19. júní


19. júní - 19.06.1981, Blaðsíða 23

19. júní - 19.06.1981, Blaðsíða 23
Fá bæði kynin sömu menntun í grunnskólanum? Ema Lilja Ragnarsdóttir. Ölafsdóttir. Önnur grein laga um grunn- skóla frá 1974 hljóðar svo: „Hlut- verk grunnskólans er, í samvinnu við heimilin, að búa nemendur undir líf og starf í lýðræðisþjóðfél- agi, sem er í sífelldri þróun. Starfs- hættir skólans skulu því mótast af umburðarlyndi, kristilegu siðgæði og lýðræðislegu samstarfi. Skólinn skal temja nemendum víðsýni og efla skilning þeirra á mannlegum kjörum og umhverfi, á íslensku þjóðfélagi, sögu þess og sérkennum og skyldum einstaklingsins við samfélagið. Grunnskólinn skal leitast við að haga störfum sínum í sem fyllstu samræmi við eðli og þarfir nem- enda og stuðla að alhliða þroska, heilbrigði og menntun hvers og eins. Grunnskólinn skal veita nem- endum tækifæri til að afla sér þekkingar og leikni og temja sér vinnubrögð, sem stuðli að stöðugri viðleitni til menntunar og þroska. Skólastarfið skal því leggja grund- völl að sjálfstæðri hugsun nem- enda og þjálfa hæfni þeirra til samstarfs við aðra.“ Mynd- og handmennt er sú námsgrein sem e. t. v. höfðar á hvað víðtækastan hátt til þessarar skilgreiningar á hlutverki grunn- skólans. Nokkur meginmarkmið námsskrár í mynd- og handmennt sem tók gildi 1977 eru: Að þroska og þjálfa hug og hendur nemandans til að tjá eigin hugmyndir, þekkingu og reynslu í margskonar efnivið með viðeig- andi vinnubrögðum. Að efla hugmyndaflug, sköpun- arhæfileika, sjálfstraust og sjálf- stæði nemandans. Að stuðla að því að nemandinn tileinki sér hagkvæm vinnubrögð og nái þeirri hæfni að verða sjálf- bjarga í verki. í inngangi að námsskránni segir einnig: „Með mynd- og handmenntar- náminu er leitast við að koma til móts við það markmið grunnskól- ans að gefa öllum einstaklingum tækifæri til að uppgötva og þroska þá hæfilejka sem þeir búa yfir. I samræmi við þetta er gert ráð fyrir að greining nemenda eftir kynjum í hannyrða- og smíðanámi verði úr sögunni eins fljótt og að- stæður leyfa.“ Grunnskólalögin voru, eins og fram hefur komið, samþykkt á Al- þingi 1974. Þeim var ákvarðaður tíu ára aðlögunartimi þar til þau skyldu komin til framkvæmda að fullu. Nú eru 7 ár liðin af áratugnum. Blaðamönnum 19. júní lék því hugur á að athuga hvernig gengi að koma á samræmdri hand- menntarkennslu í grunnskólum. Niðurstaða könnunar sem gerð var meðal mynd- og handmennt- arkennara á haustfundi kennara og námsstjóra í september 1979 er sú, að yfirleitt hafi tvær stundir á viku verið ætlaðar til hannyrða- eða smíðanáms skólaárið 1979 — 80. f nokkuð mörgum skólum fá allir nemendur bæði smiða- og hannyrðakennslu og þá í flestum tilvikum jaannig að nemendur skipta um grein á miðjum vetri, eru i smíði hálfan veturinn en hannyrðum hinn hlutann. Aðeins fáir skólar hafa samræmt kennsl- una að fullu, þannig að bæði kynin njóti sömu kennslu að öllu leyti og séu saman í kennslustundum. Af þessu sést að enn skortir nokkuð á að námsskráin sé að fullu framkvæmd. í viðtali við Þóri Sig- urðsson, námsstjóra í mynd- og handmennt, kom fram að hann taldi að það sem aðallega tefði framkvæmd væri að of fáar stundir væru ætlaðar til kennslu í þessari grein. Nemendur næðu hvorki fullnægjandi valdi á smíðum né hannyrðum á þeim stutta tíma sem ætlaður væri til kennslunnar. A áðurnefndum haustfundi kennara og námsstjóra kom fram það samdóma álit allra að nauð- synlegt væri að allir nemendur fengju tækifæri til að stunda báðar handmenntargreinarnar. Margar ástæður voru tilgreindar fyrir þessu viðhorfi, svo sem þessar: Það er augljós jafnréttiskrafa að allir geti kynnst sömu námsgrein- um. Slíkt er forsenda sjálfsbjargar og jafnréttis. Það veitir tækifæri til að vekja áhugasvið sem annars opnuðust e. t. v. ekki. Mikilvægt er fyrir einstakling- inn að geta skapað eitthvað sjálfur, upplifað og fengið útrás fyrir þann sköpunarkraft sem í öllum býr. Fjölbreytni í námi stuðlar að al- hliða þroska. Nauðsynlegt er að nemendur fái sem mesta og besta verkjDjálfun til að verða sjálfbjarga þjóðfélags- þegnar. Nauðsynlegt er að drengir geti gert við fötin sín og kynnst helstu vinnubrögðum hannyrða. Ekki er síður nauðsynlegt fyrir stúlkur að kunna að fara með algengustu smíðaverkfæri. í nútímaþjóðfélagi þurfa allir að kunna skil á undirstöðuatriðum þessara greina. 21
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84

x

19. júní

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: 19. júní
https://timarit.is/publication/671

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.