Frjáls verslun - 01.03.2001, Síða 72
Isplflíffk'”
SP*:3í;írá -..'J
Mannauðurinn - reynsla og þekking starfsmanna - er óumdeilanlega lykillinn að verðmœtasköpun og vextifyrirtœkja.
FV-mynd: Geir Olafsson
Lykillinn er...
„Starfsfólkið er uppspretta sam-
keppnisyfirburða fyrirtækja og
stofnana. Það er viðurkennd stað-
reynd í dag að rótin að árangri
liggur í því að ná því besta út úr
starfsfólkinu.“
Jeffrey Pfeffer (1994)
Síðustu tvo áratugi tuttugustu
aldarinnar og nú við upphaf
tuttugustu og fyrstu aldar hefur
kastljósið í æ ríkara mæli beinst að
starfsfólkinu sem mikilvægri auðlind
fyrirtækja og stofnana í hinum harða heimi samkeppni og sí-
felldra breytinga.
Frelsi í viðskiptum eykst stöðugt og alþjóðavæðing því
samfara og tækniframfarir verða sem jafnvel mætti nefna
tæknibyltingu - einkum á sviði upplýsinga- og fjarskiptatækni.
Breytingar hafa einnig orðið í ríkisrekstri í þeim tilgangi að
auka svigrúm og sjálfstæði opinberra stofnana og ríkiseinok-
un hefur veríð afnumin á sumum sviðum. Aherslan er á ný-
sköpun, hæfni, stöðuga þekkingaröflun, gæði og þjónustu.
Því er haldið fram og stutt rannsóknum fræðimanna og ann-
arra rannsakenda, að lykillinn að aðlögunarhæfni, vexti og
samkeppnisyfirburðum í þessu nýja rekstrarumhverfi sé
starfsfólkið og nýjar leiðir og áherslur við stjórnun þess.
Mannauður er tiskuorðið í dag Nýtt hugtak, mannauður,
spratt fram á svið stjórnunarfræðanna á síðari hluta níunda
og í byrjun tíunda áratugar síðustu
aldar. Það tók þó allt upp í tíu ár fyrir
hugtakið að komast almennilega í
tísku og ýta til hliðar hugtakinu
vinnuafl sem fram að því var notað til
að vísa til starfsfólksins á vinnustað.
Agæt skilgreining á mannauði hefur
verið sett fram af Jay B. Barney
(1995):
„Mannauður (human resource) er öll
sú reynsla, þekking, dómgreind og
áhættuvilji, ásamt persónulegum eig-
inleikum, sem starfsfólk fyrirtækja
býr yfir.“
Mannauðurinn er óumdeilanlega lykillinn að verðmæta-
sköpun og vexti samkvæmt þessari skilgreiningu, einkum
fyrir fyrirtæki og stofnanir á sviði hátækni, þekkingarsköpun-
ar og þjónustu. Þekking og reynsla sem starfsfólkið býr yfir
og persónulegir eiginleikar þess og færni eru sjálf „fram-
leiðsluvaran". Þegar starfsfólkið hverfur úr fyrirtækinu í lok
vinnudags er lítið eftir. „Eignir“ þessara fyrirtækja eru að
stórum hluta óáþreifanlegar og geta horfið á braut fyrirvara-
lítið, jafnvel til keppinautanna.
Það hlýtur því að vera markmið stjórnenda að afla, varð-
veita og þróa þessa auðlind og hámarka nýtingu hennar.
Segja má að velgengni fyrirtækja og stofnana sé komin undir
því að þau hafi á að skipa góðu og hæfileikaríku starfsfólki,
geti haldið því ánægðu og tryggu fyrirtækinu með markvissri
og árangursríkri starfsmannastjórnun (human resource
management).
Eru starfcmenn vinnuafl eba mann-
audur? Inga Jóna Jónsdóttir stjórnunar-
rábgjafi segir að ein helsta ögrunin sem
stjórnendur standi frammi fyrirsé að
laða að hæfileikaríkt starfyfólk og halda
íþað. „Þegar starfyfólkið hverfur úr
fyrirtækinu í lok vinnudags erlítið eftir.“
Effir Ingu Jónu Jónsdóttur
72