19. júní


19. júní - 19.06.1981, Blaðsíða 18

19. júní - 19.06.1981, Blaðsíða 18
Sigríður Erlendsdóttir. Upphaf skólagöngu 1 íslensku bændaþjóðfélagi 19. aldar ríkti hefðbundin hlutverka- skipting kynjanna og fáum sögum fer af uppeldi barna á heimilum. Þó mun óhætt að staðhæfa, að uppeldi drengja og stúlkna hafi á margan hátt verið frábrugðið. Stúlkur hafa langtum meira en drengir verið látnar sinna skyldu- störfum innanhúss, gæta barna og vinna við prjónaskap og aðra handavinnu. Yfirleitt var lærdómi ekki haldið að stúlkum. Það þótti gott að læra skrift og reikning, ef um karlmenn var að ræða, en það þótti tefja konur frá vinnu. Þegar litið er til menntunaraðstöðu kvenna, áttu þær ekki margra kosta völ. Þær höfðu engan aðgang að menntastofnunum landsins og hugsunarhátturinn var sá, að fáum hefði dottið í hug að þær kæmust þangað. Ætla má, að aðstaða kvenna til að afla sér undirstöðu- fræðslu hafi verið verri en karla við hinn ríkjandi hugsunarhátt, og alþýðustúlkum þótti nægi- legt að læra kverið fyrir ferming- una. Um miðbik 18. aldar voru gefn- ar út 3 tilskipanir um fermingu, kristindómsfræðslu og húsvitjanir presta, en samkvæmt þeim var krafist lestrarkunnáttu af öllum ungmennum. Stúlkur sátu á hak- anum með frekari fræðslu, svo sem skrift og reikning, drengir höfðu meiri tíma aflögu til lestrar, ef bækur voru til á heimilum en stúlkum var ætlað að sitja við heimilisvinnu. Uppfræðsla þeirra náði yfirleitt ekki lengra en það, að þær áttu að geta lesið eða stautað sig fram úr lærsómskverinu, en hins vegar munu margir piltar 16 hafa aflað sér kunnáttu i skrift og reikningi. f ævisögum og endur- minningum blasir við okkur mynd af konum, sem þráðu að afla sér menntunar, en áttu þess engan kost. Þar lagðist á eitt, viðhorf bændaþjóðfélagsins og löggjöfin, sem miðaði að því, að þjóðfélags- staða kvenna héldist óbreytt. Enda þótt flest lagasetning, sem miðaði að aukinni menntun kvenna sé bundin 20. öldinni, þokaðist þó í áttina á síðustu ára- tugum 19. aldar. Á það verður sér- staklega að benda, að eitt fyrsta skilyrði jafnréttis á sviði menntun- ar er, að drengir og stúlkur fái sömu undirbúningsmenntun þeim að kostnaðarlausu. Fyrsta skrefið í þá átt má telja það, að árið 1880 voru sett lög um uppfræðingu barna í skrift og reikningi og skyldu prestar hafa eftirlit með því. Það er þá fyrst, að kvenfólk lærir almennt þessar listir. Með lögum þessum tekur hið opinbera, lands- sjóður og sveitarsjóðir það á sig að standa straum af almennri barna- fræðslu og sjá um að öll börn,10—14 ára að aldri, fái til- tekna fræðslu. Árið 1907 voru fræðslulögin sett, og með þeim voru öll börn 10—14 ára fræðslu- skyld og skyld til að taka próf úr tilteknu námsefni. Ætla má, að víða hafi reynst erfitt að framfylgja lögunum vegna samgönguerfið- leika auk þess sem skólar voru þá Vinaminni við Mjóstræti var reist árið 1885 að frumkvæði Sigríðar Einarsdóttur frá Brekku- bæ fyrir fé er auðugir Englendingar gáfu til stofnunar nýs kvennaskóla. Skólinn starfaði þó aðeins einn vetur.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84

x

19. júní

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: 19. júní
https://timarit.is/publication/671

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.