19. júní - 19.06.1981, Blaðsíða 74
haldnir siðustu árin. Var það álit hópsins
að það væri félaginu til framdráttar að
taka þessa fundi upp að nýju. Þá var talin
þörf á reglugerð með lögunum, þar sem
nánar er kveðið á um störf fulltrúanna, þ.e.
einhvers konar verklýsingu og meiri
áhersla verði lögð á tengsl þeirra við stjórn
félagsins. Tengsl Reykjavíkursvæðisins
þyrfti að vera meira við dreifbýlið en nú er.
Stjórnarmenn þyrftu að koma út á lands-
byggðina, heimsækja aðildarfélögin og
halda smá fyrirlestra. Menn voru sammála
um að aðildarfélögin ættu að greiða fast
félagsgjald.
Félagsstarfið: Hvernig er best að haga
starfinu til þess að virkja félagsmenn og ná
árangri út á við?
Hópurinn taldi að virkari þátttaka
fundarmanna í störfum funda, gæti vakið
meiri áhuga en að koma og hlýða á fyrir-
lestur. Skipuleggja þarf fræðslu og þjálfa
félagsmenn í fundarstörfum. Konur þurfa
ekki síður en karlar að læra að tjá sig í
margmenni. Námskeið i félagsstörfum
myndi sennilega efla fundarsókn. Þá
mætti halda fundi viðar en á hefðbundn-
um stöðum, hvort sem það væri i Reykja-
vik eða úti á landi.
Útgáfustarfsemi: Hópurinn var almennt
ánægður með 19. júní, en meira efni mætti
koma frá félagsmönnum úti á lands-
byggðinni. Útgáfunefnd þarf að vera
starfandi fyrir Fréttabréf KRFf og út-
gáfudagar þess að vera fastir. Fréttabréfið
þarf að senda til aðildarfélaganna.
Þá lagði hópurinn til að stjórnin ákveði
fundardaga fyrirfram og tilkynnti þá í
Fréttabréfinu. Það væri hvatning til
félagsmanna úti á landi að koma á stjórn-
arfundi ef þeir væru staddir í bænum.
Baráttumálum félagsins þarf að koma á
framfæri við fjölmiðla eins oft og kostur er,
þannig er hægt að komast út fyrir þann
afmarkaða hóp sem les 19. júní.
Þá taldi hópurinn nauðsynlegt að senda
út fréttir af ráðstefnum, sem haldnar eru á
vegum félagsins og einnig var bent á að
rita þurfi sögu félagsins, en það verður 75
ára á næsta ári. Þá taldi hópurinn nauð-
synlegt að gefa út bæklinga um fjöl-
skyldumál þarsem m.a. væri vakin athygli
á jafnri ábyrgð foreldra.
Á landsfundinum lágu fyrir drög að
nýjum Iögum KRFl og voru þau nokkuð
rædd. M.a. kom fram sú breytingatillaga
að breyta nafni félagsins í Jafnréttisfélag
íslands, skammstafað JRFÍ. Nokkrar um-
ræður voru um þessa lagabreytingu,
margir voru henni samþykkir en aðrir
töldu ekki tímabært að breyta nafninu nú,
enda væri það nafn, sem tillaga væri um,
ekki nógu gott. Kom þá tillaga um að
nafnabreytingu á félaginu verði vísað til
stjórnar, en sú tillaga var felld á jöfnum
atkvæðum. Tillagan um að breyta nafni
félagsins í Jafnréttisfélag fslands var
samþykkt með 29 atkvæðum gegn 18. Að
öðru leyti voru drögin að lögum félagsins
samþykkt með örlitlum breytingum. Sam-
kvæmt lögum félagsins eru breytingar á
þeim aðeins gildar að um þær hafi verið
fjallað á félagsfundi í Reykjavík og hlotið
samþykki aðalfundar og landsfundar.
(Tillaga um nafnabreytingu á félaginu
fékk ekki samþykki aðalfundar félagsins í
febrúar 1 1981)
Landsfundurinn samþykkti að á næstu
fjórum árum yrði sérstaklega unnið að því
að auka hlut kvenna við ákvarðanatöku í
samfélaginu. Aðaláhersla verði lögð á að
auka hlut kvenna í stjórnmálastarfi og
fjölga konum í sveitarstjórnum og á Al-
þingi.
Á landsfundinum var samþykkt að ár-
gjöld aðildarfélaga KRFf verði eitt og
hálft árgjald einstaklinga.
Þá var kosið i stjórn KRFf til næstu
fjögurra ára og hlutu þessar kosningu:
Ásdís Rafnarr; til vara: Jóna Gróa Sig-
urðardóttir og Björg Einarsdóttir. María
Ásgeirsdóttir; til vara: Kristín Guð-
mundsdóttir og Ásthildur Ólafsdóttir.
Arnþrúður Kalrsdóttir; til vara: Valborg
Bentsdóttir og Gerður Steinþórsdóttir.
Guðrún Gísladóttir; til vara: Hlédís Guð-
mundsdóttir og Unnur Fjóla Jóhannes-
dóttir.
f stjórn Menningar og minningarsjóðs
kvenna voru kosnar: Áslaug Ottesen,
Bergljót Ingólfsdóttir, Jarþrúður Karls-
dóttir, Guðrún Stephensen, Inga Jóna
Þórðardóttir, Unnur Fjóla Jóhannesdóttir.
1 ritnefnd 19. Júní voru kosnar: Ásdís
Rafnar og Lilja Ólafsdóttir.
Varamenn: Ásta Benediktsdóttir
Hlédís Guðmundsdóttir.
15. landsfundi Kvenréttindafélags
fslands lauk með heimsókn landsfundar-
fulltrúa að Bessastöðum til forseta fslands,
frú Vigdisar Finnbogadóttur.
Esther Guðmundsdóttir.
Nýr formaður
Kvenréttindafélags Islands
Á síðasta aðalfundi KRFl tók Esther Guðmundsdóttir við
formennsku í félaginu. Esther er fædd í Reykjavík 10. júlí 1948.
Hún tók stúdentspróf frá Verslunarskóla íslands árið 1968, hóf
nám í þjóðfélagsfræði tveimur árum síðar og lauk þaðan prófi
árið 1975. Esther var starfsmaður kvennaársnefndar á árunum
1976—1977. Síðan var hún skólastjóri Bréfaskólans í eitt ár og þá
framkvæmdastjóri samstarfsnefndar um reykingavarnir árin
1978—1980. Nú starfar hún sem húsmóðir.
Esther gekk i KRFl á landsfundi árið 1976. Hún tók sæti i
stjórn félagsins 1978 og var gjaldkeri þess þar til hún tók við
starfi formanns i febrúar sl.
Eiginmaður Estherar er Björgvin Jónsson tannlæknir og eiga
þau þrjár dætur á aldrinum eins, sjö og ellefu ára.
72