Búfræðingurinn - 01.01.1939, Side 50
46
BÚFRÆÐINGUftlNN
hægt að stýra honum að framan líkt og bíl, og hafa ýmsir
fleiri notað slíkan útbúnað.
Loks skoðuðum við mjólJcurbúið í Hveragerði, sem er ein-
stakt að því leyti, að það er rekið með jarðhita og rafmagni.
Er þar búið til mikið af mysuosti. Nokkru eftir að við vorum
þarna á ferðinni, keypti mjólkurbú Flóamanna það, og starfar
það nú sem útibú þaðan.
Dagur var nú að kvöldi kominn og var því ekið beint til
náttstaðar, en það var að Ölfusárbrú. Komið þangað kl. 10—11.
Þriðjudaginn 21. júní lögðum við af stað kl. 7 um morgun-
inn. Fyrst skoðuðum við vijólkurbú Flóamanna, sem mun vera
stærsta og myndarlegasta mjólkurbú hér á landi. Það var
byggt 1928—1929 og tók til starfa 5. desember 1929.
Þá slóst í för með okkur Ingólfur Þorsteinsson, eftirlits-
maður Flóaáveitunnar, til þess að sýna okkur það fyrirtæki.
Var fyrst ekið á leið til Eyrarbakka og stanzað í hinni svo-
kölluðu „Síberíu“, en það er allstórt landsvæði (260 ha), sem
ríkið fékk frá Kaldaðarnesi og Sandvíkurtorfunni upp í stofn-
kostnað Flóaáveitunnar. Af þessu svæði hafa verið afmark-
aðir 107 ha, sem á að þurrka og reisa síðan nýbýli (ef til
vill samvinnubyggðir). Er framræslan fyrir nokkru hafin
(okt. 1935) og hefir hún verið unnin sem atvinnubótavinna
frá Reykjavík. Opnir skurðir eru lagðir með 70 m millibili
(samhliða), en hver spilda er á lengd um 1100 m. Síðan á
að lokræsa á milli opnu skurðanna með 12—18 m millibili.
Dýpt opnu skurðanna er yfirleitt 1,60—1,90 m með halla
1:1000, en sá halli er víðast á Flóaáveitusvæðinu. Skurðirnir
eru yfirleitt grafnir ofan á hraun, en það er víðast undirlag
Flóans. Flóaáveitan mun vera eitt allra stærsta áveitufyrir-
tæki í Evrópu. Verkið var framkvæmt á árunum 1922—1927
og kostaði um 1,3 milljónir kr. Áveitusvæðið er um 12000 ha
og heyrir til 130 jörðum. Vatnið er tekið úr Hvítá eftir 19
km löngum aðfærsluskurði, sem hefir botnbreidd 6—11 m
og er 2—5 á dýpt. Vatnsmagnið er um 1,5—2 lítrar á sek. pr.
ha. Flóaáveitan hefir aukið grassprettu mjög verulega í Fló-
anum. Hún hefir, í sambandi við mjólkurbúið við Ölfusá, gert
Flóann að einni blómlegustu byggð þessa lands.