum með því að leggja inn gott orð fyrir þær við stuðningsmenn við- komandi flokks. Starfshópur 3 fjallaði um fulltrúaráð KRFf, samstarf við aðildarfélögin, útgáfustarf- semi og félagsstarfið. Um fulltrúaráð og starf fulltrúanna stendur i 9. grein laga KRFf (sem samþykkt voru á landsfundinum og á að- alfundi félagsins í febrúar 1981): „Full- trúaráð skal kosið á landsfundi. Fulltrúar skulu vera tveir úr hverju kjördæmi og jafnmargir til vara. Fulltrúar skulu vera félagsmenn i KRFl skv. 3. gr. a eða b. Fulltrúaráðið skal vera tengiliður milli stjórnar félagsins og aðildarfélaganna (sbr. 3. gr. b og c) og kynna stefnumál KRFf sem viðast. Fulltrúaráðsfundi skal halda fjórða hvert ár til skiptis í kjördæmunum eftir þvi, sem við verður komið.“. Fulltrúaráðsfundir hafa ekki verið 71
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84

x

19. júní

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: 19. júní
https://timarit.is/publication/671

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.