19. júní

Ataaseq assigiiaat ilaat

19. júní - 19.06.1988, Qupperneq 82

19. júní - 19.06.1988, Qupperneq 82
Framh. af bls. 12 Ólgan er sögö vera vegna ósveigj- anleika af hálfu Jóhönnu og vegna þess að hún sé ófús til samningavið- ræðna. Hvað segir hún sjálf um frum- varpið um kaupleiguíbúðirnar? Er samþykkt þess á Alþingi forsenda fyrir setu hennar í þessari ríkisstjórn — með öðrum orðum er hún tilbúin til að standa upp úr ráðherrastólnum náist ekki samkomulag um það? „Sjáðu til, þarna setur þú mig með spurningu þinni í sama ljós og sumir karlarnir hafa verið að reyna að gera gegn betri vitund. Þú segir raunveru- lega: „Þeir skilja að þeir verða að semja í þriggja flokka stjórn en þú ert ósveigjanleg og heimtar allt." Þetta er alrangt. Ég hef engu minni skilning á því að það þarf að semja og sýna fulla tillitssemi þegar skiptar skoðanir eru í samstarfi um stefnu, leiðir, forgang- mála og áherslur. Ef eitthvað er þá snýst málið miklu frekar um tillits- leysi annarra í minn garð en öfugt." Hér þagnar Jóhanna um stund, en bætir svo við: „En það eru auðvitað takmörk fyrir því hvað ég get samið við mína eigin samvisku. Og eitt er víst að ég geng aldrei lengra í samningum eða málamiðlun- um en ég get varið fyrir minni eigin sannfæringu og samvisku. Ég var spurð að því daginn sem ég tók við starfi ráðherra hvað mér væri efst í huga. Ég svaraði því til að ég ætti þá ósk að vera sátt við sjálfa mig þegar ég yfirgef ráðherrastólinn. Ég hef reynt að vinna samkvæmt því mottói. Ég gæti reyndar bent þér á hvert málið á fætur öðru sem afsannar þetta með ósveigjanleikann. Staðreyndin er sú að ég er einstaklega samvinnu- góð ef sanngirnin er líka með í spil- inu. Hitt er svo annað mál að ef ég finn að ég er beitt mikilli ósanngirni og rangindum í málum þá er senni- lega leitun að þrjóskari manneskju eða sem erfiðara er við að eiga. En skýringin er líka sú að valið hjá mér hefur oft staðið á milli þess að bíta fast frá mér eða hreinlega að druslast með og láta rúlla yfir mig. Auðvitað vel ég það fyrrnefnda þegar ég veit að ég hef réttan og sanngjarnan málstað að verja. Kannski er staðreyndin líka sú að karlarnir eru komnir skemmra á veg en við höldum, að viðurkenna konur með völd eða konur sem jafningja í áhrifastöðum. Staðreyndin er líka sú að sumri karlrembunni þykir einfald- lega „fínt“ að tala niður til kvenna og 82 aðrir leyna eigin vanmáttarkennd með því að gera slíkt. Þú spyrð sérstaklega um kaup- leiguíbúðir, þegar þú nefnir að ég sé ósveigjanleg. Af hverju hef ég barist hart fyrir þessu máli bæði í stjórnar- myndunarviðræðunum og nú í ráð- herrastól? Það er vegna þess að þetta er eitt af helstu baráttumálum Al- þýðuflokksins meðal annars í síðustu kosningum, mál sem Alþýðuflokkur- inn hefur lofað fólkinu að ná fram komist hann í ríkisstjórn, mál sem ég er sannfærð um að skiptir sköpum í húsnæðismálum landsmanna. Þess vegna hef ég sagt að Alþýðu- flokkurinn geti ekki við annað unað en að ná þessu máli fram og það sé prófsteinn á það hvort Alþýðuflokk- urinn eigi erindi í þessari ríkisstjórn. Spurningin um það hvort ég sé til- búin til að standa upp úr ráðherra- stólnum hafist það ekki í gegn, liggur því í hlutarins eðli með sama hætti og ég hefði aldrei fallist á að verða ráð- herra í þessari ríkisstjórn nema af því að kaupleigumálið náði fram að ganga í stjórnarmyndunarviðræðun- um." Trúnaðarbrestur Kvennalistinn fékk mikinn meðbyr í skoðanakönnun í mars og apríl, en Alþýðu- flokkurinn tapaði fylgi. Veldur það félagsmálaráðherra, Jó- hönnu Sigurðardóttur áhyggjum, sem einu konunni á þingi fyrir sinn flokk og einu konunni í ríkisstjórninni? „Þú virðist draga þá ályktun af skoðanakönnunum að vera mín á þingi fyrir Alþýðuflokkinn og að ég sé eina konan í ríkisstjórninni hafi ekki haft jákvæð áhrif í skoðanakönnun- um og nefnir í því sambandi að Al- þýðuflokkurinn hafi tapað fylgi. Ég vil nú leyfa mér að vona að ég gagnist Alþýðuflokknum heldur meira en það að reyta af honum fylg- ið. Og ég sé satt að segja ekki sam- hengið í því að þegar í skoðanakönn- unum er spurt um afstöðu fólks til einstakra stjórnmálamanna, hljóti ég annað sætið í þeirri fyrri og fimmta sætið í þeirri síðari, á sama tíma og ég er að reyta fylgið af flokknum. En ef ég svara spurningu þinni beint þá hef ég ekki af því áhyggjur að ég dragi niður fylgi flokksins eða ríkisstjórnar- innar. Ég held að þessi skoðanakönn- un sýni allt annað. Hún segir mér það eitt að það hefur orðið alvarlegur trúnaðarbrestur milli fólksins í land- inu og hefðbundinna stjórnmálaafla, bæði stjórnar og stjórnarandstöðu. Það að Kvennalistinn er orðinn stærsta stjórnmálaaflið í landinu sam- kvæmt skoðanakönnunum er að mínu viti vegna þess að fólki finnst, með réttu eða röngu, að Kvennalist- inn sé trúverðugt stjórnmálaafl, en önnur stjórnmálaöfl hafi brugðist trausti fólksins. Þetta ber að viður- kenna hvort sem okkur líkar það bet- ur eða verr því að hér er á ferðinni alvarleg áminning til stjórnmálaafl- anna í landinu. Stefnuskrá Kvenna- listans í hinum svokölluðu mjúku málum eða fjölskyldumálum er hvorki betri né verri en annarra stjórnmálaafla. I þessum skoðana- könnunum nýtur Kvennalistinn þess að hafa aldrei þurft að axla ábyrgð við landsstjórnina." Frá stöðu Kvennalistans í íslensk- um stjórnmálum er talinu vikið að stöðu kvenna í Alþýðuflokknum og hvað sé framundan hjá Jóhönnu Sig- urðardóttur. „í síðustu kosningum var markvisst unnið að því að koma fjórum konum inn á þing fyrir Alþýðuflokkinn, ekki munaði miklu að það tækist. Markið verður ekki sett neðar í næstu kosn- ingum. Stundum er vitnað til þess að konur hafi annað gildismat og leggi aðrar áherslur í stjórnmálin. Ég tel að svo sé. Yfirleitt leggja konur í öllum stjórnmálaflokkum mikla áherslu á það sem oftast eru nefnd „mjúku mál- in“ eða jafnréttismál í víðum skiln- ingi. Það höfum við í Alþýðuflokkn- um gert af miklum þunga. Meðal ann- ars hefur ítarleg stefnuskrá um málefni fjölskyldunnar verið sam- þykkt á flokksþingi. Þingmenn og sveitastjórnarmenn flokksins hafa síðan fylgt henni eftir á vettvangi sveitastjórna og á Alþingi. En konur jafnt sem karlar innan Alþýðuflokksins eru sammála um að reka ábyrga jafnréttis- og fjölskyldu- stefnu en undirstaðan er ábyrg efna- hagsstjórn. Ég hygg að þarna sé kom- ið að kjarna málsins. Stefna allra flokka þar með talin Kvennalistans, í fjölskyldu- og jafnréttismálum er nokkuð áþekk, en undirstöðurnar undir ábyrga stefnu eru misburðugar. Það veit sjálfsagt enginn hvað er framundan, en ég er staðráðin í að verða ekki ellidauð í pólitíkinni, þó ég ætti möguleika á því. Lífið er fullt af „efum og kannski". Kannski færi bara vel á því að enda stjórnmálaferil- inn í ráðherrastólnum og fara að huga að kvennabyltinguni ef . . .“
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84

x

19. júní

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: 19. júní
https://timarit.is/publication/671

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.