19. júní


19. júní - 19.06.1988, Side 53

19. júní - 19.06.1988, Side 53
Frá vinstri: Sigurður Snævarr, Þrúður Helgadóttir, Inga Jóna Þórðardóttir, Lára V. Júlíusdóttir og Jóna Ósk Guðjónsdóttir. Á myndina vantar Bessí Jóhannsdóttur. Könnun þessi fer fram á vegum fram- kvæmdanefndar forsætisráðuneytis um samanburðarkönnun á launum karla og kvenna og er unnin af Félags- vísindastofnun Háskóla íslands. Gert er ráð fyrir að niðurstöður verði til- búnar síðla sumars. Samfelldur skóladagur Starf nefndarinnar í vetur hefur aðallega verið tengt skólamál- um og dagvistarmálum auk al- mennrar gagnasöfnunar. Áfangaskýrsla nefndarinnar nú í vor fjallar einungis um þá tvo mála- flokka, en lokaskýrsla verður vænt- anlega tilbúin í haust. Varðandi skólamálin hafa hæst borið aðgerðir til að koma á samfelldum skóladegi fyrir alla grunnskólanemendur svo og tillögur um lengingu skóladags. Á undanförnum árum hefur mikið verið unnið að því að koma á samfelldum skóladegi í grunnskólum. Ragnhildur Helgadóttir, þáverandi menntamál- aráðherra, skipaði nefnd undir for- ystu Salóme Þorkelsdóttur til að fjalla um samstarf heimila og skóla. Nefnd- in skilaði skýrslum urn samfelldan skóladag annars vegar um höfuð- borgarsvæðið og hins vegar um dreif- býlið. Starfsemi nefndarinnar hafði þegar þau áhrif að umræða fór af stað og skólarnir fóru hver fyrir sig að at- huga hvað hægt væri að gera til að bæta ástandið. Smám saman fóru stundaskrár að bera þess merki að hagsmunir nemenda væru hafðir í fyrirrúmi og nú er svo komið t.d. í Reykjavík að tæp 75% nemenda á grunnskólaaldri njóta samfellds skóladags og 21% til viðbótar þurfa ekki að fara nema eina aukaferð á viku í skólann. Þarna hefur umtals- verður árangur náðst. Tölur þessar eru fyrir nýliðið skólaár 1987-1988 en því miður liggja ekki enn fyrir sam- bærilegar upplýsingar frá öðrurn fræðsluumdæmum. Helsti þröskuld- urinn fyrir algjörri samfelldni er íþróttakennsla og kennsla í öðrum sérgreinum. Því þarf að bæta húsnæð- isaðstöðu sérgreinakennslu og að- stöðu til fullnægjandi hádegismatar. Þó að svo hátt hlutfall nemenda í Reykjavík hafi samfelldan skóladag ber þess þó að gæta að margir skólar eru tvísetnir og lætur nærri að þriðj- ungur bekkjardeilda sé eftir hádegi í skólanum. Einsetning í sjálfu sér er umdeilanlegt markmið, en leiðir hins vegar til næsta stórmáls sem er leng- ing skóladags. 6 klukkustunda skóladagur yngstu barnanna Skóladagur grunnskólanema er misjafnlega langur eða frá 22 kennslustundum á viku upp í 35 kennslustundir. Kennsla sex ára barna er heimil allt að einni viku- stund á hvern nemenda. Víðast hvar er raunin sú að sex ára nemendur fá 10-15 kennslustundir á viku. Hinn til- tölulega stutti skóladagur nemenda fyrstu bekkja grunnskólans og for- skólans hefur leitt til erfiðleika fyrir útivinnandi foreldra, þar sem litlir möguleikar eru á gæslu eftir að skóla- tíma lýkur. Margir skólar hafa brugð- ist við þessu með sérstökum viðveru- tíma eftir að kennslu lýkur og hópur barna fær inni á skóladagheimilum. I Reykjavík hafa 5.6% barna á aldrin- um 6-10 ára aðgang að skóladagheim- ili og mun það vera hæsta hlutfall á landinu. I könnun sem gerð hefur verið meðal foreldra skólabarna hef- ur komið í ljós að foreldrar eru fúsir að greiða sérstaklega fyrir viðveru- tíma eftir að kennslu lýkur. Mjög er brýnt að skólarnir bregðist fljótt við þessum vanda með að bjóða upp á viðverutíma, en hins vegar hlýtur það að vera keppikefli að nýta þann tíma sem, börnin dvelja í skólanum, þannig að hann nýtist betur í sambandi við nám þeirra. Með hliðsjón af þessu mun nefndin gera tillögur um leng- ingu skóladags með sérstakri áherslu á yngri börnin og áfangaáætlanir til að ná því marki að börn dveljist að minnsta kosti 6 klukkustundir á dag í skólanum, þar með talið kennslu- stundir, stundahlé og matarhlé. Til að ná þessu marki þarf jafnframt að skapa aðstöðu í skólanum til að neyta matar. 53

x

19. júní

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: 19. júní
https://timarit.is/publication/671

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.