19. júní - 19.06.2002, Síða 21
MEG RYAN 0
LIFEAFTE
DENNIS AN
RUSSEl
RINK. DRUGS
CIGARETTES
ow to limit the dar
ROMANT
HA
Get tress
tosedt
FASHION &
rahan girls
'■i nmzm
EARMUM
celebration
f motherhood
■ound the ,
orld '
selling sex
to survive
Kvennablöðin
hvetja konur til að
vera kvenlegar.
Huggulega, ham-
ingjusama konan
á forsíðunni með
sitt eilifa bros sýnir
okkur hvað er í
raun gott að vera
kona, kvenleiki er
eftirsóknarverður.
kvenlegar. Þau eru sérfræðitímarit en fyrir mjög al-
mennan hóp - allar konur. Þau gefa skref fyrir skref
leiðbeiningar um hvernig á að vera góð í að vera
kona, ekki bara uppskriftir að spennandi réttum,
heldur bókstaflega leiðbeiningar um allt, hvernig á
vera góð í rúminu, hvernig á að klæða sig til að ná
iangt á framabrautinni og hvernig á að senda karl-
mönnum dulin skilaboð um að þú viljir að þeir sýni
þér áhuga.
Setningin sem byrjar á: „hvernig á að...“ segir í
hnotskurn hvað kvennablöð standa fyrir. Til marks
um þetta er t.d. sú staðreynd að boðháttur er afar
mikið notað form í tímaritunum: „Gerðu rassinn
stinnan," „Farðu í 48 tíma heilsu endurnýjun" „Ekki
missa stjórn á þer og nota of mikinn lit of fljótt" er
afar dæmigert setningaform í Cosmopolitan. Eng-
um dytti í hug að tala í þessum tón til karla í fjöl-
miðlum, Do's and Don’t's leiðbeiningar í karlablöð-
um á borð við „Fjárfestu í skattfrjálsum skuldabréf-
um, ekki kjósa repúblikana" eru óhugsandi!
Sú grundvallarhugmynd sem birtist í kvennablöð-
um er sú þversögn að „náttúrulegum" kvenleika
verði einungis náð með mikilli og erfiðri vinnu. Til
marks um þetta er t.d. hinn klassíski „fyrir og eftir“
myndaþáttur sem sýnir annars vegar mynd af ó-
breyttum lesanda eins og hann er dags daglega og
hins vegar hvernig hún verður eftir að tískufrömuð-
ir, hárgreiðslu- og förðunarmeistarar hafa tekið
hana í gegn. Þá sést hversu flott hver kona getur
orðið ef hún bara leggur sig fram.
í blöðunum er að finna mikið af nokkurs konar
heilagri, kvenlegri þekkingu „hlutum sem hver kona
á að vita“ og „kona deilir með konu.“ Unglingsstúlk-
ur, mæður, nýgiftar, öllum er þeim boðin hjálp við
að ná í lykilinn að hinum heilaga leyndardómi. Þau
eru til fyrir alla aldurshópa enda er kvenleiki frama-
braut sem lagt er á fyrir lífstíð.
Sú staðreynd að kvennablöð eru til yfir höfuð
segir líka heilmikið um stöðu konunnar í samfélag-
inu sem kyns sem er aðskilið frá hinu „venjulega",
það er karlinum, og þarfnast sérmeðferðar. Lengst
af voru ekki til sambærileg tímarit fyrir karla, litið
hefur verið svo á að öfugt við konur séu þeir nógu
öruggir með sig og þurfi hvorki né vilji láta segja sér
hvernig á að vera karlmannlegur karl. Allra síðustu
áratugi hafa samt komið fram blöð fyrir karla sem
sumir vilja meina að séu sambærileg við kvenna-
blöð, eins og t.d. Playboy og FHM og að þau kenni
körlum karlmennsku.
Kvennablöð og hinn eilífi kvenleiki
Kvennablöðin hvetja konur til að vera kvenlegar.
Huggulega, hamingjusama konan á forsíðunni með
sitt eilífa bros sýnir okkur hvað er í raun gott að vera
kona, kvenleiki er eftirsóknarverður. Af einhverjum
ástæðum virðist þannig vera mikið kappsmál í
þjóðfélaginu að halda tilbúinni, samfélagslegri
kvenleikaímynd að konum. Þó ber að hafa í huga
að hin eilífa kennsla í að vera kvenleg kona er eng-
an veginn bundin við kvennablöð.
Allt í kringum okkur höfum við kennslubókar-
dæmi um hvernig allar konur búa yfir hæfileikan-
um til að verða kvenlegar, hvort sem það er
skassið Katherine hjá Shakespeare sem er tamið,
grófa löggan Sandra Bullok sem verður fegurðar-
drottning í kvikmyndinni Miss Congeniality (Don-
ald Petrie, 2000), götudrósin Eliza Doolittle sem
verður hefðardama í Pygmalion (eftir Bernard
Shaw) eða óásjálega kvenhetjan í annarri hverri
unglingamynd frá Hollywood sem með smá
plokkun, förðun og háum hælum getur orðið vin-
sælasta stelpan í skólanum.
Við erum fullvissaðar um að gribban geti í raun-
inni orðið Ijúf, klunnin lipur og létt og Ijóti andarung-
inn að fögrum svani. Eins og karlhetjan í hasar-
myndum sannar karlmennsku sína með hugrekki
og hreysti sjáum við hvað kvenhetjur í rómantískum
gamanmyndum og leikritum geta í raun orðið kven-
legar ef þær fá rétta tilsögn. En hana er einmitt að
finna í kvennablöðum á borð við Cosmopolitan. □
21