19. júní


19. júní - 19.06.1988, Side 80

19. júní - 19.06.1988, Side 80
STARFSEMIKRFI Stjórn KRFÍ í stjórn félagsins 1987-88 áttu sæti Lára V. Júlíusdóttir formaöur, Arndís Steinþórsdóttir varaformaður, Jónína Margrét Guðnadóttir ritari, Ragn- heiður Harðardóttir gjaldkeri og Ast- hildur Ketilsdóttir meðstjórnandi. Stjórnarmenn kosnir á landsfundi voru Helga Sigurjónsdóttir, Aslaug Brynjólfsdóttir, Valgerður Sigurðar- dóttir, Ragnheiður Björk Guðmunds- dóttir, Kristín Jónsdóttir og Dóra Guðmundsdóttir. Varamenn kosnir á aðalfundi voru Dóra Eyvindardóttir, Sólveig Ólafsdóttir og Erna Bryndís Halldórsdóttir, en varamenn kosnir á landsfundi eru: Valborg Bentsdóttir, Gerður Steinþórsdóttir, Sigurveig Guðmundsdóttir, Guðrún Sæmunds- dóttir, Sigurlaug Gunnlaugsdóttir, Guðrún Gísladóttir, Sjöfn Halldórs- dóttir, Eygló Pétursdóttir, María Ás- geirsdóttir, Ásthildur Ólafsdóttir, Ás- dís J. Rafnar og Björg Einarsdóttir. Stjórn KRFÍ kom saman til funda að jafnaði einu sinni í mánuði síðastliðið starfsár og hélt samtals 10 stjórnarfundi, en auk þess hittist framkvæmdastjórn, sem í eiga sæti formaður, varaformaður, ritari og gjaldkeri, reglulega einu sinni í viku nema yfir hásumarið. Skrifstofa fé- lagsins hefur verið opin daglega mánu- daga til fimmtudaga frá kl. 13.00-16.00 nema yfir hásumarið. Björg Jakobsdóttir hefur verið framkvæmdastjóri félagsins síðastliðið ár. Félagsmenn eru nú eitthvað á sjötta hundrað. Aðildarfélögeru 41. Félagsgjöld hafa ekki innheimst nægilega vel, og þar sem fjárhagur félagsins hefur nær einvörð- ungu byggst á félagsgjöldum, hefur þetta háð starfsemi félagsins. Félagsfundir og fleira Mánaðarlega voru haldnir al- mennir félagsfundir, flest há- degisfundir, um þau mál sem efst voru á baugi hverju sinni. Með nýju starfsári sl. haust var tekin upp sú nýbreytni að skipta stjórninni upp í 3 hópa, sem skipta með sér að annast um undirbúning félagsfunda. Hefur þetta gef- ið góða raun, létt störfum af fram- kvæmdahóp og gert stjórnarkonur virkari í störfum fyrir félagið. Fyrsti fundur félagsins að loknum aðal- fundi ’87 var haldinn 8. maí í fyrra. Pað var hádegisverðarfundur í Litlubrekku með finnsku skáldkonunni Mörtu Tikkan- en. Marta sagði okkur frá starfi sínu sem skáld og las upp úr verkum sínum. Fund- urinn var mjög vel sóttur, og var húsfyllir í Litlubrekku. Mörtu var mjög vel tekið á fundinum, og er hún eftirminnileg öllum sem hittu hana. Marta var hér á ferð á vegum Sjálfsbjargar, félags fatlaðra, í til- efni hjálpartækjasýningar sem hér var haldin og var KRFÍ gefinn kostur á að fá hana til sín á fund gegn því að taka þátt í kostnaði vegna komu hennar hingað. Annar fundur var haldinn 16. maí í kjallara Hallveigarstaða. Var þetta fund- ur með nýkjörnum þingkonum, þar sem þær ræddu hvernig þær hygðust vinna að málefnum kvenna og jafnréttismálum á Alþingi. Á fundinn mættu þingkonurnar flestar ásamt hópi annarra áhugasamra kvenna sem ræddu málin af áhuga í þrjá klukkutíma. Voru konur allar sammála um nauðsyn þess að standa vel saman að kvennamálum á þingi. Fyrsti félagsfundur haustsins var hald- inn laugardaginn 3. október sl. í Holiday Inn og fjallaði hann um nýjar leiðir í dag- vistarmálum. Þar fjölluðu Ásmundur Stefánsson, forseti Alþýðusambands fs- lands, Inga Jóna Þórðardóttir, formaður fjölskyldunefndar ríkisstjórnarinnar, KristínÁ. Ólafsdóttir, borgarfulltrúi, Sig- urður Snævarr, hagfræðingur og Víglund- ur Þorsteinsson, formaður Félags ís- lenskra iðnrekenda um hugmyndir sínar að nýjum leiðum í dagvistarmálum. Er nauðsynlegt að samræma vinnudag skólabarna og foreldra? var spurt á öðrum fundi vetrarins, sem haldinn var 7. nóv- embersl. að Hallveigarstöðum. Á fundin- um höfðu framsögu Alda Möller, mat- vælafræðingur, Áslaug Friðriksdóttir, skólastjóri, Ólafur Davíðsson, hagfræð- ingur og Guðrún Agnarsdóttir, alþingis- maður auk þess sem Áslaug Brynjólfs- dóttir flutti fróðlegt erindi í upphafi fund- ar. Til fundarins var vandað að öllu leyti og erindi hin athyglisverðustu. Jólafundur félagsins var haldinn 9. des- ember að Hallveigarstöðum. Þar las Sig- rún Valbergsdóttir úr leikriti Kristínar og Iðunnar Steinsdætra, 19. júní, 7 hressar konur á besta aldri úr Firðinum sungu gömlu slagarana og Sigurveig Guðmunds- Vigdís Finnbogadóttir, forseti fsiands tekur við áskorun stjórnar Kvenréttindafélagsins úr hendi Láru V. Júiíusdóttur. f baksýn eru konur úr stjórn félagsins. Ljósmynd Gunnar Vigfússon. 80

x

19. júní

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: 19. júní
https://timarit.is/publication/671

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.