19. júní


19. júní - 19.06.1981, Blaðsíða 29

19. júní - 19.06.1981, Blaðsíða 29
Konur verða að hafa áhrif á tækniþróunina María Jóna Gunnarsdóttir. Rætt við Maríu Jónu Gunnarsdóttur byggingatæknifræðing Við áttum að vera þægar Eg hafði alltaf séð eftir því að halda ekki áfram námi. Að loknu gagnfræðaprófi vann ég almenn skrifstofustörf í 9 ár, m. a. hjá Samvinnutryggingum og á Tím- anum. Mér gekk vel í barnaskóla og ég byrjaði i Kvennaskólanum full af áhuga, en naut mín þar aldrei. Við áttum að vera þægar og hafa enga sjálfstæða skoðun á hlutunum og við fengum alls enga hvatningu til frekara náms. Þegar ég útskrifaðist úr Kvennó hafði ég enga trú á sjálfri mér. Verðlaunin voru hvatning Svo þegar maðurinn minn fór í tæknifræðinám i Odense, þá greip eg tækifærið og byrjaði að læra tækniteiknun, enda var dóttir mín þá byrjuð í skóla. Á lokaprófi um vorið var ég efst í bekknum og fékk peningaverðlaun, sem að vísu var lítil upphæð, en þetta varð mér mikil hvatning til að halda áfram námi. Næsta vetur tók ég það sem á dönsku er kallað „teknisk assi- stent, i bygge og anlægslinien.“ Þriðja veturinn var ég svo í undir- búningsdeild fyrir tækninám. Var æðislega „aggressiv“ á Kvennaárinu Seinasta veturinn í Danmörku vorum við aðeins fjórar konur i 80 manna hópi, sem skiptist í fjórar deildir — af þessum fjórum konum höfum við tvær lokið prófi sem tæknifræðingar. Þetta var á Kvennaárinu og ég var æðislega „aggressiv“, ætlaði ekki að láta kveða mig í kútinn. Prófritgerðin í dönsku var um jafnréttismál. Hálfgerður geirfugl Við fluttum heim til íslands og ég vann á verkfræðistofu næsta vetur. Haustið 1976 hóf ég loks nám í byggingatæknifræði við T.í. Ég lauk prófi eftir þrjú og hálft ár, í desember 1979, með gatnagerð og lagnir sem valfag. Ég var 28 ára gömul, þegar ég byrjaði í T.I., og ég kom inn með því hugarfari að standa mig. Kvenréttindaumræð- an hefur örugglega hjálpað. Mér var vel tekið í skólanum, bæði af kennurum og nemendum — en ég man að skömmu eftir að ég byrjaði, sagði einn kennarinn, „Það verður nú einhver munur að kenna rúm- fræðina í vetur!“ — Mér fannst ég náttúrlega vera hálfgerður geir- fugl. Tækninámið ekki erfiðara en svo margt annað Það var mikið að lesa í T.í. og mikil heimavinna, en ekkert erið- ara en svo margt annað sem konur leggja fyrir sig með góðum árangri. Mér fannst námið ekki líkamlega erfitt. Það þarf enginn að segja mér að konur geti ekki notað á sér skrokkinn. Konur hafa alltaf þurft að erfiða. Þegar ég var í T.l. vann ég í landmælingum eitt sumar, annað á verkfræðistofu og það þriðja í byggingavinnu. Það má náttúrlega segja að byggingavinna geti verið erfið, maður þarf að lyfta þungum hlutum, en það gekk allt saman vel. Stúlkur hafa einmitt á seinustu árum farið í bygginga- vinnu í vaxandi mæli. — En eftir að prófi lýkur eru störf tæknifræð- inga mest skrifborðsvinna. Ég kveið fyrir að fara út í at- vinnulífið. — Mér gekk þó ágæt- lega að fá vinnu og ég byrjaði hjá Orkustofnun í febrúar 1980. Á Orkustofnun eru nokkrar konur í sérfræðingastörfum og hafa staðið sig vel og það hjálpar örugglega nýjum konum. En maður verður að vera meðvitaður, því óneitan- lega er viss tilhneiging til að hlífa konum. Hitaveitur og nýting jarðvarma Eg vinn við allt mögulegt í sam- bandi við hitaveitur og nýtingu jarðvarma. Ég er einnig í nefnd, sem sér um uppsetningu á varma- dælu til húshitunar við bæ einn í Borgarfirði, sem er ein sú fyrsta sinnar tegundar hér á landi, enda er þetta tilraunastarfsemi. Ég ferð- ast talsvert um landið í sambandi við starfið og það er bæði fróðlegt og skemmtilegt. Ég er nýkomin af ráðstefnu um varmadælur í Manchester. Hana sátu um 100 manns, en ég var eina konan þar auk blaðakonu, sem skrifar fyrir tækniblað. Síðan fórég til Parísar að skoða hitaveitur og loks heimsótti ég verksmiðju í Ulzen í Þýskalandi, þaðan sem við kaupum varmadæluna. Ég ferðaðist á svonefndum „business class“ og fékk ágæta þjónustu, en oftast var ég eina konan í þeim hluta vélarinnar. Það segir sína sögu, ekki satt? 27
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84

x

19. júní

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: 19. júní
https://timarit.is/publication/671

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.