Fréttablaðið - 25.08.2011, Blaðsíða 44
25. ÁGÚST 2011 FIMMTUDAGUR8 ● fréttablaðið ● skólar og námskeið
● ÁTTUNDA JAPANSKA RÆÐUKEPPNIN Sendiráð
Japans, í samvinnu við Hugvísindadeild Háskóla Íslands og
Japan Foundation, mun standa fyrir árlegri japanskri ræðu-
keppni í áttunda sinn.
Keppnin verður haldin 10. september frá kl. 13.00 í Odda
101, Háskóla Íslands.
Þátttakendur keppninnar verða flestir námsmenn á há-
skólastigi. Keppnin er opin öllum em treysta sér til að halda um fimm mínútna
ræðu á japönsku. Þátttakendum verður raðað niður í viðeigandi flokka af
aðstandendum keppninnar.
Til að skrá sig í keppnina, er áhugasömum vinsamlegast bent á að senda
tölvupóst til Sendiráðs Japans á Íslandi, á póstfangið japan@itn.is, til að fá sent umsóknareyðublað. Útfylltri
umsókn skal svo skilað aftur til sendiráðsins fyrir 2. september.
Sigurvegarar í hverjum flokki fá verðlaun tengd Japan sem veitt eru af Japan Foundation.
● NEMAFORUM Á NÝJUM
STAÐ Nemaforum hefur verið
opnað á nýjum stað og er nú til
húsa í Hafnarhvoli, Tryggvagötu
11 á fjórðu hæð. Fólkið að baki
Nemaforum eru þau Ásta Krist-
rún Ragnarsdóttir námsráðgjafi
og Valgeir Guðjónsson, tónlist-
armaður og félagsráðgjafi.
Í Stofunni í Nemaforum,
bjóða þau upp á námskeið í
námstækni og áhugasviðsgrein-
ingu. Fyrra námskeiðið þjálfar
markvissar lestraraðferðir sem
byggja á kerfi sem Ásta Kristrún
hefur þróað en hið síðara byggir
á NEMAcode-áhugasviðsgrein-
ingu sem gefur skýra mynd af
því hvaða námsleiðir og starfs-
svið eru vænlegar fyrir hvern og
einn. Boðið er upp á námskeið
fyrir fólk á öllum skólastigum.
Stofan er jafnframt til leigu
fyrir smærri veislur, fundi og
önnur mannamót enda er stof-
an hlýlegt menningarathvarf.
Nánari upplýsingar um
Nemaforum og Stofuna er að
finna á www.nemaforum.com.
Ásta Kristún Ragnarsdóttir stýrir
Nemaforum.
● MARGIR KAUPA NEMAKORT „Sala nemakortanna fer vel af
stað, enda geta námsmenn sem nota strætisvagna reglulega sparað
umtalsverðar fjárhæðir yfir vetur-
inn með þeim. Nú þegar hafa yfir
2.000 námsmenn lagt inn pöntun,“
segir Júlía Þorvaldsdóttir, sviðs-
stjóri farþegaþjónustusviðs Strætó
bs. Kort sem gildir eina önn kost-
ar 11.000 krónur en fyrir allan
veturinn 20.000.
Námsmenn í framhaldsskólum
eða háskólum á höfuðborgarsvæðinu, með lögheimili í sveitarfélagi sem
á aðild að Strætó bs., eiga kost á að kaupa nemakortið.
Hægt er að panta nemakort á vefsvæði Strætó, https://www.straeto.is.
● MYNDAVÉLIN MUND
UÐ Margir eiga í dag fínar og
dýrar myndavélar. Fæstir kunna
þó að nýta alla þá kosti sem í
boði eru í svo flóknum vélum.
Því hafa allir gott af því að fá
fagmenn til að segja sér aðeins
til. Á vefsíðunni ljosmyndari.is er
til að mynda boðið upp á nokk-
ur námskeið bæði fyrir byrj-
endur og lengra komna. Nám-
skeiðin eru haldin í Stangar-
hyl 7 en meðal námskeiða má
nefna: Þriggja daga CANON ljós-
myndanámskeið, photoshop-
námskeið og fjarnámskeið í ljós-
myndun á netinu.
Er kominn tími til að gera eitthvað?
Námskeið sem opna þér nýjar leiðir
Hringsjá býður úrval af öðruvísi og spennandi námskeiðum sem
hafa hjálpað mörgum að komast aftur eða í fyrsta sinn af stað til
meiri virkni, meiri lífsgæða og fleiri valkosta í námi eða starfi.
Námskeiðin eru sniðin fyrir einstaklinga, 18 ára og eldri sem hafa verið frá vinnumarkaði eða námi vegna slysa,
veikinda, félagslegra erfiðleika eða annarra áfalla. Námskeiðin geta líka hentað þeim sem hafa litla grunnmenntun
eða hafa átt erfitt með að tileinka sér hefðbundið nám. Hringsjá býður einnig fullt nám í 1,5 ár.
Um er að ræða eftirfarandi námskeið:
Bókhald Grunnur í bókfærslu fyrir þá
sem vilja vinna við bókhald
eða færa eigið bókhald.
Stærðfræði fyrir
byrjendur
Beitt er nýjum aðferðum til
að skapa áhuga og jákvætt
við horf til stærðfræði.
Excel grunnur
Farið er í góð vinnubrögð og
fjölmörg hagnýt reiknidæmi í
þessu vinsæla forriti.
Sjálfstyrking Styrkir nemendur í að tjá
sig, sýna öruggari fram-
komu og almennt vera til!
Enska fyrir
byrjendur
Beitt er nýjum aðferðum fyrir
þá sem hafa átt erfitt með að
læra ensku / önnur tungumál.
Tölvubókhald
NÝTT!
Dýpkar þekkingu á
bókhaldi almennt og kynnir
tölvufært bókhald.
Fjármál
Fjármál einstaklinga á manna-
máli! Eykur skilning á fjár-
málum, bæði eigin og almennt.
Tölvugrunnur Tölvunotkun fyrir byrjendur
og lengra komna. Unnið á
eigin hraða með aðstoð.
Minnistækni
Kennd er tækni til þess að efla
og bæta minnið. Hentar þeim
sem eiga við gleymsku eða
skert minni að stríða.
Að ná fram því
besta með ADHD
NÝTT!
Eykur skilning á ADHD
(athyglisbresti / ofvirkni) og
hvernig hægt er að ná betri
tökum á ADHD.
Úr frestun í
framkvæmd
NÝTT!
Farið yfir ástæður frestunar,
einkenni og afleiðingar. Fyrir
þá sem vilja hætta að fresta og
fara að ná árangri í lífinu.
Frekari upplýsingar og skráning hjá Hringsjá í síma 510-9380 eða á hringsja.is