19. júní


19. júní - 19.06.1988, Side 49

19. júní - 19.06.1988, Side 49
Mánaðarlegar skattgreiðslur vegna starfa utan heimilis Tekjur 30 þ.kr. 40 þ.kr. 60 þ.kr. Sveitarfélag 2 3 4 Ríki 8 12 21 Skattgreiðslur samtals: 10 12 25 ákvöröun hjóna að vinna bæöi utan heimilis. Skattgreiðslur til ríkis og sveitarfélaga Við skulum skoða skatt- greiðslurnar sem ganga til ríkis og sveitarfélags þegar foreldri sem hefur verið heimavinnandi hefur störf utan heim- ilis. I dæminu hér er gert ráð fyrir því að af persónufrádrættinum nýtist 7 þúsund krónur til lækkunar á tekju- skatti, en hinn hluti persónuafsláttar- ins sé yfirfærsla frá maka. Einnig er gert ráð fyrir því að fjórðungur ráð- stöfunartekna gangi til ríkisins í óbeinum sköttum. Utsvarið er tæp- lega 7% teknanna. Strax við 30 þúsund króna tekjur er heildarskattgreiðslan komin í 10 þús- und krónur, þar af 8 þúsund krónur til ríkisins og 2 þúsund krónur til sveitar- félagsins. Við 60 þúsund króna tekjur verður skattgreiðslan 4 þúsund krón- ur til sveitarfélagsins og 21 þúsund krónur til ríkisins eða samtals 25 þús- und krónur. Ég tel þessar tölur sýna ótvírætt að það er fráleitt að ríkið kosti engu til vegna dagvistunar barna. Kostnaður vegna dagvistunar Fjöldi barna íhverjum árgangi á forskólaaldri er um fjögur þús- und. Ef við áætlum kostnað- inn við hvert barn á dagheimili um 20 þúsund krónur vegna rekstrar og 5 þúsund vegna fjárfestingar er heildarkostnaður á hvert barn á mán- uði kr. 25 þúsund. Ef árgangurinn væri allur á dagheimili yrði kostnað- urinn 100 miljón krónur á mánuði eða 1.200 m.kr. á ári. Ef helmingurinn væri á dagheimili yrði kostnaðurinn 600 nt.kr. Fimm árgangar mundu þá kosta 3.000 m.kr. á ári. Taka þarf tillit til viðbótarkostnaðar vegna vöggustofa sem eru dýrari en dag- heimili og leikskóla sent eru ódýrari. Heildarkostnaður við vistun barna á forskólaaldri gæti því verið um 4.500 m.kr. Greiðsla foreldra og opinberra aðila Eins og kerfið er í dag greiða foreldrar í forgangshópi kr. 5.460 á mánuði og aðrir for- eldrar kr. 8.400. Miðað við 25 þúsund króna kostnað á hvert barn bera foreldrar utan forgangshóps því unr einn þriðja kostnaðarins en sveit- arfélagið tvo þriðju. Ég tel sanngjarnt að ríkið greiði einn þriðja, sem miðað við ofangreindar tölur yrði kr. 8.300 eða kr. 8.400 á hvert barn á dagheim- ili. Ég tel að framlag ríkisins eigi að vera föst krónutala ntiðað við áætlað- an meðalkostnað við rekstur dag- heimilis þannig að sveitarfélagið njóti þess ef það getur komið rekstrinum fyrir á hagkvæman hátt. Framlag frá ríkinu þarf ekki að leiða til afskipta ríkisins af rekstrinum. Ef ríkið axlar þriðjung kostnaðar- ins í heild gætu útgjöldin orðið um 1.500 nt.kr. á ári þegar sveitarfélögin hafa brugðist við og komið upp dag- vistarheimilum til að nýta framlögin. í fyrsta lagi gerist það ekki á einu ári og auðvitað getur verið rökrétt að rík- isframlagið verði látið hækka í áföng- um í einn þriðja kostnaðar. Ríkisframlag er réttmæt krafa Það er hins vegar ljóst að skatt- heimtan til ríkissjóðs vegna útivinnu beggja foreldra rétt- lætir verulegt ríkisframlag. Miðað við forsendur dæmisins hér að framan hefur ríkið þegar við rúmlega 30 þ.kr. tekjur þess foreldris sem síð- ar fer út á vinnumarkaðinn jafn mikl- ar tekjur og kosta þurfti til vegna eins barns á dagheimili ef ríkið greiddi þriðjung kostnaðar. Skattheimtan til dagvistunar er því nú þegar til staðar. Ég sé því ekki að benda þurfi á sér- staka tekjustofna vegna þessa verk- efnis. Sé það hins vegar talið nauð- synlegt að skattleggja sérstaklega vegna framlags til dagheimila er að rnínu mati eðlilegast að það gerist með sérstakri gjaldtöku af atvinnu- rekendum. Greiðsla fyrir að vera heima? Að undanförnu hafa ýmsir lýst stuðningi við þá hug- mynd að greiða foreldrum ákveðna fjárhæð úr ríkis- sjóði vegna hvers barns og sé foreldr- urn frjálst að velja hvort fjárhæðin sé nýtt til að greiða hluta af kostnaði við dagvistun barnsins eða ef foreldrarnir kjósa heldur til þess að gera öðru for- eldranna kleift að vera heima með börnunum. Við óbreytta hlutverka- skiptingu kynjanna er vitað að konur myndu frentur en karlar vera það for- eldrið sem tæki að sér að vera heima. Það yrði að mínu mati spor afturábak í jafnréttisbaráttunni ef flestar konur yrðu langdvölum utan vinnumarkað- arins það tímaskeið ævinnar sem karl- menn nota almennt til að koma sér fyrir og afla sér starfsreynslu. Ég tel þann kost því óskynsamlegan sem al- menna reglu þó hún geti komið til greina sé um mjög barnmarga fjöl- skyldu að ræða. Tölurnar hér að framan sýna hins vegar að greiðslu- leiðin yrði mjög dýr. Ekki bara vegna hinna beinu útgjalda ríkissjóðs heldur og enn frekar vegna þess tekjumissis sem ríkissjóður yrði fyrir ef konurnar drægju sig út af vinnumarkaðinum. Sá tekjumissir gæti orðið mun meiri en beinu útgjöldin. Þá er auðvitað ekki tekið tillit til þeirra áhrifa sem það hefði á ýmsar greinar atvinnu- lífsins að missa konur úr störfum. Börnin veröa aö ná rétti sínum að er auðvitað gömul tugga að börnin séu framtíðin. Það er engu að síður einföld stað- reynd. í dag er illa búið að mörgum börnum og sum eru nánast á vergangi stóran hluta sólarhringsins. Þau bera þunga bagga vegna útivinnu beggja foreldra. Ég óttast að þau rnuni ekki öll standa undir þeirri byrði. Við megum ekki fórna börnun- um. Börnin eiga rétt á góðum upp- vaxtarskilyrðum. Barnanna vegna og ekki síður vegna okkar sjálfra ber okkur að tryggja að þau nái rétti sín- um. 49

x

19. júní

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: 19. júní
https://timarit.is/publication/671

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.