Fréttablaðið - 01.04.2011, Page 58
1. apríl 2011 FÖSTUDAGUR42
folk@frettabladid.is
Ghostface Killah, meðlimur
Wu-Tang Clan, heldur tón-
leika á Nasa á laugardags-
kvöld. Hann er einhleypur
og hlakkar til að kynnast
næturlífinu í Reykjavík.
Bandaríski rapparinn Ghostface
Killah stígur á svið á Nasa á
laugardagskvöld á tískuhátíðinni
Reykjavík Fashion Festival. Hann
er klár í slaginn og ávarpar blaða-
mann eins og sönnum rappara
sæmir: „Yo, wassup! Any Iceland
dogs out there?“
Herra Ghostface hlakkar mikið
til Íslandsfararinnar: „Ég hef
aldrei komið þangað áður. Hvern-
ig staður er þetta? Er góður matur
þarna?“ Sjálfur segist hann ekki
eiga neinn uppáhaldsmat: „Ég er
hættur að borða ýmsar tegundir
af mat. Ég vona bara að þegar við
komum verðið þið með eitthvað
gott handa okkur,“ segir hann og
vísar í breytt mataræði vegna
sykursýki sem hann greindist
með árið 1996. Hún hefur vita-
skuld haft áhrif á hans daglega
líf. „Maður getur ekki gert sumt af
því sem maður gerði áður. Maður
verður að fara varlega.“
Ghostface Killah heitir réttu
nafni Dennis Coles og fæddist
árið 1970. Hann ólst upp á Staten
Island í New York og steig fyrst
fram á sjónarsviðið á fyrstu plötu
rappsveitarinnar Wu-Tang Clan,
hinni vinsælu Enter the Wu-Tang
(36 Chambers) sem kom út 1993.
Wu-Tang Clan er ein áhrifamesta
rappsveit sögunnar og hefur gefið
út fimm plötur, þá síðustu fyrir
fjórum árum. Liðsmenn sveitar-
innar, sem upphaflega voru níu
talsins, hafa einnig gefið út fjölda
sólóplatna, þar á meðal Ghostface
sem hefur sent frá sér níu stykki.
Hann er þekktur fyrir hratt
og hnitmiðað rímnaflæði sitt og
hefur verið duglegur við að nota
búta úr eldri lögum á farsæl-
um ferli sínum. Aðspurður segir
hann engan sérstakan tónlistar-
mann vera í uppáhaldi hjá sér.
„Þeir eru eiginlega margir. Það
eru samt ekki þessir nýju gaurar
heldur meira þessir frá því í gamla
daga,“ segir hann. Innblásturinn
fyrir lagasmíðum sínum og texta-
gerð fær hann úr lífinu sjálfu. „Við
upplifum alls konar kringumstæð-
ur og göngum í gegnum mismun-
andi hluti í lífinu. Maður tekur
þessa hluti sem maður sér og það
sem maður heyrir um og býr til
setningar úr þessum aðstæðum,“
greinir hann frá. „Síðan tengir
maður þetta auðvitað við tónlist-
ina. Minn innblástur kemur úr
lífinu sjálfu og hversu erfitt það
getur verið. Ég gæti ekki skrifað
þessa texta án þess að hafa upplif-
að alls konar hluti eða heyrt af því
sem aðrir hafa gengið í gegnum.“
Ghostface er að undirbúa nýja
plötu með D-Block sem kemur út
síðar á þessu ári. Sjötta plata Wu-
Tang Clan er þó ekki á teikniborð-
inu alveg strax. „Það eru margar
plötur á leiðinni, maður verður
bara að grípa þær. Sumir [úr Wu-
Tang] eru tilbúnir með plötur eins
og Masta Killa og Genius (GZA)
og Raekwon er nýbúinn að gefa út.
Sumir eru líka að vinna í bíómynd-
um þannig að það eru allir mjög
uppteknir. Við gerum hlutina skref
fyrir skref og sjáum svo til hvað
gerist í framtíðinni.“
Aðspurður segist hann sakna
þess að hanga með félögum sínum
í Wu-Tang eins og í gamla daga.
„Mér finnst frábært að vera með
þeim en við erum orðnir eldri núna
og erum ekki eins mikið saman og
þegar við vorum að byrja. Menn
eru líka með fjölskyldur og ýmis-
legt þannig. Ég sakna þess samt
alltaf að búa til tónlist með þeim
og fara í tónleikaferðir því þar er
uppruni okkar.“
Ghostface er einhleypur og
langar að kynnast næturlífinu í
Reykjavík og dömunum sem þar
eru á hverju strái. Einnig vonast
hann til að skoða sig um á landinu
ef hann hefur tíma til þess. Eng-
inn úr Wu-Tang Clan verður með
honum á sviðinu á Nasa en samt
sem áður lofar Ghostface kröft-
ugum og flottum tónleikum. „Ég
skora á fólk að mæta á tónleikana
og sjá okkur. Við skulum skemmta
okkur vel saman á Íslandi.“
freyr@frettabladid.is
Fyrsta plata Ghostface
Killah, Ironman, hefur
selst í einni milljón
eintaka í Bandaríkjunum.
1
Djammið og dömurnar heilla
TIL ÍSLANDS Í FYRSTA SINN Ghostface Killah heldur sína fyrstu tónleika á Íslandi á laugardaginn. NORDICPHOTOS/GETTY
Meðlimir rappsveitarinnar Wu-Tang Clan voru upphaflega níu talsins, eða
forsprakkinn RZA, Method Man, Ghostface Killah, GZA, Raekwon, Inspectah
Deck, U-God, Masta Killa og Ol´Dirty Bastard. Sá síðastnefndi lést út of
stórum eiturlyfjaskammti árið 2004 og eru þeir því átta í dag. Æskuvinur
þeirra Cappadonna hefur einnig aðstoðað þá og er stundum sagður einn af
meðlimum hljómsveitarinnar.
UPPHAFLEGIR MEÐLIMIR WU-TANG CLAN
2
Leikkonan Scarlett Johansson
mætti með Sean Penn upp á
arminn í brúðkaup Reese Wit-
herspoon og Jim Toth í síð-
ustu viku og þykir það sanna
að parið sé sannarlega miklu
meira en aðeins vinir.
„Scarlett er kúnni Jim og
þess vegna var hún í brúð-
kaupinu. Engan grunaði að hún
mundi taka Sean með sér. Þetta
er stórt skref af þeirra hálfu
og sýnir Hollywood-fólkinu að
samband þeirra er orðið alvar-
legt,“ var haft eftir innanbúðar-
manni.
Penn og Johansson sáust
fyrst saman í frumsýningar-
partíi kvikmyndarinnar Black
Swan og í mars voru fluttar
fréttir af því að þau hefðu eytt
heilum degi saman í Mexíkó.
Bæði eru Penn og Johansson til-
tölulega nýskilin við maka sína.
Alvarlegt samband
Fyrirtækið Brand Sense Partners
hefur kært Britney Spears og
Jamie, föður hennar, fyrir samn-
ingsbrot.
Fyrirtækið sá um að semja við
snyrtivörurisann Elizabeth Arden
árið 2004 fyrir hönd Spears-feðg-
inana. Elizabeth Arden þró-
aði ilmlínu Spears, sem hefur
malað gull fyrir söngkonuna.
Spears-feðginin gleymdu að
borga Brand Sense Partners
umboðslaun, samkvæmt kæru
fyrirtækisins, sem krefst þess að fá
tíu milljónir dala í skaðabætur.
Samkvæmt Brand Sense Partners
fór Britney fram á að fá öll laun
fyrir ilmverkefnið inn á eigin
reikning og hundsaði þar með
umboðsgreiðslu upp á 35 prósent.
Þá eiga Britney og Jamie Spears að
hafa gert sérsamning við Elizabeth
Arden til að sleppa við að borga
tíðrædd umboðslaun.
Britney Spears kærð
ÚLFÚR Í SAUÐARGÆRU Britney Spears er ekki heiðarleg í viðskiptum samkvæmt
Brand Sense Partners.
barnabörn eru á leiðinni í mjúkan faðm auðkýfingsins
Donalds Trump. Dóttir hans Ivanka og sonurinn
Donald yngri eiga bæði von á barni.
ALDURSMUNURINN
ER 24 ÁR Scarlett
Johansson og
Sean Penn mættu
saman í brúð-
kaup leikkonunnar
Reese Witherspoon.
NORDICPHOTOS/GETTY
e s t a b l i s h e d 1 9 3 4
Fallegir kjólar
fyrir
fermingar...
e s t a b l i s h e d 1 9 3 4
Andersen & Lauth Dömuverslun
Laugavegi 7