Fréttablaðið - 25.08.2011, Qupperneq 78
25. ágúst 2011 FIMMTUDAGUR54HAUSTIÐ
„Haustið leggst mjög vel í mig.
Ég ætla að halda áfram að sýna
Hárið i september og svo eru
nokkur spennandi verkefni í
bígerð.“
Ólöf Jara Skagfjörð leikkona
„Þetta var bara eldri maður sem
var eitthvað að spjalla við konuna
sína og skipti um akrein á ljósun-
um á horni Bankastrætis og Lækj-
argötu án þess að gefa stefnuljós,“
segir Fjölnir Geir Bragason eða
Fjölnir Tattoo eins og hann jafn-
an kallaður. Keyrt var á hann í
miðbæ Reykjavíkur um hádegis-
bilið í gær.
Að sögn Fjölnis átti árekst-
urinn sér stað á litlum hraða og
hann varð sem betur fer ekki
fyrir alvarlegum meiðslum. „Ég
er reyndar staddur uppi á slysa-
varðstofu núna að láta athuga á
mér fótinn sem varð á milli þegar
hjólið fór á hliðina.“ Við nánari
athugun kom í ljós að Fjölnir var
ansi bólginn á kálfanum, hnéð var
aðeins laskað og hann fékk slink
á bakið. „Læknirinn bað mig um
taka því rólega næstu daga, þá
myndi þetta nú koma.“
Fjölnir er tiltölulega nýbyrj-
aður að hjóla um á mótorhjóli og
hann biður menn að hugsa sinn
gang í umferðinni. „Það gengur
ekki að menn séu með hugann
við eitthvað annað en aksturinn.
Menn verða að athuga hvað þeir
eru að gera.“ Sá sem ók á Fjölni
lét sig hins vegar hverfa og virtist
ekki hafa tekið eftir neinu. Sem
betur fer fyrir Fjölni stöðvaði
hann för sína á ljósum skammt frá
og hleypti frúnni sinni út. Fjölnir
náði því að hlaupa hann uppi. „Svo
kom þarna leigubílstjóri sem varð
vitni að þessu öllu, hann setti upp
rauða þríhyrninginn, gaf skýrslu
og skutlaði mér svo upp á slysa-
varðstofu. Hann var miskunn-
sami Samverjinn.“
Fjölnir hafði skiljanlega einn-
ig áhyggjur af hjólinu, hann segir
að stefnuljósin hafi brotnað og
bensínstankurinn hafi rispast.
Aðrar skemmdir gætu átt eftir
að koma í ljós. Hjólið er sérsmíð-
að og var áður í eigu ljósmynd-
arans Spessa, það er 1500 kúbik
og af gerðinni Harley David-
son Night Train sem búið er að
breyta í „chopper“. „Kaupverðið
er ekki gefið upp en það var rán-
dýrt. Spessi á annað hjól og ákvað
að selja mér þetta, enda selurðu
ekki hverjum sem er barnið þitt.“
freyrgigja@frettabladid.is
FJÖLNIR TATTOO: MENN VERÐA AÐ HUGSA SINN GANG
Húðflúrmeistari keyrður
niður í miðbæ Reykjavíkur
SLAPP VIÐ ALVARLEG MEIÐSLI Keyrt var á Fjölni Bragason á mótorhjóli hans í miðbæ Reykjavíkur. Hann slapp með lítils háttar
meiðsl og hafði mestar áhyggjur af hjólinu sínu. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Bandarísku rappararnir Sage
Francis og B. Dolan stíga á svið á
Sódómu Reykjavík 3. september.
Francis vakti mikla athygli fyrir
plötu sína Personal Journals sem
kom út 2002 og skoraði hún hátt á
árslistum tónlistarspekinga. Bein-
skeyttir textarnir féllu þar sérlega
vel í kramið.
Þetta verður í þriðja sinn sem
Francis heldur tónleika á Íslandi
en B. Dolan hefur aldrei áður
komið. „Ég fór til Amsterdam að
sjá hann [Francis] í fyrrahaust.
Mér fannst það geggjaðir tónleikar
hjá honum og mig langaði endilega
að fá hann hingað aftur,“ segir
Guðný Lára Thorarensen sem
skipuleggur tónleikana. „B. Dolan
er hjá sama útgáfufyrirtæki. Þeir
voru saman í Amsterdam og ég
ákvað að það væri skemmtilegt að
fá þá báða.“
Níu ár eru síðan Francis kom
hingað til lands. Hann fylgdi
Personal Jesus eftir með A Healthy
Distrust árið 2005 og tveimur
árum síðar kom út Human Death
Dance. Í fyrra gaf hann út plötuna
Li(f)e þar sem meðlimir hljóm-
sveitanna Sparklehorse, Death
Cab For Cutie og Grandaddy, ásamt
Yann Tiersen, voru gestir. Miða-
sala á tónleikana á Sódómu er á
Midi.is. - fb
Sage Francis til Íslands
BEINSKEYTTUR Textar bandaríska
rapparans Sage Francis þykja sérlega
beinskeyttir.
Hljómsveitin Vinir Sjonna ætlar að taka upp nýtt lag
á næstunni. Svo gæti farið að rödd hins sáluga Sigur-
jóns Brink verði notuð í laginu en það á eftir að koma
betur í ljós.
„Sjonni söng það inn á demó á sínum tíma. Við
ætlum að sjá hvernig það lag verður í okkar búningi,“
segir söngvarinn Matthías Matthíasson. Aðspurður
hvort Sigurjón komi við sögu í laginu segir hann: „Við
eigum eftir að yfirfara þessar upptökur. Við ætlum að
sjá hvort þetta sé nothæft og hvort fjölskyldan hans
vilji þetta eða ekki. Það er svo margt sem spilar inn í,
þannig að við verðum aðeins að sjá til.“
Vinir Sjonna hafa verið lítt áberandi eftir að þeir
tóku þátt í Eurovision-keppninni í Þýskalandi í vor.
Þar lentu þeir í tuttugasta sæti með lagið Coming
Home en stóðu sig engu að síður með prýði á sviðinu.
„Við ætlum að keyra okkur í gang aftur. Við höfum
verið að klára hin og þessi verkefni sem við vorum í
áður en við fórum í þetta ævintýri,“ segir Matthías.
Næst á dagskrá er ball í Mosfellsbæ á laugardaginn
á hátíðinni Í túninu heima, auk þess sem kvennakvöld
hefur verið bókað á Húsavík í október. „Við erum rétt
að byrja,“ segir hann hress. - fb
Vinir Sjonna taka upp nýtt lag
NÝTT LAG Vinir Sjonna ætla að taka upp nýtt lag á næstunni.
Svo gæti farið að rödd Sigurjóns Brink fái þar að hljóma.
FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL
„Hún er mjög meðfærilegur hundur en smá príma-
donna enda leikkona,“ segir Ásta Dóra Ingadóttir,
hundaþjálfari og eigandi Gallerís Voff, en hún sér
um að þjálfa tíkina Myrru fyrir frumraun hennar á
leiksviði.
Myrra fer með hlutverk hundsins Tótó í uppsetn-
ingu Borgarleikhússins á Galdrakarlinum í Oz og
mætti á sína fyrstu æfingu í gærmorgun. Að sögn
viðstaddra á æfingu sló Myrra rækilega í gegn
og var það mál manna að ný stjarna væri fædd í
leikhúsheiminum.
„Hún Myrra er búin að vera hjá mér síðustu fjór-
ar vikurnar og má ekki hitta eiganda sinn meðan
á þjálfuninni stendur. Ég kalla þetta sumarbúðir,“
segir Ásta Dóra en þetta er í annað sinn sem hún
þjálfar hund upp í hlutverk Tótó. „Ég þjálfaði líka
hundinn sem lék í leikritinu fyrir fimmtán árum svo
ég er öllu vön.“
Ásta Dóra vill meina að Myrra sé smá príma-
donna en henni finnst gaman að fara í útreiðatúra
en neitar að fara á hest sem er ekki í sama lit og hún
sjálf, sem sagt vill bara gráan. „Hún er mjög fyndin.
Svo þegar við erum á leið á þreksvæðið, þá situr
hún á vespunni með mér, á meðan hinir hundarnir
hlaupa.“
Þjálfun Myrru, sem er West Highland White
Terrier, gengur út á að fá hana til að hlýða Ástu
Dóru og treysta. Einnig þarf Myrra að skipta um
kyn á sviðinu því Tótó er karlkyns. „Ég er að þjálfa
hana í hálfgerða lífsstílsbreytingu, hlýða strax og
svara karlkynsskipunum. Svona heimilishundar
eins og Myrra eru ekki vanir svona miklum afskipt-
um,“ segir Ásta Dóra, sem verður á bak við tjöldin
í öllum sýningunum. „Myrra verður að hlýða mér
og svo Láru sem leikur Dóróteu. Þær hittust fyrst á
æfingu í morgun og náðu vel saman.“ - áp
NÝ STJARNA Myrra þreytir frumraun sína á leik-
sviði í vetur þegar hún fer með hlutverk Tótó í
Galdrakarlinum í Oz. Hér er hún ásamt Ástu Dóru
Ingadóttur þjálfara sínum. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Ný prímadonna í leikhúsheiminum
Hver tími er 60 mínútur og kennt er tvisvar í
viku á þriðjudögum og fimmtudögum kl. 17.30
í leikfimisal Hvassaleitisskóla.
Kennarar eru Birgitta Sveinbjörnsdóttir danskennari
og Ólöf Björk Björnsdóttir skráning er hafin á
námskeiðið sem hefst þriðjudaginn 6.september.
Upplýsingar í síma 899-8669
SUÐRÆNSVEIFLA
Suðrænsveifla er skemmtileg
líkamsrækt fyrir konur á öllum
aldri.Námskeiðið byggist upp
á mjúkri upphitun,latin dönsum
eins ogcha cha,jive,salsa og fl.
kviðæfingum og góðri slökun.
LEIKTÆKNISKÓLI
Undirbúningur leikarans
Túlkun
Textagreining
Kvikmyndaleikur
kama og raddar
kun
Mag teins Bachmann
Fyrsta námskeið er frá 6. sept. til 11. okt. 2011
Kennsla fer fram öll þriðjudagskvöld frá kl. 19.30 til 23.00
Skr r r leiktaekniskolinn@gmail.com. Aldurtakmar r
Magnús og Þorsteinn eru meðal reyndustu leikara sinnar kynslóðar
með áratuga reynslu af vinnu við leikhús, kvikmyndir og sjónvarp.
Námskeið í hagnýtri og skapandi leiklist