19. júní


19. júní - 19.06.1988, Síða 28

19. júní - 19.06.1988, Síða 28
Þú opnar dós og gæðin koma í Ijós! Kvenna- sögu- safn Islands Kvenna- sögusafn íslands Hjarðarhaga 26, Reykjavík, sími 12204. DAGMÆÐUR Reynsla foreldra: EFTIRLITIÐ TIL SKAMMAR Katrín Baldursdóttir, gift tvcggja barna móðir, segir frá: „Eldri dóttirmín, Karen Lind, fór fyrst til dag- mömmu þegar hún var um 2 ára. Dagmóðirin var ágæt, en af einhverj- um ástæðum leiddist Karenu mjög og það var mjög erfitt að skilja hana eft- ir. Hún grét þegar ég fór og beið mín allan daginn. Þetta gekk ekki til lengdar og eftir 6 vikur flýði ég á náðir mömmu. Nokkru síðar frétti ég af lausu plássi hjá annarri dagmömmu og ákvað að líta á staðinn. Aðstaðan var engin, allt var skítugt, börnin voru mörg og kettir alls staðar sem migu í sandkassann í garðinum, sem var eina aðstaðan sem konan hafði. Börnin voru látin leika sér í holinu og leikföngin voru bara drasl. Ég sagði nei takk. Eftir langa leit fékk ég loks pláss hálfan daginn fyrir hana hjá nýrri dagmömmu og þar var allt í góðu lagi. Par var hún í um hálft ár en þá eignaðist ég Sunnevu og var heima með þær báðar í eitt ár. Þegar ég ætlaði að fara að vinna úti aftur var mjög erfitt að fá gæslu fyrir þær, næstum útilokað. Svo fékk ég vinnu á leikskóla hálfan daginn og forstöðukonunni þar tókst með ýtni að fá dagmömmu fyrir Sunnevu. Kar- en fékk inni á leikskólanum, enda orðin 3 ‘/i árs og er þar enn, en ég er hætt í þeirri vinnu. Sunneva er hjá sömu dagmóðurinni og líkar mjög vel hjá henni, enda er þetta mjög blíð og góð kona. Vandinn er sem sagt leyst- ur í bili. Það er algjört happdrætti hvernig dagmömmu maður fær en ég býst við að við höfum verið frekar heppin. Ég hef verið vandlát, en því miður getur það verið mjög erfitt fyrir fólk í neyð að neita lausu plássi þó aðstæður séu lélegar. Það er eftirlitið sem mér finnst alveg til skammar." — vd. BARNA HERÐATRÉ ng, einstæð móðir með eitt barn, segir frá: Dóttir mín var eins og hálfs árs þegar ég þurfti að láta hana frá mér í pössun en mamma mín hafði hjálpað mér fram að því. Ég sótti strax um fyrir hana á dagvistar- heimili enda komin í forgangshóp. Það var ekkert laust fyrir hana og ég varð að setja hana til dagmömmu. Eina plássið sem var laust var hjá tveimur konum sem voru saman um að gæta 10-12 barna. Þær voru að vísu í stóru húsnæði en nýttu mjög lítinn hluta af því fyrir börnin og lokuðu til dæmis stórri stássstofu af. Hún hefur sjálfsagt verið talin með þegar þær fengu leyfið og kannski hafa einhver af þessum börnum verið hálfan daginn, en tím- arnir skarast, um það er ég ekki viss. En í eitt skipti þegar mér fannst ansi margt hjá þeim þá taldi ég þarna 14 börn. Börnin voru mest í einu galtómu herbergi og leikföngin voru fá og lé- leg, hauslausar dúkkur og því um líkt. í öðrum 2 herbergjum voru oft sof- andi ungabörn og þar gátu hin ekki verið. Ég gat ekki kvartað beint, því þá hefði ég átt á hættu að missa plássið þannig að ég kom kvörtun áleiðis eftir krókaleiðum og kunningsskap til Fé- lagsmálastofnunar. Svörin voru þau að þessar konur hefðu bestu meðmæli og langa starfsreynslu og því ekki ástæða til að gera neitt. Mér fannst hins vegar að ég hefði alveg eins getað hengt dóttur mína á herðatré og sett hana inn í skáp, eins og að fara með hana til þessarra kvenna. En það var ekkert annað að fá og loksins eftir eitt og hálft ár losnaði pláss á dagvistar- heimili. Stelpunni líkar mjög vel þar og er eins og annað barn. Hún er að gera eitthvað þroskandi núna, hún situr ekki lengur og bíður eftir mér. 28
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84

x

19. júní

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: 19. júní
https://timarit.is/publication/671

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.