19. júní


19. júní - 19.06.1981, Blaðsíða 58

19. júní - 19.06.1981, Blaðsíða 58
reynslu kvenna á sannfærandi hátt. Að sjálfsögðu hafa karlar skrifað ágætar kvenlýsingar, en þær eru yfirleitt ekki uppistöður verka þeirra, heldur eins konar hliðarmyndir. Sumir hafa talið Sölku Völku afsanna þessa kenn- ingu, en ég hef fyrir mitt leyti aldrei getað sætt mig við, hversu marflöt hún féll fyrir Arnaldi og lét hann um að móta sig. Stundum hef ég haldið því fram, að ekki verði komið á algert jafnrétti kynj- anna í íslenzkum bókmenntum fyrr en fram er komin kona sem er hliðstæða Steins Elliða í í Vefar- anum frá Kasmír.“ — En geta þá konur gert karl- mönnum almennileg skil í bók- menntum? „Vissulega. Á ég að segja þér af hverju: Það er af því, að konur eru venjulega trúnaðarvinir karla. Karlar eiga oftast fullt af kunn- ingjum, sem þeir geta spjallað við um daginn og veginn, en þegar þeir þurfa á raunverulegri vináttu að halda, leita þeir til kvenna. Þeir virðast vera hræddir við að sýna öðrum karlmönnum sinn innri mann, — hræddir við að missa andlit gagnvart þeim. Ég veit ekki almennilega hvernig á þessu stendur. Kannski ráða uppeldis- áhrif hér mestu um. Karlmenn nútímans eru mjög áhugavert við- fangsefni í bókmenntum. Ekki sízt karlmenn, sem hafa náð langt eins og það er kallað. I fljótu bragði virðast þeir oft eins konar róbótar, en inni fyrir býr jafnan venjulegur sveitamaður, sem á sínar erfiðu stundir. Það er einmitt sveitamað- urinn inni í róbótnum, sem er mér mjög hugleikinn.“ — Hvernig stóð á því, að þú byrjaðir þinn feril á því að skrifa smásögur? „Það er nú bara af því að ég er svo ófrumleg, að mér fannst rétt að byrja á þann hátt. Sumir bók- menntafræðingar hafa haldið því fram, að það sé mjög erfitt að skrifa smásögur,— að skáldsagan sé auð- veldari, en ég get ekki fallizt á það. 56 1 smásögunni setur maður upp þrengri ramma og hefur færri spil á hendi en í skáldsögunni, þar sem allur stokkurinn er í gangi, ef svo má að orði kveða. Raunar hef ég bæði skrifað ljóð og leikrit og nú síðast skáldsögu, sem kemur út næsta haust. Ég skrifaði hana að beiðni mannsins míns, svo að þú sérð að ég er ekki alveg vonlaus eiginkona. Hann var nú farinn að sjá eftir því að hafa beðið mig um þetta því að verkið tók 17 mánuði og var farið að taka mjög á taug- arnar.“ — Og hvað var það sem mað- urinn þinn vildi láta þig skrifa um? Fríða skellihlær og segir: „Það færðu ekki að vita. Maður á aldrei að ljóstra slíkum hernaðarleyndar- málum upp fyrirfram. Og þó að ég hafi fallizt á þetta viðtal og sé raun- ar mjög stolt yfir því, að 19. júní sjái ástæðu til að halda mér á lofti, er ég þeirrar skoðunar að mikil auglýsingastarfsemi geti verið hættuleg rithöfundum og verkum þeirra. Rithöfundurinn á að birt- ast í verkinu og verkið að tala sínu máli sjálft. Til þess er leikurinn gerður.“ JBR. tóidtoi, Nit aíAi DftM'ifJu áuúiA JiA ETriÆ AÉfl- LAUfaft dlöUU. \ltó<LMsUl UPP i ftlJELli ! TRíAU M£« tfttts !b tífthift Oll CcMftEsU &0D Elftftúsbillfifl... 06... INGA VALBORG Framhald af bls. 43. okkar. Þessi hópur hefur alla tíð síðan verið snar þáttur í lífi okkar hjónanna beggja.“ — Líturðu öðrum augum á lífið og sjálfa þig eftir að verkahringur- inn víkkaði? „Ég hef alltaf verið ánægð með lífið, enda ekki haft yfir miklu að kvarta. Samt hefur allt orðið enn- þá skemmtilegra, eftir að ég fór út í nám og atvinnulíf. Ég er miklu frjálsari og ánægðari með sjálfa mig. Það er mikilvægt fyrir hvern einstakling að fá að sinna þeim verkefnum, sem hann hefur ánægju af. Margar jafnöldrur mínar fá lífsfyllingu við að sinna hugðarefnum sínum og félagsmál- um, en ég er þannig gerð, að ég vil frekar vera úti á vinnumarkaðnum og hafa samneyti við fólk þar. Þegar saman fer ánægja af starf- inu, fjárhagslegt sjálfstæði og sú fullvissa að maður geri gagn, er ekki hægt að hugsa sér það betra.“ ODDNÝ Framhald af bls. 42. hafa orðið sem nýjar manneskjur.“ — Segjum svo, að ekkert verði úr búskaparáformum. Verður þá þetta nám þitt til einskis? „Það gefur enga atvinnumögu- leika sem slíkt, en ég vil alls ekki segja, að það verði til einskis og bréfaskólanám er metið til punkta í öðrum framhaldsskólum. Stund- um hef ég hugleitt að fara í Öld- ungadeildina, og sú braut, sem ég er nú komin á , getur legið að því marki. En draumurinn er þó sá að stunda fjárbúskap í sveit.“ — Þú ert kannski þegar farin að búa í huganum? „Það er ekki svo fráleitt að láta sig dreyma um góða jörð austur á Síðu eða Héraði. Góða jörð með svona 600 fjár! Það er nauðsynlegt að hugsa stórt.“
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84

x

19. júní

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: 19. júní
https://timarit.is/publication/671

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.