19. júní - 19.06.1988, Qupperneq 19
Afi hefur þolinmæði til að svara öllum spurningunum.
Mörg nútímabörn fara á mis við þá
yndislegu upplifun að eiga afa og
ömmu sem dekra við þau og veita
þeim athygli, auk þess sem þau læra
þá aldrei að þekkja eldri kynslóðina.
f»ví er þessi lausn mjög góð á margan
hátt og gefandi fyrir báða aðila. Auð-
vitað hentar hún ekki öllum og alls
staðar, en ætti tvímælalaust að vera til
staðar og vonandi verður meira um
það í framtíðinni að börn fái góða
„ömmu“ og „afa“ til að passa sig á
meðan mamma og pabbi eru að
vinna.
Einkadagheimili og
einkaleikskólar
Foreldrar grípa til ýmissa ráða
þegar lítil sem engin von virð-
ist vera til þess að börn þeirra
fái inni á opinberri dagvistar-
stofnun. Astandið er slæmt nú, en
virðist síst hafa verið betra fyrir 15
árum því að þá sá hópur foreldra
þann kost vænstan að stofna einka-
dagheimili. Þetta var barnaheimilið
Ós sem stofnað var haustið 1973.
Barnaheimilið hefur átt í húsnæðis-
hraki og við það skapaðist óöryggi um
tíma í rekstrinum, en í dag er það til
húsa að Berþórugötu 20 og er rekið af
foreldrum barnanna sem þar dvelja
hverju sinni. Foreldrar taka þátt í
starfseminni á heimilinu á ýmsan
hátt, svo sem við viðhald starfsað-
stöðu og með gæslu barnanna vegna
hádegisfundar starfsfólks einu sinni í
viku.
Innheimt daggjöld, sem eru 15.000
á mánuði fyrir hvert barn, og styrkur
frá Reykjavíkurborg mynda rekstrar-
grundvöll heimilisins. Á Ósi eru 22
börn frá 2Vi árs en hámarksaldur er
enginn. Þarna er alltaf langur biðlisti.
Við val nýs barns á Ós er tekið tillit til
eftirfarandi: aldur og kyn barnsins
þ. e. hvernig það passar inn í þann hóp
sem fyrir er á heimilinu, aldur um-
Umsjón: Helga Helgadóttir
sóknar, tíðni ítrekana eða hvort um
gamlan „Ósara" er að ræða. Við
heimilið starfa 4 fóstrur og 1 matráðs-
kona sem allar telja það mikinn kost
að starfa svo náið með foreldrum.
Nokkrum árum eftir stofnun Óss,
eða árið 1977, taka félagar úr Ananda
Marga sig saman og setja á stofn leik-
skóla. Síðan lenda þeir í húsnæðis-
hraki þannig að erfiðleikar urðu með
starfsemina og það er ekki fyrr en árið
1984 sem skilningur borgarstjórnar
vaknar og þeir fá aðstöðu til að reka
þessa starfsemi. Árið 1985 opna þeir
leikskólann Sælukot við Þorragötu.
Þar eru nú 40 börn, 10 allan daginn og
30 hálfan daginn, en síðastliðið ár
voru 90 börn á biðlista enda geta allir
sótt um eins og á barnaheimilinu Ósi.
í Sælukoti eru 6 starfsmenn, þar af 4
erlendir. Hvert foreldri leggur fram
5-8 stunda vinnuframlag á ári. í
tengslum við leikskólann er starf-
ræktur skóli fyrir 6 ára og eru þar nú 8
nemendur í kennslu fyrir hádegi og
gæslu eftir hádegi. Búið er að fá leyfi
fyrir 7 ára bekk næsta vetur. Þetta eru
börn sem hafa áður verið á leikskól-
anum. Þrátt fyrir góðan árangur og
almenna ánægju foreldra með fyrir-
komulag einkadagvistar, munu þetta
vera einu dagheimilin í Reykjavík
sem rekin eru með þessu sniði.
19