19. júní


19. júní - 19.06.1988, Síða 30

19. júní - 19.06.1988, Síða 30
Sunna Björg ■ Guðmundur Þór Magnússon Klukkutími stundum langur Pabbarnir eru strangari Sunna Björg Símonardóttir er 8 ára og býr í Vesturbænum hjá mömmu sinni sem heitir Soffía Guönadóttir. Sunna hefurtals- verða reynslu af hinum ýmsu kostum sem bjóöast í dagvistarmálum og viö skulum gefa henni sjálfri orðið: „Fyrst var ég á vöggustofu á Lauga- borg þegar ég var 3 mánaða og svo var ég á venjulegri Hagaborg. Á eftir því var ég hjá þremur dagmömmum, ein hét Henný og ein Gisela og svo var ég líka hjá einni a Akranesi þegar við áttum heima þar. Svo var ég á ein- hverju öðru dagheimili þegar ég var 5 ára en ég man ekkert eftir því. Og svo byrjaði ég á skóladagheimilinu í haust, það heitir Skáli. Pað er mest gaman að vera hérna. Eg er í skólanum frá 8 til 12 og þá kem ég hingað með strætó og er stundum til 4 en stundum til 6 af því að mamma þarf stundum að fara á kennarafundi. Hún er kennari, því miður, og þarf að vinna svo rosalega mikið heima og fær næstum engan pening! Svo borgar hún mikla skatta og námslán og við ætlum líka að kaupa nýja íbúð svo við eigum eiginlega aldrei pening. Heyrðu, ég er einn klukkutíma í sundi á dag og það er svo skemmtilegt og klukkutíminn er stuttur. En þegar ég er að bíða eftir mömmu einhvers staðar í einn klukkutíma þá er klukkutíminn alveg rosalega langur?“ — vd. / g er í skólanum fyrir hádegi, stundum er ég búinn klukkan ellefu og stundum klukkan tólf. Þá fer ég heim og fæ mér að borða og byrja svo strax að læra. Eg á tvo bræður, annar er 6 ára og hinn er 2ja ára, þeir eru á leikskóla fyrir hádegi. Mamma vinnur til klukkan eitt á daginn, þá kemur hún heim til að hugsa urn okkur. Við fengjum auðvitað meiri pen- inga ef mamma ynni úti allan daginn, en einhver verður að passa börnin og mömmurnar eru bestar í það, því pabbarnir eru miklu strangari." — Passar þú stundum litla bróður þinn? „Já, ég fer út að labba með hann, svo leik ég stundum við hann. Mér finnst alveg ágætt að eiga tvo bræður, en ég þekki strák sem á fjórar systur, það er nú dálítið mikið.“ — Hefur þú verið á dagheimili eða leikskóla? „Þegar ég var lítill var ég á Austur- borg, svo hætti ég þar þegar ég var 5 ára og byrjaði á leikskóla. Mér fannst miklu skemmtilegra á leikskólanum, því við krakkarnir fengum að vera svo mikið úti.“ — Hvað finnst þér skemmtilegast að gera? „Það skemmtilegasta sem ég geri er að fara á skíði. Þegar ég er inni, leik ég mér mikið á tölvuna mína. — Það versta er, að það eru svo fáir strákar á mínum aldrei til að leika við í hverf- inu sem ég bý í. Maggi vinur minn, sem er í sama bekk og ég, á heima langt frá mér. — Ég hlakka til þegar skólinn er búinn í vor, þá get ég farið að hjóla og æfa fótbolta og handbolta fyrir alvöru.’ — Leikur þú þér stundum við stelpur? „Það er nú ekki oft, en samt finnst mér ekkert asnalegt að leika við stelp- ur, þær eru ekkert verri en strákar." HLUSTUM A BÖRNIN 30
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84

x

19. júní

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: 19. júní
https://timarit.is/publication/671

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.