19. júní

Ataaseq assigiiaat ilaat

19. júní - 19.06.1981, Qupperneq 22

19. júní - 19.06.1981, Qupperneq 22
Frænkurnar Þorbjörg Sveinsdóttir og Ólafía Jóhannsdóttir, frumkvöðlar Hins íslenska kvenfélags. Ólafía lauk fyrst kvenna 4. bekkjar prófi frá Menntaskólanum í Reykjavík. búnar miklu kvenréttindatali, hugsaði hún sér að ná til þeirra með húsmæðrablaði. Smátt og smátt kom hún að greinum um réttindamál kvenna, og enginn efi er á því, hvað hún hefur ætlast fyrir með blaði sínu frá upphafi. Þarna var kominn opinber málsvari kvenna, og þar sem blaðið kom strax á fyrsta ári út í 2500 eintökum, en það var meiri út- breiðsla en nokkurt annað blað á landinu hafði, er enginn efi á því, að áhrif þess á hugsunarhátt kvenna hafa verið mikil. Árið 1911: Jafnrétti Eitt af því fyrsta, sem Bríet beitti sér fyrir með aðstoð Kvenréttinda- félags íslands, sem hún hafði stofnað 1907, var að fá Hannes Hafstein til að bera fram frumvarp um, að konur fengju aðgang að öllum menntastofnunum landsins, embættum og öðrum opinberum 20 stöðum með sömu skilyrðum og karlar. Eins og við var að búast höfðu þingmenn skiptar skoðanir á málinu, og fræg hafa orðið um- mæli Jóns Ólafssonar, 2. þing- manns S-Múlasýslu, sem komst svo að orði við umræðurnar á Al- þingi, þegar þingmenn ræddu em- bætti kvenna, að það væri „óhag- ræði, ef sýslumaður lægi á sæng, þegar hans væri vitjað til að rann- saka glæpamál eða kveða upp varðhaldsúrskurð, eða tæki létta- sóttina, þegar hún væri á mann- talsþingaferð.“ Hann veitti raunar frumvarpinu samþykki sitt þrátt fyrir þessi orð. Frumvarpið var samþykkt 23. apríl 1911 með 16 atkvæðum gegn 5 og fékk konungsstaðfestingu sama ár. Þar með lauk rúmlega aldarfjórðungs baráttu fyrir sjálf- sögðum mannréttindum. ísland varð fyrsta landið, sem veitti kon- um sama lagalega rétt til náms og embætta og körlum. Fyrstu konurnar Árið 1890 lauk fyrsta konan 4. bekkjar prófi við Lærða skólann í Reykjavík. Þessi kona var fyrr- nefnd Ólafía Jóhannsdóttir, en hún var fædd 22. okt. 1863 að Mosfelli í Mosfellssveit, þar sem faðir henn- ar, séra Jóhann Benediktsson, var prestur. Móðir hennar var Ragn- heiður Sveinsdóttir, systir Bene- dikts, sýslumanns og Alþingisfor- seta og Þorbjargar ljósmóður, sem ól hana upp frá 5. ári. Áhrif frænku hennar og heimilis hennar urðu afdrifarík og réðu miklu um fram- tíð Ólafíu. Þangað kom margt fólk, sem dvaldi þar um lengri eða skemmti tíma, og frá þvi að Ólafía kom þar, árið 1868 og til dauða Þorbjargar árið 1903, var saga þessara tveggja kvenna mjög ná- tengd. Hvatninguna og tækifærin til þess að mennta sig fékk Ólafía á heimilinu. Eins og hér hefur komið fram, þurftu stúlkur að sækja um sér- stakt Ieyfi til að taka próf við skól- ann, og þær höfðu hvorki leyfi til að sitja í skólanum né nutu þær styrkja eins og piltar. Ólafía lauk 4. bekkjar prófi árið 1890, fyrst kvenna við skólann. Vafalaust hefði hún setzt í skólann og lokið stúdentsprófi, ef réttur kvenna hefði verið orðinn meiri en raun var. Hún sótti um leyfi til að ganga Framhald á bls. 47. Elínborg Jakobsen í hópi samstúdenta.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84

x

19. júní

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: 19. júní
https://timarit.is/publication/671

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.