19. júní


19. júní - 19.06.1981, Blaðsíða 57

19. júní - 19.06.1981, Blaðsíða 57
hvernig þær séu. í bókmenntum, listum, trúarbrögðum og pólitík. Hversdagslega. Hvar sem er. Þær hafa ekkert fengið að segja um þetta sjálfar. Og þegar þær hafa reynt að brjóta af sér fjötrana og leggja eitthvað fram sem sjálf- stæðir einstaklingar hafa karla- skrattarnir haft lag á að þegja þær í hel eða stimpla þær vitlausar. Karlaskrattarnir segi ég! Jú, víst hafa þeir ýmislegt á samvizkunni í þessum efnum, en það hafa konur reyndar líka. Þær hafa stundum sýnt mikla dómhörku þeim kyn- systrum sínum, sem hafa viljað fara ótroðnar slóðir. Og jafnvel kvennahreyfingar sem vilja stuðla að frelsun konunnar, falla oft í sömu gryfju og fara að predika fyrir konum, hvernig þær eru og hvernig þær eigi að vera. Ég er orðin hundleið á þessu. Sjálf held ég að ég viti hver ég er, enda þótt ég sé sífelldlega að koma sjálfri mér á óvart. Ég hef háð mína jafnrétt- isbaráttu með góðum árangri og er sannfærð um, að mikilverðasti áfanginn að fullu jafnrétti kynj- anna sé aukin sjálfsvitund kvenna, sem sé það, að þær hætti að ganga sjálfkrafa inn í hlutverk, sem ein- hver annar ætlar þeim, hvort sem það eru karlrembur eða kvenna- hreyfingar.“ — Hefur þú starfað í kvenna- hreyfingum? ,,Nei ég er orðinn æðislegur fél- agsskítur. Á sínum tima vasaðist ég heilmikið i félagsmálum og pólitík auk þess sem ég vann af fullum krafti utan heimilis. Síðustu árin hef ég útilokað mig frá öllu slíku. Bara einbeitt mér að skriftunum. Undanfarin fjögur ár hef ég setið við skriftir frá kl. 1—5 daglega. Þar fyrir utan hugsa ég um heimilið. Að sjálfsögðu á fullum jafnréttis- grundvelli við manninn minn. Hann gerir meira en að hjálpa til við uppvaskið. Eg þoli ekki, þegar konur tala fjálglega um að karlarnir þeirra hjálpi til við uppvaskið. og halda að þá sé jafnrétti náð. Upp- vaskið er því miður aðeins örlítill angi af jafnrétti. Veiztu, að ég get stundum orðið svo reið, þegar ég hugsa um, hvað við eigum langt í land með jafn- réttið,“ heldur hún áfram. „Við höfum stigið hvert feilsporið á fætur öðru. Og stærsta skyssan, sem við höfum gert var að halda að allt breyttist og batnaði ef konur færu út að vinna. Hvað höfðum við upp úr því? Tvöfalt álag, því að heimilishald og tilfinningaleg ábyrgð á fjölskyldunni hvílir á konunni eftir sem áður, a. m. k. í langflestum tilvikum. Ætli þær séu ekki margar konurnar, sem hafa brotnað undan þessum þunga og eru þjakaðar af sektarkennd yfir öllu, sem þær gerðu vitlaust? Og karlmennirnir láta sér nægja að hjálpa til með uppvaskið og skilja ekki neitt i neinu. Ég get orðið brjáluð af reiði, þegar ég hugsa um það. En stundum, þegar ég velti þessu rólega fyrir mér sé ég vel, að þetta hlýtur allt að taka sinn tíma og þó nokkuð hefur þegar áunnizt. Sjáðu bara, hvað konur eru orðnar miklu skemmtilegri en áður! Þegar ég var yngri vildi ég miklu fremur tala við karlmenn en konur. Mér fannst þær hafa svo miklu þrengri sjóndeildarhring. En núna hefur þetta snúizt við. Það er orðinn við- burður að hitta skemmtilegan karlmann. Konur hafa hins vegar sprungið út. Þær eru frjóar, for- vitnar, og ólgandi af lífi. Maður þverfótar ekki fyrir skemmtilegum konum. Karlmennirnir hafa staðnað. Nú eru það þeir sem hafa þröngan sjóndeildarhring. Um- ræðuefni þeirra eru oftast yfir- borðslegir hlutir, peningamál eða bílar. Það er kannski ekki alltaf gaman að vera kona nú á tímum, en ég held að það sé lítið skárra að vera karlmaður.“ — Skrifar þú kvennabók- menntir? „Það er fyrst núna nýverið, að ég rakst á tæmandi skilgreiningu á hugtakinu kvennabókmenntir, þ. e. bókmenntir skrifaðar af kon- um og um konur. Samkvæmt því fæst ég vitaskuld við kvennabók- menntir. Á hinn bóginn fjalla ég ekki eingöngu um konur, heldur einnig um karlmenn. Og börn og unglinga líka. Fólk almennt og líf- ið eins og það blasir við mér,— sem manneskju — konu. En ég er á móti því að vera sett á einhvern bás og stimpluð sem menningarpost- uli, bókmenntafræðingur eða femínisti. Raunar fannst mér dá- lítið fyndið þegar roskinn karl- maður sagði að bókin mín gæti fullt eins verið skrifuð af karl- manni. Það átti að skiljast sem hrós, og þannig tók ég það líka. Að vísu bað maðurinn guð að hjálpa sér og spurði hvort ég væri kannski lesbisk — en allt í gríni auðvitað! og ástæðan var sú, að ég hafði sagt honum að konur væru skemmti- legri en karlmenn“ og Fríða hlær hressilega. „En vissulega langar mig til þess að gera reynslu kvenna gilda í bókmenntum,“ heldur hún áfram. „Ég er að mörgu leyti sammála þeirri kenningu, sem margir femínistar hafa haldið fram, að karlmenn geti tæplega lýst lífi og „Er hægt að vinna verk sín of vel? Ég held ekki.“
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84

x

19. júní

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: 19. júní
https://timarit.is/publication/671

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.