Fréttablaðið - 25.08.2011, Page 45

Fréttablaðið - 25.08.2011, Page 45
 • 5 stað settumst við niður og sömdum lög. Við það urðu þau poppaðri og vandaðri,“ segir Orri og svarar aðspurður um söguna að baki titils nýju breiðskífunnar: „Mín tilfinning fyrir nafninu er að hljómsveitin sé algjörlega í nýju ljósi. Breytt tón- listarstefna, mannabreytingar og nýtt upphaf.“ Jafnframt játar hann að titillinn sé töluvert poppaðri en titill Pull Hard. „Þetta er samt ekkert popp, þetta er enn mjög rokkað,“ segir Eygló ákveðin en lýsir þó sam- hliða Orra nýju plötunni sem þæga yngra barninu, enda auðveldari í hlustun og með þægilegri hljóm. Þessi breytta stefna þeirra virðist höfða til kvenna en Eygló segist finna fyrir auknum áhuga kvenfólks á hljómsveitinni. „Hlustendahópur gömlu plötunnar var mestmegnis strákar en núna finnst mér miklu fleiri stelpur fíla tónlistina okkar, eins og lagið Feel Good.“ Hljómsveitin vakti töluverða at- hygli erlendis fyrir frumraun sína og lýsti blaðamaður breska dagblaðsins The Sun þeim sem næstu Björk. Eygló, söngkonu hljómsveitarinnar, var einnig líkt við hana á erlendri bloggsíðu. „Er ekki bara nóg að vera frá Íslandi?“ spyr Orri varðandi þessar líkingar en Eygló er fljót að bæta við: „Margir hafa bent á líkindi með röddum okkar Bjarkar. Ég heyri það ekki sjálf og veit ekki hvað er til í því. Það er allavega ekki leiðum að líkjast.“ Þetta er ekki í eina skiptið sem Björk hefur komið við sögu hjá hljómsveitinni. „Hún hafði mikil áhrif á kínversku tónlistarhátíðina Midi Music Festi- val. Skömmu fyrir hátíðina hélt hún tónleika í Kína og ávarpaði áhorfendaskarann með orðunum „Free Tibet“ (Frelsið Tíbet). Deilan um Tíbet var mikið í umræðunni á þessum tíma og Ólympíuleikarnir á næsta leiti,“ segir Eygló og Orri bætir við. „Við vorum ekki vinsæl eftir þetta sem íslensk hljómsveit og það var erfitt að komast inn í landið.“ Tónleikarnir áttu að fara fram á útisviði og tæplega hundrað þúsund áhorfendur. Vegna þessa uppátækis bönnuðu stjórnvöld allar útisamkomur og þurfti hátíðin að fara fram innanhús. Einnig var hljóm- sveitin vinsamlegast beðin um að láta engin pólitísk ummæli falla og gætti hermaður þess að allt færi vel fram á tónleikum þeirra. „Jafnframt voru textarnir okkar ritskoðaðir og okkur bannað að flytja lögin My Black Lesbian Lover og Alien.“ Markmið þeirra næstu tólf mán- uðina er að gefa út nýju breiðskífuna í september, halda veglega útgáfu- tónleika og fylgja plötunni vel eftir. „Þessa stundina erum við að undir- búa tónleikaferðalag um Evrópu fyrir byrjun næsta árs,“ segir Eygló og ætla þau strax að hefjast handan við gerð nýrrar hljómplötu eða líkt og Orri orðar það: „Við ætlum að læra af þessari þriggja ára bið.“ vel fram á tónleikunum í Kína, eftir hin

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.