19. júní


19. júní - 19.06.1981, Síða 27

19. júní - 19.06.1981, Síða 27
algengt að bæði hjónin vinni úti, eins og sagt er, en áður fyrr vann konan næstum eingöngu að heim- ilisstörfum. Þessi breyting veldur vaxandi þörf fyrir dagvistunar- stofnanir.“ Og síðar: „Spurningin um verkaskiptingu innan fjölskyld- unnar minnir á að breyting hefur einnig orðið á hvaða augum við lítum á sambandið á milli hjóna og á milli foreldra og barna. Þetta sam- band er að færast í meiri jafnréttisátt en áður tíðkaðist. Hví skyldu kon- ur vera bundnar við matargerð og barnauppeldi og því skyldu karlar vera bundnir við að vinna úti? Er ekki eðlilegra að bæði kynin deili með sér þeim verkum, sem vinna þarf bæði innan heimilis og utan?“ Siðar í kaflanum er einnig fjall- að um einstæða foreldra og börn og er það mikil framför, því í hefð- bundnum hugmyndum um fjöl- skylduna er ekki gert ráð fyrir annars konar fjölskyldum en þeim sem um getur í ævintýrunum: Karl og kona hittast, verða ástfangin, eignast börn og lifa saman til ævi- loka. Tæpast hefur verið litið á einstætt foreldri og barn þess sem fjölskyldu. Dæmi sem þetta, gefur vissulega tilefni til bjartsýni. Annað dæmi er bókin „Unga fólkið og eldhússtörfin“. Að vísu er þar ekki á ferðinni ný bók, heldur hefur verið breytt um nafn á bók- inni „Unga stúlkan og eldhús- störfin“. í formála að þeirri útgáfu sagði: „Flest störf krefjast þekk- ingar og eru heimilisstörfin þar síst undantekning. Konur (!) þurfa að afla sér hennar á unga aldri og æfa saman huga og hönd...“ Þessi út- gáfa var notuð til skamms tíma. Nýtni tefur þróunina En því miður heyra slíkar bækur enn til undantekninga. Yfirleitt eru sömu bækurnar notaðar í grunnskólunum árum og jafnvel áratugum saman og því tekur breytt hugarfar langan tíma að sí- ast inn í öll fög. Ólafur H. Jóhannsson, skóla- stjóri Æfingaskóla Kennarahá- skóla Islands, tók fyrir nokkrum árum saman ritgerð, þar sem hann kannaði efni um fjölskylduna í ís- lenskum námsbókum. Þar segir hann að lítið sem ekkert úrval hafi verið af námsbókum innan hverrar námsgreinar og jafnframt hafi sömu bækurnar verið mjög lengi í notkun, aðeins endurprentaðar eftir þörfum. Sem dæmi nefnir hann lestrar- bækur i samantekt Freysteins Gunnarssonar, sem komu út á ár- unum 1940—1948. íslandssaga Jónasar Jónssonar er líka komin til ára sinna, því hún kom fyrst út árið 1910. Vegna þessa telur Ólafur að bil myndist milli ýmissa þeirra gilda og viðhorfa, sem fram komi í bókunum og þeirra, sem viður- kennd séu í samfélaginu. í ritgerðinni athugar Ólafur skólabækur þær, sem notaðar voru árið 1974 í 4., 6. og 8. bekk grunn- skólans. I stuttu máli voru niður- stöður hans þær, að efni um fjöl- skylduna sé lítið að vöxtum i þeim bókum, sem athugaðar voru, að sú fjölskyldumynd sem í efninu birtist sé fyrst og fremst mynd fjölskyld- unnar í islensku bændasamfélagi og að af því leiði að efni námsbók- anna hafi ekki breyst jafnhratt og þjóðfélagið, sem leiði svo til mis- ræmis milli efnisins og hins félags- lega veruleika barnsins, sem nemur þetta efni. Er fjölskyldan aukaatriði? Á þeim sjö árum, sem liðin eru síðan Ólafur gerði athugun sína hefur heldur mjakast í rétta átt. Þó leiddi óvísindaleg hraðkönnun, sem ég gerði á nokkrum námsbók- um í yngri bekkjum grunnskólans, að sumu leyti það sama í ljós. Fjölskyldan kemur afar óvíða fyrir í bókunum og þá ekki síður verka- skipting kynjanna á vinnumark- aði. Flestar bókanna gera þvi hvorki að viðhalda ríkjandi við- horfum né útrýma þeim. Og enn eru sums staðar í notkun Nú er ekki lengur talið útilokað að stúlkur geti haft áhuga á hefðbundnum „karl- mannsstörfum" eins og trésmíði. Myndin er úr bókinni „Komdu í leit um bæ og svelt." bækur eins og „Lesum og lærum,“ sem ætluð er yngstu krökkunum. Þar er hlutverk konunnar augljóst í gegnum alla bókina. Mamma fer með börnin til læknis og þau hjálpa mömmu með uppþvottinn. Pabbi kemur þar hvergi nærri. Það getur verið að sumum finn- ist þetta vera smáatriði og að þarna sé aðeins verið að lýsa hlutunum eins og þeir séu víðast hvar. En það eru einmitt svona „smáatriði“ sem hjálpa til við að viðhalda þjóðfél- agsmynd, sem annars er á undan- haldi. Og þótt þau komi ekki í veg fyrir að konur og karlar nái jafn- rétti á öllum sviðum þjóðlífsins, þá geta þau tafið fyrir. Þess vegna ber því að fagna að þeir sem sjá um útgáfu námsbóka fyrir börn, skuli vera vakandi í því að breyta þessu í nýju bókunum. 25
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84

x

19. júní

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: 19. júní
https://timarit.is/publication/671

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.