19. júní


19. júní - 19.06.1981, Page 30

19. júní - 19.06.1981, Page 30
Tækninám samræmist ekki kvenímyndinni Tækniskólinn er ekkert aðlað- andi og námið ekki aðgengilegt. Það samræmist ekki kvenímynd- inni. Stúlkur hafa heldur ekki fengið næga uppörvun. Við erum ekki aldar upp við að tækni sé eitt- hvað fyrir okkur. Uti í Danmörku háði það mér að ég vissi ekki nafnið á algengustu verkfærum, hvorki á dönsku né íslensku. Maður verður að fara inn í tækniskóla með sér- stöku hugarfari og það er mikil- vægt að þekkja konur sem hafa haft svipaða reynslu, konur sem skilja mann og vilja ræða málin. — En ég sé svo sannarlega ekki eftir því að hafa farið í tækninám og ég tel mikla ástæðu til að hvetja kon- ur að leggja út á þessa braut. Konur spyrja annarra spurninga Tæknifræði er afstaða hlutar til hlutar, einkalífi og samfélagi er haldið utan við. Þetta þýðir að tækniþróun skeður í tómarúmi, þar sem enginn spyr hvað hlutirnir þýða fyrir samfélagið eða fyrir manneskjuna sjálfa. Þess vegna er mjög áríðandi að við konur fáum skilning á tækniþróun og getum þar með haft áhrif á hana. Konur hafa i uppeldinu lært að taka tillit til félagslegra þátta og umhverfis, og ég er viss um að við komum til með að spyrja annarra spurninga en karlar þegar við hönnum götur, gangstéttir og mannvirki. Við spyrjum, „Hvar eiga börnin að vera?“ Við hugsum um manneskj- una sem á að lifa og hrærast í um- hverfinu — hvar leiksvæðin eru og hvernig á að komast áfram með barnavagn. Iðnskólinn í Reykjavík Samanburður á nemendafjölda Iðnskólans í Reykjavík Konur Karlar Alls Skólaárið 1970-71 95 10% 841 90% 936 Skólaárið 1980-81 198 18% 877 82% 1075 Miðar þótt hægt fari Þegar bornar eru saman skýrslur Iðnskólans í Reykjavik frá árunum 1970—71 og frá 1980—81, má sjá að stefnt hefur í rétta átt á þessu tímabili, þótt sú þróun sé alltof hæg. Enn sem fyrr eru konurnar flestar í hársnyrtingu, þ. e. hár- greiðslu og hárskurði, eða 90 alls á móti 7 körlum. En konur eru að sækja í sig veðrið og nokkrar hafa farið í iðn- greinar sem konur hafa ekki stundað áður, s. s. húsgagnbólstr- un, málmiðnir, tréiðnir og út- varpsvirkjun. Það opnaðist fyrir mér nýr heimur Hrönn Hjaltadóttir. Rætt við Hrönn Hjaltadóttur loftskeytamann og nema í útvarpsvirkjun Hrönn er Reykvíkingur, enda þótt hún sé loftskeytamaður á tog- aranum á Kaldbaki frá Akureyri. Eftir jól í vetur fékk hún mann til að leysa sig af svo hún gæti stundað nám í útvarpsvirkjun við Iðnskól- ann í Reykjavík. Það var greinilega góð regla á hlutunum á efstu hæð í vestur- álmu skólans, þar sem nemar í út- varpsvirkjun voru í verklegum tímum. Áhuginn lýsti af hverju andliti, þar sem menn einbeittu sér við vinnuna. Hrönn var þarna greinilega í essinu sínu. Blaða- maður 19. júní þorði ekki að tefja nema stutta stund svo við mæltum okkur mót eftir skóla. Varí 13 ár hjá KRON Ég lauk prófi frá Kennaraskól- anum árið 1961 og fór síðan að vinna á skrifstofu — lengst af hjá KRON, í 13 ár samfleytt. Ég var orðin leið á að sitja á skrifstofu, en endanlega sagði ég upp vegna þess að seinustu árin vann ég skrif- stofustjórastörf, þótt ég fengi ekki það starfsheiti og þar af leiðandi ekki þau laun sem mér bar. Ég ákvað því að segja upp og fara í 28

x

19. júní

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: 19. júní
https://timarit.is/publication/671

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.