19. júní - 19.06.1981, Blaðsíða 35
Höfn — væntanlegar eru tölvu-
vogir til að vikta að og frá flökun-
arvélum, sem mun auðvelda
stjórnun og gera auðveldara að
fylgjast með nýtingu.
Það er nauðsynlegt að fylgjast
vel með því sem er að ske í faginu.
Endurmenntun er nauðsynleg,
jafnvel þótt maður sé tiltölulega
nýútskrifaður, því menntun er fljót
að úreldast. Það er ekki hægt að
taka sér frí í nokkur ár úr þessu
starfi, jafnvel þótt maður vildi.
Húsin eru í svo geysilegri þróun
núna og fyrirsjáanlegar miklar
breytingar.
Langaði að reyna eitthvað nýtt
Margir hafa spurt hvers vegna
ég hafi farið í Fiskvinnsluskólann,
en ég get eiginlega ekki svarað því.
Ég var óráðin framan af — var
fyrst tvö ár i Kvennaskólanum, tók
landspróf frá Vogaskóla og 5.
bekkjar próf frá Framhaldsdeild-
unum við Lindargötu — sótti síð-
an um skólavist bæði í Fisk-
vinnsluskólanum og í 4. bekk í
Menntaskólanum í Reykjavík og
fékk inngöngu á báðum stöðum.
En þetta var nýr skóli og mér
fannst spennandi að reyna eitt-
hvað nýtt. Ég ákvað um leið og ég
fór í skólann að klára framhalds-
námið líka. Ég útskrifaðist á til-
settum tíma, eftir fjögur og hálft
ár, um áramótin 1977 — 78. Sein-
ustu tvö árin var ég eina stúlkan í
bekknum. Ég veitti því athygli hve
bekkjarfélagarnir voru ófeimnir
við að gera kaupkröfur og semja
um fríðindi, ólíkt því sem maður
átti að venjast hjá konum.
Krefjandi starf
Ég fékk strax vinnu. Við fórum í
skólaferðalag að skoða frystihúsið á
Höfn vorið 1977 og mér var boðin
vinna þar um sumarið og síðan
aftur að framhaldsnámi loknu.
Maðurinn minn, sem er vélstjóri,
fór með mér austur. Ég hef frá
byrjun verið verkstjóri í sal, þar
sem er snyrt og pakkað, en þar
vinna i einu rúmlega 60 konur.
Verkstjórastarfið er vel launað,
en starfið er mjög krefjandi, mikið
álag, og vinnutíminn langur hjá
þeim sem eru í fullu starfi. Maga-
sár er líklega hvergi jafn algengt.
Maður verður gjörsamlega heila-
þvegin því það kemst ekkert annað
að þegar maður byrjar í þessu. Það
er hörgull á verkstjórum, margir
hætta og mikil hreyfing er í stétt-
inni.
Það er nauðsynlegt að hafa gott
samstarf við fólkið. Það þarf að
fræða fólkið miklu meira um hvað
það er að gera og miklu máli skiptir
hvernig það er gert. Fólkið þarf að
finna að það sé einhvers virði, að
störf þess séu einhvers metin. Það
hefur alltaf verið lágt metið starf
að vinna í fiski, en ég er sannfærð
um að það er að breytast.
Við framleiðum gæðavöru —
íslensku fiskblokkirnar eru í hærra
verðflokki en fiskurinn frá aðal-
keppinautum okkar á markaðn-
um, Kanadamönnum. Hráefnið
okkar er betra og fiskurinn betur
unninn, þ. e. a. s. það finnst minna
af beinum í flökunum. Banda-
rikjamarkaðurinn, okkar helsti
markaður, stendur og fellur með
þvi að við höldum okkar gæðum og
séum helst skrefi á undan.
Vandi þegar komin eru börn
Ég held að konur með svipaða
menntun og ég hafi álíka starfs-
möguleika og karlar — ég hef ekki
þurft að kvarta — en það skapast
vandi þegar komin eru börn. Ég á
2ja ára son og er þvi í hálfu starfi
núna, en verkstjórastarfið er ekki
þægilegt sem hálfsdagsvinna því
oft er eftirvinna og erfitt að sam-
ræma það heimilisstörfunum. Ég
vinn líka þegar unnið er um helgar
— þá skiptumst við hjónin á eftir
föngum. Á Höfn er ágætur leik-
skóli, giftir foreldrar geta haft börn
sín þar hálfan daginn, einstæðir
allan daginn, og það er biðlisti.
Mikið dáist ég annars að dugn-
aðinum í henni Huldu Arnsteins-
dóttur að leggja út í þetta nám með
lítið barn á framfæri. Ég hef aldrei
á ævinni verið eins þreytt og fyrsta
árið eftir að sonur minn fæddist, en
þá var ég verkstjóri í fullu starfi.
Það væri spennandi að taka að
sér starf framleiðslustjóra, sem er
nýtt starfsheiti fyrir frystihússtjóra.
En það er starf sem maður þarf að
gefa sig allan í og því væri ég rög að
gefa mig í það meðan ég er með
ungt barn.
Kynin verða að vinna saman
Ef jafnrétti á að nást verða kynin
að vinna saman og hjálpast að.
Konur hafa ekki nægilegt sjálfs-
traust og þess vegna varð ég svo
ánægð þegar ég heyrði að Vigdís
ætlaði í framboð og ákvað strax að
kjósa hana. Þær voru ekki margar
konurnar í frystihúsinu hjá okkur
sem ekki studdu hana.
Það þyrfti að halda ráðstefnu
þar sem vinnandi konur kæmu
saman og miðluðu hver annarri af
reynslu sinni, sagði Þóra að lokum.
Hinar þekktu
Stendhal snyrtivörur komnar
TOPPTÍSKAN
AÐALSTRÆTI 9 — SÍMI 13760
33