Fréttablaðið - 25.08.2011, Blaðsíða 36
4 •
Það þykir óvenjulegt að meirihluti
rokkhljómsveitar sé skipaður kven-
fólki. Vicky fellur undir þann hóp og
er oft á tíðum kölluð stúlknarokk-
hljómsveit en hana skipa Ástrós
Ósk Jónsdóttir bassaleikari, Eygló
Scheving Sigurðardóttir söngkona,
Karlotta Laufey Halldórsdóttir gítar-
leikari og loks sveitadrengurinn Orri
Guðmundsson, sem slær taktinn
fyrir stúlkurnar.
„Hún varð til alveg óvart. Ég,
Karlotta og Ástrós vorum saman í
annarri hljómsveit. Það var ekki fyrr
en Orri og Eyrún, fyrrverandi gítar-
leikarinn okkar, komu í heimsókn
í æfingahúsnæðið okkar að Vicky
varð til. Eyrún byrjaði að spila á
gítarinn minn og Orri að tromma. Ég
hóf að syngja með og eftir tveggja
tíma samspil var fyrsta lagið okkar
orðið til,“ segir Eygló um stofnun
hljómsveitarinnar.
Þetta var haustið 2006 og að ári
liðnu léku þau á tónlistarhátíðinni
NÝJA
HLJÓMPLATAN
ER ÞÆGA YNGRA BARNIÐ
Orð: Hallfríður Þóra Tryggvadóttir
Myndir: Valgarður Gíslason
Rokkhljómsveitin Vicky gefur út aðra breiðskífu sína, Cast a
Light, á næstu dögum. Þau segja nýju lögin í senn poppaðri,
vandaðri og höfða betur til stúlkna.
Iceland Airwaves. Fyrrverandi um-
boðsmaður þeirra uppgötvaði þau
á tónleikum á skemmtistaðnum
Amsterdam og fóru hjólin að snúast
eftir það. Brátt var hljómsveitin flogin
til Peking þar sem hún lék á stærstu
rokktónlistarhátíð Kína, Midi Music
Festival, og skömmu síðar lögðu þau
upp í tónleikaferð um Bandaríkin.
Fyrsta breiðskífa hljómsveitarinnar,
Pull Hard, kom út haustið 2008 og
fékk góðar undirtektir. Svo góðar að
lagið Blizzard rataði í sjöunda sæti á
lista útvarpsstöðvarinnar X-ins 977
yfir bestu lög ársins 2008.
Að þremur árum liðnum hafa þau
leikið á tónleikum víða um heim-
inn, þar á meðal á Canadian Music
Week og tvívegis á tónlistarhátíð
í St. Louis í Bandaríkjunum. Eygló
segir þau ekki hafa kunnað að fylgja
frumrauninni réttilega eftir. „Í upp-
hafi fengum við allt örlítið upp í
hendurnar vegna fyrrum umboðs-
mannsins okkar. Við áttuðum okkur
ekki á því að best væri að gefa út
aðra plötu strax,“ segir hún og getur
þess að þegar þau loks ákváðu að
vinna að nýju efni hafi það orðið
til á augabragði. Vinna við nýju
hljómplötuna hófst fyrir alvöru í
mars og eftir rúman mánuð voru
lögin tilbúin til hljóðritunar. Hélt
hljómsveitin vestur í Önundarfjörð
með Bandaríkjamanninum Jason
Allen, sem stýrði upptökunum. „Við
höfum farið þrisvar í tónleikaferð
um Bandaríkin og kynntumst Jason,
sem rekur hljóðverið Blasting Room,
í einni þeirra. Við buðum honum að
taka upp plötuna með okkur, sem
hann þáði og hljóðblandaði lögin
vestanhafs,“ segir Orri.
Eyrún, fyrrverandi gítarleikari
þeirra, sagði skilið við hljómsveitina
í vetur og fylgdu því ýmsar breyt-
ingar. „Við ákváðum að vera fjögur
í stað þess að fá nýja manneskju.
Aðallega því við erum svo mikil
heild og miklir vinir,“ segir Eygló og
í sameiningu lýsa þau yfir að hljóm-
sveitin eyði eiginlega of miklum
tíma saman og sé jafn náin og fjöl-
skylda. Orri bætir við í sömu mund:
„Nýr hljómsveitarmeðlimur þyrfti að
smellpassa inn í hópinn til að þetta
myndi ganga.“
Skömmu eftir útgáfu breiðskíf-
unnar Pull Hard skilgreindi tón-
listarvefmiðillinn Pitchfork Media
tónlistarstefnu hljómsveitarinnar
sem popp-metal. Nokkur breyting
hefur orðið á stefnu hljómsveitar-
innar með nýju lögunum, sem þykja
heldur poppaðri. „Þetta fylgir því
að hafa aðeins einn gítarleikara,
platan varð sjálfkrafa poppaðri.
Við stilltum heldur ekki magnarana
upp úr öllu valdi á æfingum. Þess í
HREMMINGAR Í KÍNA Textar Vicky voru ritskoðaðir og lögregla gætti þess að allt færi
frægu ummæli Bjarkar „Free Tibet“.
Þú færð Blaðberann þinn í Skaftahlíð 24
alla virka daga frá kl. 9-17.
...góðar fréttir fyrir umhverfiðBlaðberinn...
Blaðberinn
bíður þín